Sameiningin - 01.11.1906, Side 5
2ÓI
lútersku kirkju—eöa eins og á ensku er kallað Organ Recital,
og' var hljóöfœrið nýja þar meö svo að kalla vigt. Á samkomu
Í>eirri voru leidcl fram ýms listaverk eftir viðrkennda meistara
á svæði músíkarinnar áheyrendunum til frábærrar nautnar. Dr.
Iv. D. Fletc'her, organisti við eina af hinum fremstu kirkjum
Winnipeg-bœjar, stó'ð fyrir hátíðarhaldinu, sem var heldr vel
sótt, þótt aðgangr fyrir fullorðið fólk kostað’i 50 ct. og fyrir
börn 25 ct. Tekjurnar af konsertinum voru um $175, og var fé
;það látið renna í þann sérstaka sjóð, seín í söfnuðinum hefir
verið myndaðr til hljóðfœris-kaupanna.
Organið er frá verksmiðju þeirra Casavant Bros. í St. Hya-
cinthe í Quebec-fylki, og verð þess 4 þúsundir dollara. Af þeirri
upphæ'ð skyldi fjórðungr borgaör bráðlega eftir að hljóðfœr'ið
væri afhent og sett upp í kirkjunni. Og var í organ-sjóðnum
eða í vísum loforðum til hans meira en þeim fjórðung næmi.
Hitt l>arf ekki að borga nema eftir hentugleikum safnaðarins.
Þetta er lang-mesta, fegrsta og fullkomnasta hljóðfœri, sem
nokkurn tima hefir sett verið í íslenzka kirkju.
------o-------
Hópr guðfrœðinga í Danmörk vinnr að því í félagskap að
gefa út rit, flest þýdcl af erlendum tungum, um gamla testa-
mentið og biblíu-'kritíkina’, með því markmiði að hnekkja
skaðsemdaráhrifum hálftrúar-kenninganna ritningunni viðvikj-
andi, sem til svo stórra nnrna liafa náð sér niðri í kirkjunni viða.
Þetta er þriðja árið síðan sú bóka-útgáfa hófst. Ritin eru frá,-
bærlega ódýr. Árgangr þeirra kostar með burðargjaldi að eins
2 krónur. ef ritin eru pöntuð frá afgreiðslustöðinni í Kaup-
mannahöfn áLykkesholmsallé 16—1). Hn hér í Vestrheimi geta
menn fengið rit Þessi til kaups frá Augsburg Publishing House
í Minneapolis, og þá kostar árgangrinn 60 ct. (að póstgjaldi
meðtöldu. Hinir clönsku titlar ritanna frá í hitt hið fyrra eru
þessir: Den förste Bibel af C. R. Conder, Profeten Daniel af
C. P. Caspari, Hebraisk Kritik af R. B. Girdlstone, 25 Aar paa
c n hebræisk Lærestol af J- Robertson; en ritanna frá í fyrra
þessir: Den höiere Kritik af Pentateuken af W. H. Green, Ivri-
tiken, dens Ret og Uret, af E. Rupprecht, Streiftog paa Bibel-
forsvarcts Omraade I JUrqhuart og KönigJ ; og frá þessu ári
(1906): Profeterne som Vidner af J. Robertson, og tvö önnur
rit, sem enn eru ekki komin út: Fra Stamme til Folk af Aage
Schmidt, og Streiftog paa Bibelforsvarets Omraade II.
Fyrirkomulag það á ferming ungmenna, sem tíðkazt hefir
að undr.nförnu í hinni lútersku rík'iskirkju Danmerkr, f.illnœg-