19. júní


19. júní - 19.06.1986, Page 52

19. júní - 19.06.1986, Page 52
Grein: Sigrún Harðardóttir Kvennasálfræði Liður í jafnréttisbaráttu Síðastliðinn áratug hefur orðið vart ört vaxandi hreyfingar innan sálfræð- innar, sem hefur verið kölluð kvenna- sálfræði. Síðan Freud hóf að mynda sér skoðanir og kenningar á uppbygg- ingu sálarlífsins hefur ríkjandi skoðun verið sú að konur nái ekki siðferðis- og einstaklingsþroska þeim sem karlar ná. Kenningar, tilraunir og rammar, sem fram hafa komið hjá sálfræðing- um af báðum kynjum, hafa rekist á að erfiðara er að gera rannsóknir og kannanir á stelpum en strákum, því að stelpur skekkja ævinlega myndina. Þessi vandi hefur verið leystur með neikvæðum hætti gagnvart kvenkyn- inu. I baráttu sinni fyrir jafnrétti lögðu kvenréttindahreyfingar lengst af mesta áherslu á að konur væru ekkert frábrugðnar körlum, og hafa hvatt konur til þess að taka upp starfsað- ferðir og hugsunarhátt karla. Nú er að koma fram það sem Betty Friedan, fyrrum forvígismaður kvenréttinda- hreyfingarinnar í Bandaríkjunum, hefur kallað annað stigið. í því felst viðurkenning á séreinkennum kvenna og rétti þeirra til þess að varðveita þau og hljóta viðurkenningu á þeim. Hér mun aðallega vitnað í bækur eftir tvær mikilsmetnar konur og eru bækur eftir þær lesnar sem námsefni í sálfræði í Bandaríkjunum. Annað gildismat Carol Giiligan er meðal brautryðj- enda í kvennasálfræði. Hún er kennari við Harvardháskóla í Bandaríkjunum, og aðalviðfangsefni hennar innan sál- fræðinnar er siðfræði. Þegar hún vann við kannanir á sið- ferðisgrunni fólks fór hún smám sam- an að gera sér grein fyrir því að sið- fræðilegt gildismat kvenna var frá- brugðið gildismati karla. Yfirmaður hennar hafði búið sér til ramma utan um kenningu, en konur féllu ekki inn í þennan ramma, svo að hann fór að útiloka kvenfólk í könnunum sínum. Gilligan fór hinsvegar að reyna að átta sig á muninum sem á milli væri. Hún vissi að þetta frávik kvenna frá hinu eðlilega var álitið vandamál, sem konur ættu við að etja á þroskaferli sínum. Hún gerði sér hinsvegar grein fyrir því að viðmiðunin væri ákvörðuð af karlmönnum og passaði aðeins fyrir karlmenn. í bók sinni In a Different Voice (Harvard University Press, 1982) rekur hún þetta svokallaða „þroskavandamál" kvenna til vanda- mála sem Freud átti við með að láta kvenfólk falla að kenningu sinni um Ödipusarduldina. Vandamál sem hann átti við að glíma með kenningu sína varð að vandamáli í þroska kvenna. Og það lýsti sér í því hvernig þær upplifðu samskipti við aðra. Hún nefnir síðan kenningar Nancy Chodorow þess efnis að þar sem stúlkur séu aldar upp af manneskju af sama kyni þurfi þær ekki að losa sig við samsömun sína við hana, en dreng- ir, sem eru það ekki, geri skýran grein- armun á móður sinni og sjálfum sér. Þannig verður samúð, skilningur og samsömun konum eðlilegri, en að- skilnaðurinn og einstaklingshyggjan körlum eðlilegri. Janet Lever heldur svo lengra og rannsakar muninn á leikjum stráka og stelpna. Hún dregur hinsvegar af rannsóknunum þann dóm að sam- keppnisandi og hæfileiki stráka fram yfir stelpur til þess að halda áfram leikjum þótt rifist sé um reglur þeirra sé hin „rétta hegðun“, en tilhneigingar stelpna til aö leika sér með fáum vin- konum og hætta leik þegar upp koma deilur telur hún „óæskilega hegðun". Drengir taka reglur fram yfir sam- skipti, en stúlkur þveröfugt. Erikson sem sett hefur fram vinsæla kenningu um þroskastig barna og ung- 52

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.