Sameiningin - 01.04.1925, Blaðsíða 3
antftmitjjttt.
Mánaðarrit til stuðnings kirftju og hristindómi íslendinria.
gefiff út af hinu ev. lút. kirkjuf&agi ísl. í Vestrheimt
XIj. árg'.
WINMPEG, APRfl/ 1925
Nr. 4.
Kirkjuþing 1925.
Fertugasta og fyrsta ársþing Hins evangeliska lúterska
kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi verður sett t kirkju Selkirk-
safnaðar í Selkirk t Manitoba, fimtudagirm 18. júní 1925. Þing-
setningar-guðsþjónusta með altarisgöngu byrjar kl. 7 að kvöldinu.
Sœti eiga á þinginu prestar og embœttismenn kirkjufélagsins
og kosnir erindrekar safnaðanna. Skrifleg vottorð eða kjörbréf
eiga erindrekar að leggja fram frá söfnuðum sínum, er sýni, að
þeir tilheyri þeim söfnuði, er þá hefir kosið, og að kosningin
hafi farið fram á lögmœtum safnaðarfundi. Söfnuði, er telur
100 fermda meðlimi eða þar fyrir innan, er heimilt að kjósa einn
erindreka. Söfnuði, er telur meir en 100 fermda meðlimi og alt
upp að 200, er heimilt að kjósa tvo erindfeka. Söfnuði, er teluf
meir en 200 og alt upp að 300 fermda meðlimi, er heimilt að
kjósa þrjá erindreka. Söfnuði, er telur yfir 300 fermda með-
limi, er heimilt að kjósa fjóra erindreka, en fleiri en fjóra má
enginn söfnuður kjósa.
1 nœsta tölublaði Sameiningarinnar birtist nánari upplýsing
um það, sem fram fer á þinginu.
Dagsett a6 Mountain, North Dakota, '201. apríl 1925,
K. K. OLAESON,
íorseti kirkjufélagisins.