Sameiningin - 01.11.1906, Blaðsíða 16
272
3. Sept., og var stofnað til þess af Jóhanni kaupmanni Hall-
dorssyni; hiö síðara að Otto, laugardaginn 8. Sept., hjá Sig-
fúsi Sigurðssyni, er lengi var í Mikley. Fjölda af gömlum
kunningjuin hitti eg við bæði joessi tœkifœri mér t'il mikillar á-
nœgju. Sumir af þeim höfðu áðr verið í minni éigin byggð,
Nýja íslandi. Skírnarsamsæti var einnig haldið hjá Stefáni
Daníelssyni a'ð Otto; en þar voru að eins nánustu ætt’ingjar.
Eftir guðsþjónustu í samkomuhúsi Álftvetn’inga sd. 26. Ág.
bar eg mál á það, hvort menn ekki vildi mynda söfnuð. Var
því vel tekið, og tjáðu nokkrir menn sig fúsa til að vera í þeim
félagskap. Fimm voru kosn'ir í nefnd til að semja frumvarp til
lrga. í nefndinni voru þeir Halld. Halldórsson, Jóh. Halldórs-
son, Halld. Eggertsson, Guðm. Breckmann, Kr. Breckmannn. Sú
nefnd hélt fund 5 húsi hr. Halldórs Halldórssonar að Lundar
mánudaginn 3. Sept. Safnaðarlagafrumvarp kirkjufélagsins
var lagt til grundvallar og var því að mestu leyti fylgt. Lengra
var málið ekki komið, þegar eg fór úr byggðinni; en eg vona
samt, að mál þetta hafi framgang, og að þessi safnaðarbyrjun
verði fyrsta sporið til varanlegar kirkjulegrar starfsemi. Mál
þetta á. ýmsa ágætismenn í byggðinni að vinum, og trúi eg því
staðfastlega, að blessun drottins hvíli yfir sameinuðu starfi
þeirra manna. E11 kirkjufélagið þarf að gjöra sitt bezta til að
hjálpa þessari góðu viðleitni. Enginn vafi er á því, að þeir,
scm vilja vera í þessum söfnuði, eru ákvéðnir í því að vilja vera
í kirkjufélaginu.
Ekki reyndi eg neitt til að stofna söfnuð í Grunnavatns-
byggðinni; en á sínum tíma verðr sú byggð með í hinu kristilega
starfi voru, og á hún til þess ýmsa góða menn.
Eg kom á einhverjum mesta annatíma ársins í byggðir
þessar, og gekk mér þvi verr að heimsœkja menn og hitta þá
heima en annars hefði orðið. En fólk gjörði sér það undan-
tekningarlaust áð skyldu, að greiða götu mína á allan möguleg-
an hátt. Sumir tóku sjálfa sig og hestana frá heyskapnum og
óku með mig fram og aftr um byggðina, þótt þeir ætti eftir tölu-
vert að heyja og grasspretta væri í rýrara lagi.
Únítarar hafa töluvert mikið revnt að starfa í byggðum