Fréttablaðið - 05.03.2011, Page 78
5. mars 2011 LAUGARDAGUR46
krakkar@frettabladid.is
46
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Nokkrir ferðamenn voru að skoða bein af risaeðlum á safninu.
Einn þeirra gekk að safnverðinum og spurði: „Getur þú sagt mér
hvað þessi snareðlubein eru gömul?“ „Þau eru 3 milljóna, 4 ára
og 6 mánaða gömul!“ „Hvernig getur þú verið svona nákvæm-
ur?“ spurði ferðamaðurinn. „Sjáðu til, þegar ég byrjaði að vinna
hérna voru þessi bein þriggja milljóna ára gömul og það var
fyrir 4 árum og 6 mánuðum,“ svarar vörðurinn. Elvar Fossdal, 8 ára.
Einu sinni voru tveir menn sem hétu Við og Loft. Einn daginn
fóru þeir í vinnuna sína. Loft var duglegri í vinnunni. Við var svo
öfundsjúkur að hann batt Loft upp á staur. En svo kom stjórinn
og hleypti Lofti og rak Við. Aron Örn Arnarson, 8 ára.
Hvað ertu gamall?
Ég hef ekki athugað það nýlega
– en ég er ekkert mjög gamall
og ekkert sérstaklega ungur.
Sefurðu stundum í skónum?
Það hefur komið fyrir. Ef
vinir mínir í Latabæ eru eitt-
hvað að bralla er alltaf gott
að vera tilbúinn ef ég þarf að
hjálpa þeim. En oftast sef ég án
þeirra.
Ferðu stundum í fýlu?
Ég prófaði það einu sinni. Það
voru leiðinlegustu fimm sek-
úndur sem ég hef upplifað.
Græturðu einhvern tíma?
Já, stundum, ef ég meiði mig
mikið þá koma nokkur tár. Það
er sko allt í lagi og mér líður
alltaf betur á eftir!
Hvað er það besta sem þú
hefur gert?
Ég held að það hafi verið þegar
ég ákvað að vera kyrr í Latabæ
og hjálpa til.
Hvað fannst þér skemmtileg-
ast að læra í skólanum?
Mér fannst leikfimi skemmti-
legust og að sjálfsögðu lestur.
Það er hægt að finna svör við
öllu í bókum og þá er eins gott
að kunna að lesa!
Hvað þarf maður að
æfa sig lengi til að
geta staðið á annarri
hendi?
Ég þurfti að æfa mig
mjög, mjög lengi. Fyrst
er gott að æfa sig að
standa á báðum hönd-
um að sjálfsögðu.
Síðan getur maður
byrjað að lyfta ann-
arri hendinni frá
gólfi mjög snöggt.
Ef maður æfir
sig daglega er
þetta fljótt að
koma.
Áttu marga vini?
Já, ég er svo heppinn að eiga
fullt af vinum. Veit ekki einu
sinni hversu marga. Til dæmis
lít ég á alla krakka á Íslandi
sem mína bestu vini!
Hvernig leikir þykja þér
skemmtilegastir?
Mér finnst allir boltaleikir
alveg frábærir. Til dæmis fót-
bolti og körfubolti. Síðan förum
við oft í mjög skemmtilega úti-
leiki í Latabæ eins og Yfir, Fall-
in spýta og Skotbolta.
Ferðu stundum upp á fjall?
Stundum lendi ég loftskipinu
mínu upp á fjöllum og stund-
um fer ég í fjallgöngur. Það
er fátt eins skemmtilegt og að
standa á toppnum á fjalli sem
að maður hefur klifið; þá líður
manni eins og sönnum sigur-
vegara.
Hefurðu búið til snjóhús?
Hvort ég hef! Það er eitt það
skemmtilegasta sem ég geri
þegar það er mikill snjór úti.
Ég hef búið til mörg snjóhús
með vinum mínum úr Latabæ.
Stundum eru þau pínkulítil og
stundum eru þau risastór!
Ertu sterkari en Súpermann?
Ég hef nú aldrei hitt hann, en
ég held alveg örugglega að
hann sé sterkari en ég. Ég sá
einu sinni mynd af honum í bók
þar sem hann var að fljúga með
heilan bíl í fanginu! Ég gæti
það nú aldrei.
Hver er þín mesta hetjudáð?
Ég hef nú aldrei hugsað um
það sem ég geri sem einhverj-
ar hetjudáðir. Solla vinkona
mín sagði mér samt einu
sinni, að það hefði
verið mjög hetjulegt
hjá mér þegar ég
hætti í miðju kapp-
hlaupi við Glanna
Glæp til að bjarga
Stínu Símalínu. Það
var einmitt þannig
sem þau föttuðu
að ég var alvöru
Íþróttaálfurinn
– en ekki Glanni
sem var bara í alveg
eins búningi og ég.
Það skiptir nefnilega
ekki alltaf öllu máli að
vinna, heldur að gera
það sem er rétt.
LEIDDIST AÐ VERA Í FÝLU
Íþróttaálfurinn hefur bara einu sinni farið í fýlu og það voru leiðinlegustu fimm
sekúndur sem hann hefur upplifað. Það kemur ekki á óvart að íþróttir voru uppá-
haldsfagið hans í skólanum því boltaleikir eru það skemmtilegasta sem hann veit.
Nafn og aldur: Heiða Ósk Ólafsdóttir,
12 ára frá því í febrúar.
Í hvaða skóla ertu? Laugarnesskól-
anum.
Í hvaða stjörnumerki ertu: Ég er
vatnsberi.
Áttu happatölu? Já, 5.
Helstu áhugamál/hvað gerir þú í
frístundum? Fótbolti og að vera með
vinum.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Medium.
Besti matur? Sveppasúpan hans
pabba.
Eftirlætisdrykkur? My Secret.
Hvaða námsgrein er í uppáhaldi?
Íslenska.
Áttu gæludýr? Nei,
ekki núna.
Skemmtilegasti
dagurinn og af
hverju? Áramótin.
Þá er svo mikið fjör.
Eftirlætistónlist-
armaður/hljóm-
sveit? Justin Bieber.
Uppáhaldslitur?
Svartur, blár og grænn.
Hvað gerðirðu í sumar? Fór í útilegu
til Akureyrar.
Skemmtilegasta bók sem þú hefur
lesið? Aþena, hvað er málið með Haítí.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert
orðin stór? Það veit ég ekki.
Heiða Ósk Ólafsdóttir
PBSKIDS.ORG/LIONS/ er lifandi og skemmtileg vefsíða fyrir krakka,
með sérstaklega stórt safn af myndum til að prenta út og lita.
Það skiptir
nefnilega ekki
alltaf öllu máli að
vinna, heldur að gera
það sem er rétt.
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.