Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1953, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.03.1953, Blaðsíða 4
2 Sameiningin Hann er upprisinn Eftir Dr. theol SIGURGEIR SIGURÐSSON biskup Og hann segir við þær: Skelfist eigi; þér leitið að Jesú frá Nazaret, hinum krossfesta, hann er upprisinn, hann er ekki hér; sjá, þarna er staðurinn, þar sem þeir lögðu hann. (Mark. 16, 6). Sameiginlegur fögnuður grípur hugi allra íslendinga, þegar sólin eftir langa og dimma skammdegisdaga tekur að hækka á lofti og veita straumum sínum yfir byggð og bæ. Sólin boðar nýjan tíma, boðar vor. Ljósgyðjan er drottn- ing lífsins. Ungir og gamlir koma að fótum hennar í þrá og lotningu. í hennar faðmi vilja þeir dvelja. Þar brosir lífið við þeim. Hún leiðir inn í land bjartra vona, inn í land sumarsins; þar er hennar ríki og hennar veldisstóll. Hvenær eiga mennirnir í jarðardölum sameiginleg fagnaðarefni ef ekki á páskunum, sigur og sólarhátíðinni, er lífssólin bjarta rís og sendir geisla sína „of jörð alla?“ Hvaða fagnaðarhátíð getur verið meiri á jörðu en einmitt þessi, þegar sól eilífðarinnar rís yfir fjöllin, fjöll jarðlífsörðugleik- anna, og dreifir skuggunum, þessum mörgu skuggum sorg- anna, vonleysisins, bölsýnisins, sem oft hvíla svo þungt á sálum margra manna 1 þessum heimi. Hvenær er hægt að snerta og hrífa fagnaðarstrengina í sálum manna, ef ekki nú, þegar minnzt er þess, að lífið sigrar dauðann, þegar konungur lífsins gengur fram í upp- risuskrúðanum og mælir hin konunglegu orð til mannkyns- ins: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Páskamorgunn. Sólin skín líka hið ytra. Það er eins og geislarnir í hrífandi fögnuði og yndisfegurð séu að reyna að 'þerra tár þeirra, sem leið sína leggja út að gröf hins krossfesta, hins bezta vinar. Eins og þeir vildu ná alla leið inn í hjartað og vekja þar gleði, huggun og von. Raddir vorsins og lífsins hljóma allt í kring; fuglar syngja í lofti og fljúga fagnandi með léttum vængjatökum yfir höfði vegfarendanna, eins og þeir vildu segja: Þú eða þið eigið líka eitt sinn að fá vængi. „Horfum ei niður í harmanna þröngbýlu dali.“ Grátið ekki; horfið upp, upp í Guðs eilífu lönd. Blómin, þögul og fögur, vinna þennan morgun sitt fagra

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.