19. júní - 19.06.1986, Qupperneq 53
linga, á í erfiðleikum með að fá kenn-
ingu sína til þess að passa við stúlkur.
Einnig hann dregur þá ályktun að þær
hljóti að vera vanþroska, þar sem þær
hegða sér ekki samkvæmt kenningu
hans um aðgreiningu og einstaklings-
þroska á unglingsárum. Aðgreiningin
frá öðrum, sem er svo augljós hjá ung-
lingspiltum, gerist ekki hjá stúlkun-
um. Samt heldur hann fram algildi
kenningarinnar.
Síðan er vitnað í Piaget og Kohl-
berg, en báðir ganga út frá þroska-
stigum og siðfræði drengja í kenning-
um sínum.
Öðruvísi þroski
Gilligan telur að mikilvægi sam-
skipta, náinna kynna og umhyggju, sé
það sem konur skilji oggangi útfrá. Þró-
un þessarra hæfileika kvenna er jafn-
framt grundvöllur siðferðisþroska
þeirra. Þær ná að mati Gilligan öðruvísi
þroska en karlmenn, en allsekki óæðri
þroska. Siðfræði þeirra byggist á sam-
hengi samskipta manna í milli hverju
sinni, og hugmyndum um velferð
fólks. Karlmenn ganga út frá aðgrein-
ingunni, samkeppninni, ofbeldinu og
miða siðfræði sína viö sjálfa sig með
reglum til þess að forðá sér og öðrum
frá hinu óhjákvæmilega ofbeldi, og
sértækum, rökrænum lausnum.
Það er athyglisvert að í könnunum
sem gerðar voru á hugsunarhætti
kvenna og karla samskiptum og vel-
gengni. kom í Ijós ótti karla við náin
samskipti, sem gætu hugsanlega leilt
til svika eða frelsiskerðingar. Kven-
fólkið reyndist afturámóti óttast ein-
angrun, illvilja og öfund þá sem þær
fyndu fyrir í samskiptum, ef þeim
gengi vel í samkeppni og fengju háa
stöðu.
Út frá rannsóknum sínum myndar
Gilligan sér þá skoðun að þroski
kvenna fari þá leið að þær takast á við
hugtakið eigingirni sem sé í andstöðu
við ábyrgð og umhyggju fyrir öðrum.
Andspænis ákvörðununt, sem varða
það að taka á sig ábyrgð á eigin lífi,
velta þær fyrir sér hvort ákvörðunin
skaði aðra. Geri hún það er spurning-
in: ef ég læt aðra ráða til þess að særa
engan, skaða ég sjálfa mig? Og ef svo
er, þá verð ég að taka ábyrgð á ákvörð-
un, sem er annað tveggja eigingjörn
eöa ábyrgðarfull.
Með þetta í huga er auðvelt að sjá
fyrir sér hvers konar viðhorf ræður
hegðun kvenna í atvinnulífinu,
afstöðu þeirra til framhaldsnáms í
sambúð og með börn, og ákvörðun
þeirra gagnvart fóstureyðingum, svo
eitthvað sé nefnt.
Aðalatriði er hinsvegar hvort áfram
verði haldið að álíta þetta viðhorf til
lífsins, þessa siðgæðisvitund, nei-
kvæða og óæðri.
Jean Baker Miller er sálfræðingur og
brautryðjandi í sálmeðferð (psycho-
therapy) kvenna. Hún hefur lagt mikla
áherslu á að meðferð kvenna stefni
ekki að því að sýna þeim fram á að við-
horf þeirra séu neikvæð, heldur að
konur hljóti meðferð sem gangi út frá
réttmæti þessara siðgæðisviðhorfa.
Hún hjálpar konum til þess að skilja
eðli baráttu þeirra. Hún styður þær í
kröfunni um að fá að vera hvort
tveggja samvinnuþurfandi, samvinnu-
elskandi, og færar um að njóta vel-
gengni og taka að sér ábyrgðarfullar
stöður. IJún hjálpar þeim í óttanum
við einangrunina. Hún virðir hræðslu
þeirra við að elski þær enginn og
styðji, þá sé lífið einskis virði, en hún
reynir jafnframt að auka sjálfsvirðingu
þeirra. Hún hjálpar þeim að greina á
milli ábyrgðar þeirra sjálfra og
ábyrgðar karlmannsins í brostinni
sambúð.
