19. júní - 19.06.1986, Qupperneq 78
Kvennaráðstefna
SAMEINUÐU WÓÐANNA
I lok febrúar 1985 skipaöi utanríkis-
ráöherra sendinefnd íslands sem fara
átti áþriðju kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna 15.-26. júlí (sama ár) í
Nairobi í Kenya.
Formaður nefndarinnar, Sigríður
Snævarr, var tilefnd af utanríkisráðu-
neytinu, en aðrar nefndarkonur voru
María Pétursdóttir, tilnefnd af Kven-
félagasambandi íslands, Guðríður
Porsteinsdóttir tilnefnd af Jafnréttis-
ráði, Gerður Steinþórsdóttir tilnefnd
íslensku fulltrúarnir fyrir framan Kcnyatta
Conference Center í Nairobi. Á myndina
vantar grcinarhöfund.
af félagsmálaráðherra og ég tilnefnd af
Kvenréttindafélagi íslands.
Verkefni sendinefndarinnar fyrir
ráðstefnuna voru fyrst og fremst að
safna saman upplýsingum um stöðu
jafnréttismála og meta árangur af
kvennaáratug SÞ hér á landi. Þessar
upplýsingar voru síðan notaðar þegar
samin var ræða, sem formaður sendi-
nefndarinanr flutti f.h. íslands á ráð-
stefnunni.
Fundur settur
Kvennaráðstefnan sem haidin var í
Kenyatta ráðstefnuhöllinni í Nairobi
hófst árdegis hinn 15. júlí með því að
forseti Kenya, Daniel Arab Moi setti
ráðstefnuna og aðalframkvæmdastjóri
S.Þ. Peres de Cuellar flutti ávarp.
Aðalræðu flutti Leticia Shahani, fram-
kvæmdastjóri ráðstefnunnar. Ræðu
sína byggði hún á svörum frá 129
aðildarríkjum SÞ um stöðu kvenna í
heimalandinu og árangur af kvenna-
áratugi SÞ. Hún sagði m.a. að árangur
áratugarins hefði ekki verið jafn mikill
og vonast hefði verið til í upphafi, þó
að mikilvægt væri að margar ríkis-
stjórnir og félagasamtök hefðu hafið
aðgerðir í þágu kvenna. Þá taldi Sha-
hani að af kjörorðum áratugarins jafn-
rétti - þróun - friður hefði mesti
árangur orðið á sviði jafnréttismála.
Að lokinni fundarsetningu var
Margaret Kenyatta kosin forseti ráð-
stefnunnar og að því búnu voru fluttar
kveðjur margra þjóðhöfðingja til ráð-
stefnunnar. Flutti formaður íslensku
sendinefndarinnar kveðju forseta
íslands, Vigdísar Finnbogadóttur.
Kveðjan vakti mikla athygli og var
lengi klappað á eftir.
Ráðstefnustörfin
Fyrir ráðstefnunni lágu tillögur að
framkvæmdaáætlun fram til ársins
2000, skjal upp á tæplega 200 blaðsíð-
ur. Auk þess lágu fyrir um 100 drög að
ályktunum í tengslum við ýmsar af
efnisgreinum framkvæmdaáætlunar-
innar.
Störf ráðstefnunnar fóru fram á alls-
herjarfundi og fundum tveggja megin-
nefnda sem héldu fundi á sama tíma.
Sjö dagar fóru í almennar umræður á
allsherjarfundinum, um þær framfarir
sem orðið hefðu á áratugnum og
hindranir sem stæðu í vegi fyrir settu
marki, þ.e. jafnrétti, þróun og friði.
Þar lluttu fulltrúar 153 ríkisstjórna,
samtaka og nefnda á vegum SP ræður
sínar. Nefndirnar tvær vörðu níu
dögum í undirbúning að framkvæmda-
áætluninni og drögum að ályktunum.
Sendinefndin okkar skipti þannig
með sér verkum að Sigríður fylgdist
með allsherjarfundum, Guðríður og
ég sátum í fyrstu nefnd og Gerður og
María sátu í annarri nefnd. Við byrj-
uðum alltaf daginn á sameiginlegum
fundi, þar sem rædd voru mál gærdags-
ins og það sem framundan var. Dag-
lega voru haldnir fundir vestrænna
rikja sem einhver okkar sótti alltaf, en
undir lok ráðstefnunnar reyndu Hestar
að sækja þessa fundi því þar var mik-
inn fróðleik að finna og túlkun á því,
sem gerst hafði, auk áætlana fyrir
næstu daga. Norðurlandabúar héldu
með sér nokkra l'undi og var Guðríður
fulltrúi okkar þar, auk þess sem hún
var eins konar blaðafulltrúi gagnvart
fjölmiðlum hér heima.
Eins og áður sagði skiptu fyrsta og
önnur nefnd með sér að fara yfir
drögin að framkvæmdaáætluninni og
var hver grein fyrir sig borin upp til
samþykktar. Ef ágreiningur var um
einhverja grein var hún send til samn-
inganefndar sem reyndi að miðla
málum og leggja greinina aftur fyrir
viðkomandi nefnd. í flestum tilvikum
var hún þá samþykkt, en þó fór svo að
samkomulag varð ekki urn nokkrar
greinar og var þeim þá vísað til alls-
herjarfundar.
Spenna í lofti
Lokafundur ráðstefnunnar hófst kl.
9.00 árdegis 26. júlí, þar lágu fyrir þau
78