Sameiningin - 01.11.1906, Blaðsíða 32
288
ilinn“* faöfinnslurnarj aö ykkur, hrökkv'iö þá ekki undan og
fariö ekki aö hljóöa. 1 öllum bænum segið ekki, áð þið viljið
lieldur vera kræklingar alla ykkar æfi og bera væskilslega og
vi'ta ávexti, heldur en aö þola sársauka ofur litla stund, af
,,sn'iölinum“.
NÝIR LJÓSGEISLAR.
Bráðum er búist við að út komi Ljósgeislar II. Hinir fyrri
eru uppseldir. Þeir fengu ágætar viðtökur; enda var engin á-
stæða til annars en að taka þeim vel. Enn þá minni ástæða
verður til þess að taka nýju „Ljósgeisl'unum", sem nú eiga að
koma, öðru vísi en vel. Enda er eg viss um, að þeim verður
fagnað stórkostlega af öllum, bæði ungum og gömlum, þegar
þeir sýna sig. Eg tel það stórkostlegt happ fyrir okkur fs-
lendinga, að eignast önnur eins spjöld og þessi á íslenzku
handa börnunum okkar. Við höfum átt svo lítið af því tagi
handa þeim, og aldrei neitt jafn-fallegt. Þetta er ekkert
skrum. Þau munu bera sér sjálf vitni, spjöldin. Það eru lit-
myndir. Myndin öðruni megin, en lexían liinum megin, eins
og á fyrri „Ljósgeislunum“, en aðrar myndir og aðrar lexíur.
A’erðið er búist vi’ð að verði 15C., þegar 5 eintök eru tekin í
einu eða fleiri (52 spjöld i hverju éintakij, annars 20c. Pant-
anir ættu að sendast þegar til ritstjóra „Barnanna“. En borg-
unin verðr að fylgja þeim.
*) Verkfæri, sem lim er höggvið af með.
„Sameiningin“ kemr út mánaðarlega. Hvert númer tvær
arkir heilar. Verð einn dollar um árið. Skrifstofa 118 Emily
St., Winnipeg, Canada. „Börnin“—barnablaðið nýja—er sér-
stök cleild í „Sam.“, hálf örk. Addrcss ritstjóra „Barnanna“:
Selkirlc, Man. — „Börnin“ koma og út sérstaklega—og eru seld
fyrir 35 ct.
Hr. Jón J. Vopni er féhirðir og ráðsmaðr „Sam.“ og „Barn-
anna“.
Address: Sameiningin, P. O. Box 689, Winnipeg, Man.
Canaöq
Hr. Sigrbjörn Á. Gíslason í Reykjavík er aðal-umboðs-
maör „Sam.“ á íslandi.