Sólskin - 01.07.1953, Síða 48

Sólskin - 01.07.1953, Síða 48
hœli, kvaddi og var horfinn, óður en Ragnar hafði áttað sig fyllilega. Hann stóð kyrr og horfði á eftir henni. Svo hraðaði hann sér niður götuna að húsi Álfs og barði að dyrum. Álfur kom til dyra. Angandi steikarlyktin kom á móti Ragnari. „Nei, ert það þú“, sagði Álfur um leið og hann skotraði augunum feimnislega í kringum sig. Það mátti lesa afsökun úr augunum. „Gerðu svo vel og komdu inn. Ég verð ekki lengi. Pabbi kemur bráðum heim. Ég verð að hafa matinn til. Það tekur ekki langan tíma“. Ragnar gekk inn. Steikin snarkaði á pönn- unni. Lyktin angaði um allt húsið. „Álfur", sagði Ragnar. „Ég þarf nú að fara aftur. Ég kom bara til þess að spyrja þig, hvort þú vildir vera í marki hjá okkur, þegar við keppum við Vesturbœjarskólann í nœstu viku. Þú veizt, að Kjartan er veikur11. Álfur var allur með hugann við að velta fiskstykkjunum við á pönnunni. Hann svaraði því ekki alveg strax. En svo sneri hann sér að Ragnari og sagði brosandi: „Ætli maður reyni það ekki“. 46

x

Sólskin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.