Veikleiki karla -
Styrkur kvenna
Miller gengur út frá því að hræðsla
karlmanna við að viðurkenna ótta og
getuleysi sé veikleiki en ekki styrkur,
og að þvert á móti sé styrkur kvenna
falinn í því að viðurkenna slíkt, því að
það geri þær færari um að skilja aðra
og hjálpa þeim.
I bók sinni Towards a New Psycho-
logy of Women (Boston, Beacon
Press, 1976) ræðir Miller meðal annars
vandann út frá skiptingu valds. Meðan
konur eru undirmálshópur verður öll
sókn þeirra eftir auknu frelsi til þess að
vera þær sjálfar og bera virðingu fyrir
séreinkennum sínum, bæld af valda-
hópnum, þ.e. karlmönnum. Þær eru
undirmálshópur í þeim skilningi að
valdahópurinn telur eiginleika þeirra
neikvæða. Tilraunir kvenna til þess að
fá þessa eiginleika viðurkennda neyða
karlmenn til að horfast í augu við þá
sjálfir, takast á við þá, viðurkenna þá
og innlima í sálarlíf sitt. Slíkt er ógn-
vekjandi og karlmenn bregðast við
með ofbeldi af ýmsu tagi, jafnt póli-
tísku, andlegu, tilfinningalegu og
líkamlegu, opinberlega og inni á
heimilum. Engan skal undra að konur
óttist sjálfsábyrgð, sjálfstæði og vel-
gengni. Það er hinsvegar hlutskipti
þeirra í sókn eftir aukinni sjálfsmeð-
vitund að ógna valdastöðunni eins og
hún er nú. Barátta fyrir því að störf,
sem fela í sér umönnum annarra, verði
viðurkennd jafnrétthá öðrum, er ekki
launabarátta, heldur sjálfsvirðingar-
og sjálfstæöisbarátta kvenna.
Kvennasálfræði er liður í þessari
baráttu kvenna til jafnréttis. Hún er
mótvægi við einhliða dóm karlkyns
sálarfræðinga og þeirra kvenna sem
beygja sig undir áfellisdóminn yfir sið-
fræði kvenna. Hún staðfestir og styður
viðhorf sem karlar hafa fyrirlitið,
hefur þau upp til jafnrar virðingar.
Hún leggur áherslu á mikilvægi þeirra
fyrir afkomu mannkynsins. í persónu-
legunr skilningi veitirhún konum sjálfs-
virðingu og sjálfstraust í samfélagi,
sem byggt er af karlmönnum, fyrir
karlmenn og á grundvelli siðfræði og
lífsviðhorfa þeirra.
Nokkrir höfundar, sem fjalla um konur
í nýju ljósi eru:
1. Lillian Rubin. Worlds of Pain, New
York. Basic Books, 1976
2. Carol B. Stack. Allour Kin, New York,
Harperand Row, 1974
3. Georgia Sassen. Success Anxiety in
Women: a Constructivist Interpretation
of its Sources and its Significance, Har-
vard Educational Review 50, 1980
4. Bernard S. Robbins. “The Nature of
Femininity”, Proceedings of Symposium
on Feminine Psychology, New York
Medical College, 1950
5. Frank and Colleen Johnson. “Role
Strain in High Commitment Career
Women”, Journal of the American
Academy of Psychoanalysis.
6. Michelle Z. Rosaldo. “Women, Culture
and Society: a Theoretical Overview”, í
Women, Culture and Society, Stanford
University Press, 1974
7. Nancy Chodorow. “Family Structure
and Feminine Personality”, sama bók.
8. Sherry B. Ortner. “Is Female to Male as
Nature is to Culture?”, sama bók.
53