Sameiningin - 01.11.1906, Side 13
269
l'ar stofnaSir tveir skólar til ag kenna Eskimóum. 1875 voru
þeir skólar sameinaðir. Kleinschmidt prestr gekkst þar fyrir
trúboöinu með miklum árangri har til hann dó 1886.
Árangr trúboðsins í Grœnlandi er h'etta: Eskimóar eru nú
kristnir menn, enda þótt danska trúboðsfél. haldi þar enn áfram
verki sínu. Söfnuðunum þar tilbeyra 8,000 manns. Hinn síð-
asti heiðingi var þar skírðr 1856. Allt landið má heita kristið,
nema byggð ein á austrströndinni, sem rétt ómögulegt er að
komast til. Þar búa um 500 manns. En einnig þangað eru
nú trúboðar komnir méð boðskapinn um frelsarann, svo allir
lunir grœnlezku Eskimóar geta nú trúað á Jesúm eins og vér.
FRÁ SÖFNUÐUNUM 1 MINNBSOTA.
Trúmálafundir: — Um miðjan Október var stofnað til trú-
málafunda hér í prestakallinu. Fengu söfnuðirnir séra Kristinn
K. Ólafsson til áð vera með á þeim fundum, ásamt heimaprest-
ir.um. Séra Kristinn kom hingað, ásamt frú sinni, 9. Október,
og dvalcli hjá oss hálfsmánaðar tíma. Fyrsta samkoman var
haldin fyrir söfnuðinn í Marshall, laugardagskvöldið 13. Okt.
Var þar áð lie’ita mátti hvert mannsbarn safnaðarins saman
konnð. Umtalsefni fundarins var bœnin. Tóku auk prestanna
og forseta safnaðarins, hr. Matúsalems Anderson, tvær konur
þátt í umrœðunum, þær húsfrú Elízabet Swanson og ungfrú
Þorbjörg Swanson, kennari í skólanum þar í bœnum. Næsta
dag, 14. Okt., var samskonar fundr haldinn í Vestrheimssöfn-
x\ði. Umtalsefni var þar guðsþjónustan. Tóku þar til máls af
hálfu leikmanna safnaðarins: Sigb. Hofteig og Sigm. Jón-
atansson. Tveir aðkomnir menn töluðu einnig fáein orð. Að
kvöldi sama dags var fundr í St. Páls söfnuði í Minneota. Var
þar einnig guðsþjónustan höfð að umtalsefni. Fundr sá var vel
sóttr. Tóku þar til máls auk kkrkanna: Bjarni Jones, Gunnar
B. Björnsson, Sigfinnr Pétrsson, og ekkjan Guðrún Sigurðs-
son. Þriðjudagskvöldið í sömu viku var aftr fundr i St. Páls
söfnuði og þá talað um bœnina. Töluðu þar úr hópi leikmanna:
Gunnar B. Björnsson, Jóh. H. Frost, Bjarhi Jones, K. S. Ask-
dal, Sigf. Pétrsson, Stefania Jones og Guðrún Sigurðsson. Enn
var trúarsamtalsfundr haldinn í St. Páls söfnuði næsta fimmtu-
ciag. Var það almennr funclr, en haldinn undir forustu Banda-
lagsms. Nav þar haft að umtalsefni kirkjulcg starfscmi unga
fólksins. Töluðu þar af hálfu safnaðanna og œskulýðs
Bandalagsins: Bjarni Jones, Jóh. H. Frost. Gústaf Anderson
c.g húsfrú Ella Benson. Yar nú ákveðið að halda vestr til Lin-
coln-byggðar og hafa þar fundi með söfnuðinum, en svo ömur-