Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1907, Page 4

Sameiningin - 01.01.1907, Page 4
324 hópi vorum ætti aö vilja hlynna aS. Samsöngrinn síöastliöiS sumar að Mountain meöan á kirkjuþingi stóö, sem séra H. B. Thorgrímsen stó'S fyrir, mælir svo vel með fyrirtœkinu, aö frekari meðmæiingar munu óþarfar. KRISTNIBOÐID 1 HEIDIN GJALÖNDUN U M. Eftir William J. Bryan. Þýtt úr blaðinu The Commoner. Copyright. I. í bréfum mínum áðr hefi eg að nokkru minnzt kristniboðs- starfs þess, sem verið er að vinna í Austrlöndum, og álít eg það mál svo mikilsvert, að rétt sé af mér að rita um það sérstakan jþátt, einkum fyrir þá sök, að frásagnir fer'ðamanna um það eru svo sundrleitar. Vér höfum átt fœri á að rannsaka verk hinna ameríkönsku trúboða í Hawaii, Japan, Kórea, Kína, Singapore, Lidlandi, Egyptalandi, Palestína og Tyrklandi. Hittum vér menn frá nærri því öllum kirkjudeildunum, þá er riðnir eru við aliar greinir missíónar-starfsins. Og varð niðrstaða athugana vorra sú, að áhugi vor glœddist á þeim framkvæmdum. I Hawaii hafa kristniböðarnir lagt undirstöðu þjóðmenningar þeirrar, sem nú er Þar í eyjunum og haft stór-mikil áhrif til góðs á þarlent fólk. í Japan hefir kristniboðsstarfið breiðzt út mjög fljótt, og er það rekið á ferfaldan hátt. Trúarkennarar halda fagnaðarboð- skapnum á lofti og mynda söfnuði. Skólakennarar vekja áhuga fólks á menntan og koma skólastofnunum á fót. Missíónar- læknar veita sjúklingum liknandi þjónustu og ryðja með því móti bæði prédikurunum og kennurunum braut. Þá eru þar og starfandi kristileg félög ungra manna og ungra kvenna, sem haldast í hendr, og draga þau kirkjulýðinn saman og gjöra úr honum samstœða og samvinnandi heild, þar sem ekki gætir neins sérkreddu-eðlis. Með því að almennings-frœðsla í Japan af hálfu ríkisstjórnarinnar hefir tekið svo bráðum framförum, þá ber nokkru minna á starfsemi missíónar-skólanna þar en ella myndi. í annan stað hefir og lyfjafrœði óðum breiðzt þar út, og er fyrir þá sök minna tekið eftir starfi missíónar-læknanna. En hins vegar liggr fyrir trúarkennurunum kristnu þar í landi eins mikið starfssvæði og samskonar mönnum í nokkru öðm landi. Japanar eru óðfluga að hverfa burt frá Búdda-trúnni,

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.