19. júní - 19.06.1986, Qupperneq 62
Viðtal:
Jónína Margrét Guðnadóttir
Elín tekur nú við aftur: „Við í fram-
kvæmdahópnum fórum strax í gang
með að leggja drög að úttektinni og í
nóvember ’84 var búið að ráða rit-
stjóra til þess verks, en til að hrinda
aðgerðum vegna ársins af stað lögðum
við til að settir yrðu á fót starfshópar
innan ’85-nefndarinnar er tækju að sér
ábyrgð einstakra verkefna. Þannig
urðu til fimm hópar; það var göngu-
hópur svokallaður og var hugmyndin
að hann sæi um einhvers konar boð-
göngu um landið allt í tilefni 19. júní,
síðan var listahópur er skyldi m.a. sjá
um listahátíð kvenna á árinu, þá
launa- og atvinnumálahópur, alþjóða-
hópur og fræðsluhópur sem m.a.
skyldi kanna málefni ársins í fjölmiðl-
um. í hverjum þessara hópa voru
ákveðnir tenglar í forsvari gagnvart
framkvæmdahópnum og héldum við
reglulega fundi með þeim lengst af.
Annars þróuðust þessir hópar á
ýmsa lund eftir því sem á árið leið og
verkefni þeirra breyttust. Þannig var
til dæmis fallið frá hugmyndinni um
göngu vegna 19. júní en sá hópur fékk
þess í stað það hlutverk að skipuleggja
fundi og hátíðahöld á þeim degi.
Launahópurinn átti í byrjun að fjalla
um ýmsa þætti atvinnulífsins og standa
að launakönnunum, en þegar til kom
varð verkefni hans að annast undir-
búning Kvennasmiðjunnar.
- Og hver voru svo verkefnin sem
ráðist var í og hvernig tókst til með
þau?
Það er Lára sem verður fyrir
svörum: „Mig langar nú fyrst að nefna
bréf sem undirritað var af öllum full-
trúum ’85-nefndar og sent ríkisstjórn
íslands þegar í okt. 1984 með áskorun
um að láta fullgilda sáttmála S.Þ. um
afnám alls misréttis gegn konum.
Hann var undirritaður fyrir íslands
hönd á kvennaráðstefnunni í Kaup-
mannahöfn 1980, en án fullgildingar
Alþingis var sáttmálinn ekki skuld-
bindandi hér á landi, en góðu heilli var
hann fullgiltur í júní á sl. ári.
Fall er fararheill
Þetta var byrjunin, en á sjálfu árinu
1985 var okkar fyrsta verkefni að
gangast fyrir baráttufundi um
launamál kvenna á alþjóðadegi
kvenna 8. mars. Það blés ekki byrlega
með samstöðu í nefndinni vegna þessa
fundahalds því að Samtök kvenna á
vinnumarkaði ætluðu einnig að standa
að fundi þennan dag, þrátt fyrir að þau
ættu aðild að ’85-nefndinni. Um skeið
stóðu yfir linnulausir samningafundir
til að forðast klofning, en niðurstaðan
varð samt sú að haldnir voru tveir
fundir í nafni kvenna. Okkar fundur
var í Háskólabíói og þessi ágreiningur
setti óneitanlega svip sinn á fundinn.
Margir héldu að með þessu væri
samstaða nefndarinnar rofin og klofn-
ingurinn riði henni að fullu, en svo
varð ekki, sem betur fer. Þarna kom
upp fyrsti og eini ágreiningurinn í
nefndinni, sem sumpart var af póli-
tískum toga, en upp frá þessu var sam-
starfið mjög gott og allir voru sammála
um að breiða yí'ir ágreininginn. Hér
sannaðist svo ótvírætt máltækið að fall
er fararheill.
Næsta verkefni á dagskrá var í
höndum alþjóðahópsins, sem tók að
sér að safna fé til að styrkja fræðslu-
verkefni í þágu kvenna í þróunar-
löndum á vegum World View Inter-
national Foundation. Fólst aðstoðin í
því að þjálfa innlendar konur í þróun-
arlöndunt til Iræðslustarfa meðal kyn-
systra sinna og var stefnt að því að
safna $5000 hér á landi. Elín Pálma-
dóttir, sem var tengill alþjóðahópsins,
vann ötullega að þessu verki, en úr
hópi okkar tók María Pétursdóttir að
sér umsjónina. Hún er sem kunnugt er
formaður Kvenfélagasambands íslands
og hún sneri sér til kvenfélaganna um
allt land. Það tókst að safna tilskilinni
upphæð með dyggu starfi margra og í
för sinni til Nairobi á Kvennaráðstefnu
S.Þ. í júlí afhenti María féð réttum
aðilum.
Hátíðahöld og gróðursetning
Samhliða þessu var svo í gangi undir-
búningur að aðgerðum vegna 19. júní
en einmitt í fyrra voru þá liðin 70 ár
frá því íslenskar konur fengu kosn-
ingarétt. Eins og Elín sagði áðan hafði
fyrst verið rætt um einhvers konar
kvennagöngu af þessu tilefni en það
varð svo úr að standa heldur fyrir há-
tíðafundum víða um landið og halda
aðalhátíðafundinn á Þingvöllum, eins
og tíðkast þegar mikið skal við haft.
Fundir þessir tókust vel, og á Þing-
völlum var hátíðleg stund í Bolabási
þar sem voru saman komnar í blíð-
skaparveðri konur af öllu Suður- og
Suðvesturlandi. ’85-nefndin bauð sér-
staklega til þessa fundar Elínu Brus-
gaard frá Noregi og ávarpaði hún
fundargesti á Þingvöllum.
Ekki var látið hér við sitja að gera
19. júní 1985 sem eftirminnilegastan
því að auk fundanna var líka hrundið
af stað gróðursetningarherferð að
undirlagi ’85-nefndarinnar. Hafði
María einnig umsjón með þessu verk-
efni af okkar háliu og var herlerðin
skipulögð með tilstyrk Kvenfélaga-
sambandsins. Var markmiðið að gróð-
ursetja eitt tré fyrir hverja konu í land-
inu og tókst bærilega vel.
Einstœð listahátíð
Pegar hér er komið samtalinu verður
blaðamanni á að spyrja hvort María
hafi þá séð um þetta allt saman fyrir
framk vœmdahópinn ?
„Nei, ekki er það nú alveg svo,“
segir Elín hlæjandi, „en það er svo
sannarlega ekkert smáræði sem hún
lagði af mörkum. En þær Lára og Sól-
veig fengu nú líka stórverkefni í sinn
hlut, sem var undirbúningur listahátíð-
arinnar, en það var eitt viðamesta
verkefnið hjá ’85-nefndinni. Undir-
búningur hófst formlega í maí undir
framkvæmdastjórn Guðrúnar Erlu
Geirsdóttur (Gerlu) en hugmyndin að
því að halda svona hátíð var til komin
töluvert áður í hópi listakvenna. Lista-
hópurinn ásamt þeim Sólveigu og
Láru vann svo sleitulaust með Gerlu
allt þar til hátíðin hófst með lúðraþyt
og söng þann 21. september.
Þegar ég lít til baka finnst mér þetta
hreint ótrúlega stórbrotið, því að það
voru ekki aðeins haldnar Iistsýningar í
nánast öllum sýningarsölum höfuð-
62