Lífið - 01.09.1936, Qupperneq 74
232
LÍFIÐ
ur réttarrannsóknirnar. Undraðist eg manngæði
hans og glæsimensku, en einkum þó lægni hans við
að fá vesalings ógæfubörnin til þess að opna hjarta
sitt og segja hug sinn allan.
Veit eg engan líklegri til þess en hann, að hafa
djúpsæjan skilning á eðli barna og unglinga. Fer
þar saman meðfædd skarpskygni í óvenjulegum
mæli og reynsla, sem fáum eða engum öðrum hef-
ir auðnast.
Ben. Lindsey farast svo orð: ,,Eg hefi starfað
um tíu ára skeið í afbrotabarnaréttinum. Eg hefi
þar haft til meðferðar þúsundir og aftur þúsundir
af drengjum, sem hafa bakað sér og foreldrum
sínum svívirðu og fylt líf sitt eymd og hörmung-
um, en engan hlut veit eg, sem svo mjög hefir orð-
ið orsök að ógæfu þessara drengja, eins og hina
andstyggilegu sígarettunotkun. Enginn heiðvirður
og hreinhjartaður, djarfur, drenglyndur drengur
reykir sígarettur“.
Yfirmaður siðbótarskóla fyrir afbrotadrengi í
Westboro Massachusetts segir: „Allir þeir dreng-
ir, sem sendir hafa verið hingað, hafa reykt sígar-
ettur“.
Yfirmaður afbrotabarnaréttarins í Washington
segir: ,,Á átta árum hefi ég haft undir hendi 16
þúsund afbrotabörn. Og það er oftast reglan, að
börnin, sem reykja sígarettur, eru afstyrmi líkam-
lega, andlega og siðferðislega veikluð“.
í Chicago voru 2402 sígarettureykjendur rann-
sakaðir, sem allir voru 1 barna- og unglingaskól-
um. Af öllum þeim sæg voru ekki nema 6%, sem