19. júní - 19.06.1986, Side 75
Augnablikið
HÉROGNÚ
Grein og myndir: Svala Sigurleifsdóttir
„... og skrifaðu um það hvernig þér
fannst að taka þátt í sýningunum á
Listahátíð kvenna,“ sagði ritstjóri
19. júní. Hæglega gæti ég sett það
„hvernigmérfannst" þetta í svo sem
tíu kafla og lagt undir skrifin allan 19.
júní og eitthvað af þeim tuttugasta -
en slíkt býðst ekki.
Þær sýningar sem ég tók þátt í voru
tvær. A llér ognú sýningunni á Kjar-
valsstöðum sýndi ég fjögur málverk og
á Ijósmyndasýningunni Augnablik í
Nýlistasafninu var ég meö fimm hand-
litaðar svart-hvítar ljósmyndir. Þessar
níu myndir á þessum veggjum í tvær
vikur voru þó bara brot af þátttöku
minni á Listahátíðinni, og fjöldamargt
annað kemur í hugann þegar ég hugsa
um Listahátíð kvenna.
Undirbúnings-
vinna fyrir Ijós-
iiivndasýninguna
Augnablik í
Nýlistasafninu.
Að naglfesta skýjaborgir
Ferlið frá því að farið var að ræða um
að gaman væri nú að halda stóra lista-
hátíð kvenna, þar til hátíðin var orðin
að raunveruleika, er það minnisstæð-
asta. Það var byrjað að plana lista-
hátíðina af hópi kvenna úr öllum list-
greinum sumarið 1984. Það voru
byggðarskýjaborgir, þá keyptir naglar,
hamrar fengnir að láni og spýtum
stolið í skjóli myrkurs. Síðan byrjað í
eftirvinnu að naglfesta skýjaborgirn-
ar. Stundum komu upp deilur um
hvernig arkitektúrinn væri í rauninni
og þá var unnið í hópvinnu að því að
leysa úr deilumálum. Reynt að ræðast
við í „bróðerni" en ef það dugði ekki
þá voru hnífarnir dregnir upp, rétt eins
og hjá körlum. Þær kvenlegustu báðu
þá guð að hjálpa sér.
Sagt er að úlfaldi sé hestur sem
hannaður hafi verið í hópvinnu. Þótt
benda megi á galla á Listahátíð
kvenna, eins og þann að vægi aldurs-
hópa á myndlistasýningunum hafi Frá Ijósmynda-
verið ungum konunt alltof mikið í hag, sýningunni í
þá gekk þessi hópvinna furðuvel. Nýlistasafninu.
Paklaust augnablik á reki
Ég tók rnikinn þátt í að undirbúa
ljósmyndasýninguna í Nýlistasafninu.
Mörg konan heldur vafalaust að það
hafi nú ekki verið flókið mál: Salurinn
pantaður, auglýst eftir myndum, sýn-
ingarskráin barin saman, verkin fest á
veggina og fréttatilkynningar sendar
út. Þannig var þetta líka í aðalatrið-
um, en að auki voru ýmis aukaatriði
sem á augnablikum uxu um allan
helming og varðveitast í minningunni
sem aðalatriði. Dæmi? Eitt kvöldið sat
ég niður á Vík við að vélrita textann í
75