Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1930, Page 30

Sameiningin - 01.01.1930, Page 30
28 sem bókina ritar, og lifandi starfandi kristni þarfnast þess að reiða sig í einlægni á handleiðslu guðs. Það er 'boðákapur þessarar bókar. Mun áframhaldi þessarar æfisögu ekki síður verða fagnað. Á Þorsteinn ritstjóri Gíslason miklar þakkir fyrir að eiga upptökin að því að þessar endurminningar eru skráðar. Skriftamál einsetumannsf: Sigurjón Friðjónsson, Aukreyrit Prentsmiðja Odds Björnssonar 1929. — Er þetta smárit eftir skáldið á Litlu-Eaugum í Reykjadal. Er efnið einræöur höf, um ýmsar þær gátur, er iífiö leggur fyrir alla rnenn, og setur fram þá lífsskoðun, er höf. hefir myndaö sér á grundvelli þeirra úrlausna, er hann hefir fengið. Hefir Sigurjón ekki verið talinn trúmaður, alment, en mjög hneigjast þessar hugleiðingar að eilífðarmálunum. AS vísu er honum tamara að ræða um “hið mikla og dularfulla’’ en beinlínis að nefna guödóminn. Er það reyndar tízka hjá all-mörgum á yfirstandandi tíS, að veigra sér við að' nota nokkur vanaleg orðatiltæki og þá allra sízt kristileg, þegar vikiö er að trúmálum. Augljóst er, að höf. hefir mikið hugsaS um þessi mál og hefir mjög leitandi huga. Margt er skarplega og vel athugað, og varla getur nokkur lesið svo þessi “skriftamál” að hann ekki finni til þess, að þau flytja margt, sem á rætur í boSskap nýjatestamentisins, þó með öðrum orðum sé það framsett. Ekki er þó Kristur nefndur í bóikinni, þó margt minni á kenningu hans. Hefir í ritdómi um bókina verið sagt að trauölega verði hún lesin nema aS minnast orðanna: “Knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða.” Er ekki nokkur vafi á því að höf. hefir færst mjög í átt til trúar og tilbeiöslu frá því sem áður var. Enda er þaö alltítt urn hugsandi nienn á yfirstandandi tíð, þó líka gæti hins gagn- stæSa. K. K. Ó. (Lauslega þýtt.ý í sumar er leið var Percy Weeks frá Dartmouth skóla leiötogi á tjaldstað drengja. Finst ihonum drengir ekki að eölisfari gefnir fyrir að tapa. Þeir séu of hreinskilnir til að láta, sem þeim falli aS verða undir, og sjaldan séu þeir á marga fiska, ef þeir ekki hafi ofurlitla tilhneigingu til aS gorta. Reyndar sé erfitt að skilja drengi, eins og alt, sem virðist einfalt í fyrstu. Er þetta dæmi: Á Bradfords tjaldstað í sumar voru tveir drengir, sagöi hann, sem réðu fyrir tjaldi númer sjö. Voru þeir képpinautar í íþróttum en allgóðir vinir engu að síður. Annar var nefndur Rauðtoppur— vegna háralits—en hinn Kolur. Mig nefndu þeir Houdini—hér þarf ekki að greina ástæðu til þess. Það var heiöursnafn, sem eg reyndi að kafna ekki undir.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.