Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 41
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
F
eðgarnir Carlos og Tumi
Ferrer taka báðir þátt í
Íslandsmóti kaffibarþjóna í
Smáralind um helgina. Þeir
keppa þó ekki hvor á móti öðrum
heldur keppir Carlos í flokknum
kaffi í góðum vínanda og Tumi á
Íslandsmóti kaffibarþjóna. Carlos á
titil að verja í sínum flokki frá því í
fyrra en Tumi er tvöfaldur Íslands-
meistari í fagsmökkun á kaffi. Ingi-
björg Ferrer, systir hans, er hins
vegar núverandi Íslandsmeistari
kaffibarþjóna en systkinin munu
þó ekki berjast um titilinn enda-
Ingibjörg á ferðalagi um Suður-
Ameríku.
Feðgarnir starfa báðir sem
kaffibarþjónar á Kaffitári en auk
þess stundar Tumi nám í ritlist
við Háskóla Íslands. Carlos segir
kaffiáhugann í sínu tilfelli eiga sér
djúpar rætur en hann var farinn
að drekka kaffi við þriggja, fjög-
urra ára aldur. „Ég bjó í Þýska-
landi fyrstu ár ævi minnar og þar
þótti eðlilegt að börn fengju kaffi út
í mjólkina sína líkt og hefur tíðkast
í sveitum á Íslandi um aldir. Sjálf-
um finnst mér ótækt ef börn eru
ekki farin að hella upp á um sjö ára
aldur,“ segir hann og hlær. Tumi
byrjaði að drekka kaffi með mik-
illi mjólk og sykri sjö ára en segir
það þó aðallega hafa verið til að
fá viðurkenningu hinna fullorðnu.
„Það var ekki fyrr en ég byrjaði að
vinna við þetta fyrir fjórum árum
að áhuginn kviknaði fyrir alvöru.“
Carlos hóf störf sem kaffibar-
þjónn síðastliðið haust. „Ég hef
alltaf haft gaman af því að elda
og útbúa kaffi og ákvað því að
spreyta mig á þátttöku í keppn-
inni.“ En hvernig fer hún fram
fram? „Ég hef átta mínútur til að
búa til tvo drykki, annan kald-
an og hinn annað hvort heitan eða
volgan. Lögð er áhersla á að það sé
jafnvægi á milli kaffis og vínanda
og að ferskleiki og gæði kaffis-
ins komi í gegn. Þá eru gefin stig
fyrir frumleika enda er leitast við
að drífa fagið áfram. Auk þess þarf
annar drykkjanna að tengjast land-
inu þar sem heimsmeistarakeppn-
in verður haldin en hún er í Hol-
landi að þessu sinni.“ Í fyrra var
keppnin haldin í Bretlandi og hafn-
aði Carlos í áttunda sæti. „Ég setti
saman drykk með tómötum, sykri,
papriku og chili og fyllti upp með
bjór. Tumi þarf hins vegar að útbúa
fjóra espresso og fjóra cappuchino
ásamt frjálsum drykk og hefur til
þess fimmtán mínútur.“
Keppnin í kaffi með góðum vín-
anda fór fram í gær en kaffibar-
þjónakeppnin stendur frá 13 til 17
á sunnudag. Nánari upplýsingar
er að finna á www.kaffibarthjona-
felag.is. vera@frettabladid.is
Feðgar keppa í kaffilist
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Feðgarnir Carlos og Tumi Ferrer keppa báðir á Íslandsmóti kaffibarþjóna um helgina.
Vefurinn Allir.is hefur að geyma hagnýtar upplýsingar
af ýmsu tagi. Þar er meðal annars að finna yfirgripsmikið
yfirlit yfir alls kyns afþreyingu sem er upplagt að kynna sér
á frídögum. Má þar nefna yfirlit yfir ferðaþjónustuaðila, fjöl-
skyldugarða, söfn, veitingastaði og útivistarparadísir.
!
!
"##$
$%
&
!#
!
!!
#
'
()* )
!)
+,)-.
Laugavegi 63 • s: 551 4422
Vorfrakkarnir
komnir
skoðið sýnishorn álaxdal.is
Mjúkir dagar
30% afsláttur af öllum handklæðum
Handklæðin eru ofin úr 100% Pima bómull
Stærð 70x140 áður 2.890, nú 1.990 kr
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Tilboðin gilda til 12. mars