Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1907, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.01.1907, Qupperneq 11
stundum aS viöhafa svipaö orSalaof án alls tillits til þess, hvort þaö verör oss til vinsældar eöa hins gagnstœöa. Rétti'.ega bendir séra Friörik á Jónas Hallgrímsson seixi- bjart ljós í bókmenntasögu íslendinga og fyrirmyndarmann frá- bæran að bví er fagran og prúðan rithátt snertir. Engu að síðr gat hann verið all-óvæginn og haröhentr, bcgar því var að skifta. Þarf ekki annað en minna á fordœmingardóminn hans yfir rímnaskáldunum íslenzku. í fyrirlestrinum um „grjótkast" spyr séra Friðrik: „Hví> skyldu Únítarar og Lúterstrúarmenn hafa horn í síðu hvers annars?“ Þetta finnst oss undarleg spurning, og vér leiðuna. hjá oss að svara henni. Getr spyrjandi búizt við, að þeir tveiir flokkar renni saman í eitt? En svo segir hann skömmu síöari .„Flokkannir fara að verða býsna-margir. Það eru þjóðkirkjti- inenn og jpað eru fríkirkjumenn. Það eru heimatrúboösmenn- og aðventistar. Það eru andatrúarmenn. Og það eru loks þeir, er engu segjagt trúa. Margar fylkingar í li'ði svo litlu. Það er eigi til nokkurs hlutar að verða vondr út af því. En reyna mætti að draga fylkingarnar saman, kenna þeim öllum að verjast sameiginlegum óvinum, leggja undir sig lönd, sem enn eru ónumin, en hætta öl'.u grjótkasti. Mundu þeir þá eigi smám saman glejmia þeim smámunum, er þeim kann á milli aS bera, renna saman í þéttskipaða brœðrafylking?"—Þaðætti þá eftir þessu að eins að vera smámunir, sem flokka þá alla, er hér eru upp taldir, greinir á um. Getr séra Friðrik Bergmann* ef hann gætir vel að sér, haldið því fram? Má það teljast til' smámuna, hvort kristindómrinn er sannleikr eða hann er ósann- indi? — Þetta er sú breiðasta undirstaða til sameiningar breyti- kgra trúarskoðana, sem vér höfurn nokkurn tíma heyrt um getið. Óiíklegt, áð svona löguð samrunakenning geti komið aö tilæt'.uðum notum; enda er hún áð vorum skilningi alveg gagnstœð anda kristindómsins. , Þótt sitthvað höfum vér athugað við efni bókarinnar, hefir lestr hennar að mörgu leyti verið oss til ánoegju. Hún er viðast hvar skemmtileg. Málið jafnaðarlega mjög vel vandað. Léttr stýll og þýðr. Hún ber í því tilliti af flest-öllu, sem fœrt er í letr hér meðal Vestr-íslendinga. En prófarkalestr er ekki sem beztr, einkum í fyrra hluta kversins. Málgallar eru þar þó nokkrir. Þar til teljum vér önnur eins orð og „sports'.íf", ,,klúbbr“, „barlest" ,„upplag“, sem ann- ar eins hreinmálsmaðr og höfundrinn augsýnilega vill vera hefði átt að forðast. Sama er að segja um or'ðatiltœkið „um að gjöra“, sem hvað eftir annað kemr fyrir. Óviðfelldið er að>

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.