Sólskin - 01.07.1953, Blaðsíða 55
skörð {m. C.), en krosslistar þessir þurfa að
vera stöðugir í grindinni, svo að þeir detti ekki
úr ó flugi. — Tvö X á 2. m. A, sýna hvar
krossinum er komið fyrir. Á sömu mynd eru
fjórar örvar, er sýna hvar bundið er utan um
grindina með 30 sm. millibili (sjá A). Þannig
er grindinni haldið saman. (Sjá einnig ör við
mynd B).
Grindin er síðan klœdd með sterkum pappír
eða þunnu og þéttu líni. Efnið þarf að vera
svo breitt, að hœgt sé að líma jaðrana að
innan verðu. Sýnt með strikalínum á 2. m. A.
— Að lokum er 80 sm. löng snúra bundin við
einn langlistann, þar sem krosslistarnir eru,
eða um 15 sm. frá hvorum enda haus. (Sjá
1. mynd).
Aðaltaugina á svo að festa við þessa snúru
og skal fœra festinguna til, þangað til drekinn
hefur náð eðlilegum flughalla. Seinlegt er að
setja grind drekans saman nema tveir vinni
saman að smíði hans. Sama gildir, þegar drek-
inn er settur á loft. Hali er ekki nauðsynlegur,
en gaman er að hafa málaða mynd eða
einkennisstafi og númer á drekanum.
Jón Pálsson.
53