Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 5. mars 2011
Rekstrarstjóri
Hjá iðnaðarráðuneytinu er laus til umsóknar staða
rekstrarstjóra.
Ráðuneytið fer með forræði á málum er varða nýsköpun,
iðnaðarmál, byggðamál, orkumál og ferðamál. Leitað er
að metnaðarfullum einstaklingi með góða samskiptahæfni
og getu til að takast á við krefjandi og áhugaverð
verkefni.
Rekstrarstjóri hefur umsjón með fjárreiðum, annast
gerð fjárlagatillagna og hefur eftirlit með framkvæmd
fjárlaga. Hann ber ábyrgð á bókhaldi, innkaupum og
hefur eftirlit með rekstrarkostnaði og þróun útgjalda.
Hann sér m.a. um launabókhald, starfsmannamál og
árangursstjórnunarsamninga við stofnanir ráðuneytisins.
Þá annast hann stjórnsýsluleg samskipti á sínu sviði við
önnur ráðuneyti, Fjársýslu ríkisins og Ríkisendurskoðun.
Rekstrarstjóri er næsti yfirmaður bókara og þeirra
starfsmanna sem annast almenna þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg
háskólamenntun sem nýtist í starfinu.
Starfið krefst:
• Sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfni.
• Færni og lipurðar í mannlegum samskiptum.
• Góðrar kunnáttu í íslensku og ensku og skilnings á
einu Norðurlandamáli.
• Færni í að tjá sig í ræðu og riti.
• Góðrar tölvukunnáttu.
Um er að ræða fullt starf og eru launakjör samkvæmt
kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Konur jafnt sem
karlar eru hvött til þess að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Skarphéðinsson,
ráðuneytisstjóri, í síma 545 8500.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu berast iðnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli, 150
Reykjavík, eða í tölvupósti á póstfangið postur@idn.stjr.
is eigi síðar en 18. mars nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Starfsmaður í móttöku
Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS auglýsir
lausa stöðu starfsmanns í móttöku. Um er að ræða
75% starf og verður unnið á vöktum. Viðkomandi
þarf að búa yfir sveigjanleika, almennri tölvuþekkingu
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfið felst í almennum móttökustörfum, símavörslu
og skráningu á göngudeild.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi SFR og
fjármálaráðherra.
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má
finna á heimasíðunni: www.reykjalundur.is
Upplýsingar um starfið veita Lára M. Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar (laras@reykjalundur.is)
og Guðbjörg Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri
(gudbjorg@reykjalundur.is).
Umsóknarfrestur er til 15. mars. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf hið fyrsta.
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS.
Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is