Sameiningin - 01.04.1925, Blaðsíða 25
119
sjóð, er nam nokkrum hundruöum dollara. Annaö kveðjusam-
sæti var haldið í Glenboro næsta dag. Frá Baldur lögðu þau af
stað fimtudaginn næstan á eftir, 16. apríl, alfarin frá Argyle,
og hafði séra Friðrik þá þjónaö Argyle-söfnuðunum samfleytt
í nærri 22 ár.
f Winnipeg dvaldi séra Friðrik og fjölskylda hans þar til
miðvikudaginn 22. apríl. Prédikaöi hann í kirkju Fyrsta lút-
erska safnaöar sunnudags-kvöldið 19. apríl. En mánudags-
kvöldið, 20. apríl, var kveðjusamsæti haldið í fundarsal kirkj-
unnar. Gekst fyrir því forseti og framkvæmdarnefnd kirkju-
félagsins. Settist þar við veizluborð um 230 manns. Ræður
voru fluttar og söngvar sungnir. Stýrði forseti, séra K. K.
Ólafsson, samkomunni. Fært var séra Friðrik aö gjöf gull-úr
með gullfesti 0g blýanti. Voru það gripir góðir. Frú Hall-
grímsson var gefinn blómvöndur. S'á, er séra Friðrik afhenti.
gjöfina, bar fram ávarps-orð þau, er hér fara á eftir. í sam-
komulok flutti séra Friðrik hugönæma ræðu og þakkaöi fyrir
sig og sína.
Séra Friðrik siglir frá New York 30. apríl. Dvelur hann
nokkurn tíma í Kaupmannahöfn á heimleiö. Til Reykjavíkur
býst hann við aö koma í lok maímánaðar. Honum og fjöl-
skyldu hans fylgja blessunar-óskir allra Vestur-íslendinga.
AVARP.
Séra Friðrik Hallgrímsson!
Þú hefir verið starfsmaður í kirkjufélagi voru á þriðja tug
ára. Alla þá tíö hefir bú þjónað einu stærsta prestakallinu ís-
lenzka vestan hafs af mikilli trúmensku, og hefir það starf þitt
borið blessunarríkan ávöxt.
í tuttugu ár samfleytt hefir þú gegnt skrifara-embætti i
kirkjufélagi voru. Sú embættisfærsla þín hefir verið meö
þeim hætti, að viðbrugðið er fyrir snildar sakir. Hafa oft hlað-
ist á þig margskonar störf í þarfir félagsins og hefir þú leyst
þau öll af hendi með mikilli vandvirkni.
Allir þeir, sem meö þér hafa starfað í kirkjufélaginu, minn-
ast með aödáun Ijúfmensku þinnar og þýðleik í samvinnu. Þú
hefir í hvívetna verið skapbætir manna og kveikt ljós gleðinnar
í félagsskap vorum. Slíkir menn, sem þú ert, eru alt of fáir,
og megum vér varla við því, að missa þig úr vorum hóp.
Nú hefir þér hlotnast sú .sæmd, að vera kvaddur til prests-
embættis við dómkirkjuna í höfuðstaö íslands. Vér samfögn-
um þér yfir þeirri sæmd og árnum þér Guðs blessunar í þeirri