Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1930, Page 12

Sameiningin - 01.01.1930, Page 12
II) Starfsmál og viðhorf. Starfsmál í hvaða félagsskap sem er, krefjast þess að þeim sé haldið uppi meS vakandi áhuga. Þverri áhuginu verður erfitt fyrir með starfið, þó í sjálfu sér sé. það ekki neittt ofurefli. Ekki fer kristin kirkja varhluta af þessu lögmáli. Starf það, er hún hefir með höndum er hugsjónastarf. Meðan hugsjónin er nógu vakamli hjá þeirn, sem starfið hafa með höpdurn, má búast við að hún beri uppi starfið. En dofni yfir hugsjóninni, hlýtur starfið að líða. Eins ef hugsjónin verður eign einungis fárra í bili og á örðugt uppdráttar, tekur það oft frábæra þrautseigju fyrir þá fáu að gefast ekki upp, þó hugsjónin sé þeim mjög kær og þeir finni til þess hvílíkt tjón það væri, að kasta henni fyrir borð. Undir slíkum kringumstæðum koma fram mörg fegurstu dæmi upp á það að leggja sig fram í óeigingirni og af alhug fyrir málstað, sem mönnum er kær. Fyrir þann anda hafa stofnanir og málefni kirkjunnar dafnað og mörgu verið bjargað við, sem reynst hefir óviðjafnanlega dýrmætt. En i frjálsri kirkju, þar sem stjórn kirkjunnar er í raun réttri í höndum fólksins, er svo mikið undir því komið að hugsjónirnar, sem hera eiga uppi starfið, séu eign sem flestra. Annars má búast við því, að starfið deyji, þó það hafi gildi, vegna þess of fáir eru með. Mörgum finst þetta mjög einfalt úrlausnar. Meirihlutinn ráði og þannig sé hvað eina útkljáð. En hvergi þarf meirihluti að gæta sín betur að inisbeita ekki valdi en í kirkjunni. Þeir, sem starfi einhverju unna, þurfa að eiga umburðarlyndi með þeim, sem ekki sjá nauðsyn þess. Annars getur það hrundið þeim, sem ekki kunna að meta starfið enn þá lengra frá og gert >það ólíklegra að þeir nokkurntíma sjái gildi þess. Þeir, aftur á móti, sem ekki eru sannfærðir um gildi einhvers starfsliðs, þurfa að gæta var- úðar að ganga ekki of langt í því að hnekkja málefni og hugsjón sem öðrum er kær, þó þeir' sjálfir ekki geti verið með því af ráð og dáð. Annars má búast við, að hugsjóna-akur kirkjunnar verði sífelt fátækari og áhugamönnum fækki. Gætin framsókn og nær- gætið íhald þurfa að koma fram í starfsmálum, sem ágreiningur kann að vera um. Að þetta sé hugsjón, sem vakað hefir fyrir kirkjufélagi voru, finst mér sagati bera vitni um. Það hefir átt áhugamenn, sem lagt hafa inn á nýjar starfsleiðir, þó i fyrstunni hafi lið þeirra verið fáment. Þeir hafa þekt til þess að flest hugsjónamál byrja í minnihluta og hvíla oft lengur en skyldi á áhuga og dugnaði hinna fáu. Þeir hafa borið uppi málefnin, reynt að efla fylgið er

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.