19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1979, Qupperneq 46

19. júní - 19.06.1979, Qupperneq 46
fræðinga . . . En ég held ekki að nein kona, sem hefur áhuga fyrir þeim öflum og kostum, sem móta líf hennar, geti hjá þvi komist að hugleiða, hvað þetta orð merkir, ekki í erfðafræðilegum skilningi heldur í hugarheimi okkar. Hvort sem það er kallað „eðlis- hvöt“ eða ekki, hafa flestar konur ánægju af að eignast börn, vilja það og gera. Erfiðleikarnir hjá þessum meirihluta felast ekki í þvi að þær eru mæður, heldur í þeim tilfinningalegu fullyrðingum sem felast í hugtakinu „móðureðli“, sem sé, að það sé jafnnáttúrulegt og ófrávíkjanlegt fyrir konu að vera góð móðir og það er fyrir tófu með yrðlinga. Þeir, sem vilja færa til þessi rök náttúrunnar, gleyma því að þótt tófan annist yrðlinga sína af eðlis- ávísun, leggi líf sitt í hættu til að gæta þeirra og kenni þeim að veiða, ræður sama eðlisávísunin því að hún yfirgefur þá án þess að líta um öxl um leið og þeir geta séð sér farborða sjálfir. Það er líka eðlishvöt, sem kemur henni til að eðla sig um fengitímann, hugs- anlega með syni sínum. Móðurástin sprettur heldur ekki sjálfkrafa upp í mannskepnunni um leið og barn fæðist. Barna- læknirinn Dr. Sidney Q. Cohlan segir: „Ég segi mæðrum á fyrsta degi að það sé ekki sjálf fæðingin, sem skapar sambandið; það myndast þegar móðirin lifir með og annast um ungbarnið daglega. Það er ekki hægt að elska barnið sitt 24 tíma á sólarhring, sjö daga vikunnar. Það getur verið erfitt verk að annast barnið sitt fyrstu mánuðina og stundum drepleiðin- legt. Launin fara að skila sér þegar móðirin og ungbarnið hafa farið gegnum aðlögunarskeið og taka að svara þörfum hvors annars. En hún hefur lesið alla hina ljóðrænu vegsömun í tímaritunum og væntir sér móðurtilfinningar þegar í stað, og heldur að hún sé eitthvað frábrugðin öðrum, ef hún bregst ekki við nýja barninu sínu við 44 fyrstu sýn á þann hátt, sem glans- myndirnar lýsa. Kannski á hún ekki skilið að vera móðir. Hvernig getur hún útskýrt, að hún finni til neikvæðra tilfinninga, þótt ekki sé nema örskamma stund? Umhverfi hennar leyfir henni ekki að koma orðum að þessu — svo að þegar nýbökuð móðir er spurð, hvort hún finni ekki til fullnægju, grípur hún ómeðvitað til talsverðrar lygi. Hún segir oft það sem hún sjálf vill trúa.“ Friday vitnar einnig til sálfræð- ingsins Mio Fredland, sem segir: „Ég hef heyrt konur segja að það geti tekið þær tvær eða þrjár vikur, þar til þeim fer að finnast vænt um barn sitt í raun og veru. Það er augnabliksáfall að sjá barn sitt i fyrsta skipti. Maður elskar það alls ekki sjálfkrafa.“ Þetta er sú harðstjórn, sem fylgir hugmyndinni um móðureðlið. Hún upphefur móðurhlutverkið ofar því sem mannlegum mætti er mögulegt að uppfylla. Það mynd- ast hættulegt djúp. Móðirin finnur hinar blöndnu tilfinningar ástar og gremju, ástúðar og reiði, sem hún ber til barns síns, en hún má ekki við því að vita af þeim. Klofningurinn milli þess, sem móðirin segir, hvernig hún hegðar sér við barnið — og svo þess, sem hún ómeðvitað finnur djúpt innra með sér, gerir hana óörugga um sjálfa sig. Richard Robertiello sálfræðingur segir: „. . . Fæðingin sem athöfn skapar ekki hæfileikann til að vera móðir, það er ekki endilega víst að þú fyllist þessu dásamlega móður- eðli, sem segir þér, hvað þú átt að gera við barnið þitt í öllum til- vikum. Það þarf að losa konur við byrði þessarar goðsagnar. Hún varpar þeim á vald karlasam- félagsins. Karlmenn eru þess „full- vissir“, að konum sé ætlað að vera mæður. En sérhver kona, sem eignast barn, er ekki jafnviss innra með sér. Hún verður máttvana og snýr sér til annarra til að fá að vita, hvað hún á að gera. Yfirráð karl- manna notast við goðsögnina um móðureðlið til að styrkja valda- stöðu sína.“ Ef við viljum veita konum til- finningalega alla þá möguleika og það val, sem nútímalíf hefur að bjóða, verðum við að gera báðum kynjum kleyft að trúa þvi, að sum okkar, karla sem konur, langi til að annast litlar verur eins og ungbörn og að þetta sé öldungis óháð kyn- ferði hvers og eins. Og það þarf heldur ekki að vera í eðlinu. Við erum hugsanlega fædd með þeim ósjálfráðu viðbrögðum að taka upp grátandi ungbarn og hugga það, og kannski ekki, en það er hægt að kenna okkur. Það er alkunna að hugtakið „unglingur“ var ekki til fyrr en á jDessari öld. Á sama hátt er upp- hafning móðurhlutverksins, frum- bernskunnar og æskunnar einnig nútímauppfinning. Því er haldið fram i nýlegum bókum, að það hafi ekki verið fyrr en nægilega víðtæk- ur sigur hafði unnist í hinni hörðu baráttu fyrir lífsviðurværi, að þjóðfélagið hafði bolmagn til að verja nægum tíma, tilfinningum og peningum til að annast ung- börn. Dr. Aaron Esman geðlæknir spyr: „Hvers vegna flýta svo margar konur sér að verða mæður? . . . Ef ástæðan fyrir barninu er sú, að þær vilja halda í manninn sinn til að bjarga hjónabandinu — er það hörmuleg ástæða . . . Hvað eftir annað hitti ég konur, sem fóru á mis við margt í bernsku og gera sér í hugarlund, að þær ætli að gera fyrir sín börn það, sem móðir þeirra gerði ekki fyrir þær. Þær ætla að endurlifa bernsku sína gegnum barnið . . . en ,móðureðli‘? Við höfum engar sannanir fyrir því. Konur vilja verða mæður af marg- víslegum ástæðum; það er hluti af líffræðilegum kringumstæðum jieirra, J:>ar sem jjær hafa búnaðinn til jress, eitt af því, sem felst í því að vera kona, en ég vil ekki kalla jjetta móðureðli, ekki samkvæmt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.