Sameiningin - 01.11.1906, Síða 10
266
.liann málið og bað daglega til guSs um liSsinni. Oft lá honum
viS aS efast um réttmæti áforms síns, og hann var hræddr itm,
æiS sér væri eigi full alvara og því kœmi engin hjálp. Þeim mun
lieitara baS hann guS aS leiðbeina sér. Um síSir hvarf allr efi
og hann sannfoerSist um, aS löngun hjarta síns var frá guð’i
Jvomin.
Árið 1710 gaf Egede út rit, er hann nefndi: „Tillögu um að
kristna Grœnland og mennta innbúana.“ \’inir hans urðu œfir
og vondir yfir uppástungu hans. Um hriS var hann á báðum átt-
um og einkum voru það tár og grátbeiðni konu hans, sem löttu
liann. Á þessari fre'istingar-tíS komu honum til hjálpar orðin í
10. kap. Matt. guSspj.: ,,Hver sem elskar föður eða tnóSur
meir en mig, sá er mín ekki verðr; og hver sem elskar son eða
dóttur meir en mig, sá er mín ekki verSr.“ — Litlu síðar snerist
liinni göfugu konu hans hugr og fylgdi hún bónda sínum upp
írá því eins og hetja í trúboSsstríðinu.
Hans Egede sneri sér fyrst til forstöðumanns hins konung-
ilega trúboða-skóla í Danmörku, og bað hann um hjálp, en féklc
'cnga áb.evrn. Þá ferða'Sist hann til Kaupmannahafnar ásamt
"i’ómasi von Westen, sem mestan þátt átti í trúboðinu á Lapp-
ilandi, og lögðu þeir máliS fyrir sjáJfan konunginn. En konungr
veitti Egede htla áheyrn. Þau hjónin létu þó eigi hugfallast;
trúin á fre’sarann og löngunin til að frelsa sálir mannanna
giörSu þau örugg. Árið 1717 lagöi Egede prestr mör embætt'i
•sitt. og fór meS konu og 4 börn að nýju til Kaupmannahafnar í
þeirr’i von, a'ð konungrinn og hinn konunglegi trúboöa-skóli
unyndi liðsinna sér. Hann bar enn mál þetta fram við konung,
;og talaði þá konungr í þá átt, aö sér geðjaðist vel að fyrirtœk-
inu, en hann gæti engan styrk veitt honum að sinni. LTpp frá
T»ví hugsaði Egede sér aS reiða sig eingöngu á hjálp guðs, -en
ckki hjálp manna. Hann báð enn heitar en áSr, og um síðir
fckk hann hjálp. Vinir fyrirtœkisins skutu saman 1800 kr. og
■sjálfr átti hann 600 kr. Með þessum höfuðstól afréð Egede
rítð leggja á stað í Grœnlandsferð. Konungr hét honum þá einn-
'i<r 600 kr. árslaunum úr ríkissjóði.
í Maí 1721 lagði Egede á staS meS fjölskyldu sína og fáa
menr. aðra á sk’ipi þvi, er nefndist „Vonin“, frá Björgvin til
Grœnlands. 12. Júní komu þeir í landsýn viS suðrströnd Grœn-
lands, en þar voru þá svo miklir ísar fyrir, að þeir komust í
mesta lífsháska. 24. Júní lá v'iS sjálft, að þeir biöi skipbrot, en
drottinn heyrSi bœnir þeirra, svo þeir komust úr hættunni. 3.
Júlí fundu þeir liöfn og náöu lendingu. Ferðin liafði staðið i 8
vikur. Egede komst brátt að raun um,áð landsbúar voru allt öðru-