19. júní - 19.06.1986, Page 2
LUXEMBORG
Dyr að töfrum
Evrópu
Flug til Luxemborgar fram og til
baka kostar frá kr. 13.350.* Þar
bjóðast einnig bestu bílaleigu-
verð í Evrópu: Bíll í viku á
aðeins kr. 61001*
Evrópustrætó Flugleiða - flugleiðin Kefla-
vík/Luxemborg - hefur ferjað þúsundir íslend-
inga til Findel flugvallar. Sumir halda strax
áfram ferðinni, aðrir dvelja lengur í Luxem-
borg. Þeir bera margt úr býtum.
Hvort sem þú unnir fögrum listum, eða
hefur lyst á góðum mat getur Luxemborg satt
þig. Hér er gaman að njóta útivistar í skógi-
vöxnu fjalllendi, skoða markverða staði og lifa
Ijúfu lífi á hótelum og gistihúsum.
Hertogadæmið Luxemborg heilsar gestum
sínum með hógværð og yndisþokka: Fagur-
grænir akrar, þróttmikill trjágróður, vínviðurinn
í hæðunum meðfram Mósel, lítið sveitaþorp
í þröngu gljúfri, kyrrlátt mannlíf í skjóli kastala
og kirkju. í Luxemborg kristallast menning
tveggja þjóða. Landið hefur sérstöðu sem þú
getur fært þér í nyt.
Við bjóðum þér bestu bílaleiguverð í
Evrópu!
* Verö miðað við PEX fargjald eftir 1. apríl 1986, og bílaleigubíll í B flokki.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Samband við söluskrifstofur í Lækjargötu, Hótel Esju og Álfabakka 10 í síma 690100.
Upplýsingasími: 25100
FLUGLEIÐIR