Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1925, Side 15

Sameiningin - 01.09.1925, Side 15
269 sögum átti Sardanapábes Assýríukonungur að hafa. reist borg- ina fyrstur inanna. H'ann var alræmdur sælkeri. Sagt er aS standmynd af honum ha.fi verið sett upp i Tarsus, með þessari áletrun á fótstallinum: “Etið, drekkiö, gleðjið yður ; annað er einskis vert.” Og sjálfsagt hefir sú lífsskoðun haft mikinn þorra borgarlýösns á sínu bandi; hún er vön aS setjast í önd- vegið, þegar trúarbrögðunum hnignar. ÞaS máttu Gyðingar eiga, hvað sem annars má segja um þröngsýni þeirra, trúardramb og einangrun, aö þeir héldu sig að miklu leyti utan við veraldarsoll. Fékk því Páll í uppvextinum réttan og hollan skilning á hinni glitrandi heimsmenning þeirrar tíðar; hann lærði að; sjá í gegnum grímuna. Ummæli hans um heiSindóms-spillinguna (Róm. i, 18-32) og um léttvægi verald- legrar speki (I. Kor. 1, 18-25) sýna það ljóslega, að hvorki sið- fágun, listmenningu, hátíðaglaumi, skólamentun eða háværum og glysmiklum 'helgisiðum þeirrar aldar hafði tekist að glepja postulanum sýn í (þessum efnum. Einmitt af því að Páli var ékki gjarnt að láta töfrast af yndi augnanna, þá gat ha.nn þeim mun betur séö og skilið andlegu meinin, í mannlífi sinnar tíðar, og metið lækninguna a.ð verðugu. ÓfuUkomleikinn — ef gáfna- einkenni þetta má kallast því nafni — veitti honum þrótt andans óskiftan til verksins, sem honum var ætlað af Drotni. Annan lærdóm, sem kom í góðar þarfir síðar meir, mun Páll hafa öðlast í uppvextinum þar í Ta,rsus. Hann hlaut að komast í allnáin kynni, persónulega, við heiöna menn. Óhugur hans á synd og spi'lling heiðindómsins var naumast látinn bitna á fólkinu sjálfu •— eins og oft átti sér þó stað um ofstækis- fulla Gyðinga. Æjfsaga Páls iber það með sér, að hann haföi ■snemma lært að umgangast Grikki og Rómverja; ihann va.r nær- gætinn um trúarhugsun heiðingja, æðri og lægri, þvingunar- laust; gat flutt þeim náðarboðskapinn imeð því afli, að fjölda- margir af heiðnu fólki tóku trú.1 Mentaða menn og hátt setta, eins og landstjórana Sergíus Pál, Felix, Festus og Agrippu. ekki síður en undirforingjana rómversku, fékk hann laðað aö sér með orðræðum sínum og umgengni. Hefði honum að eðlisfari verið mjög áfátt í þessum efnum, þá hefði hann varla getað orðið það sem hann varð, heiðingjapostulinn mikli. Á Gyðingalandi var þjóðernisdrambið, einangrunina og ofstækið gegn öllum útlend- ingum í algleymingi. Naumast gat því Páll fengið; þennan sér- staka undirbúning undir æfistarf sitt á vegum rabbínanna. í Jerú- salem. En í Tarsus, eins og víða annars staðar í dreifingunni á meðal Grikkja og Rómverja, voru Gyðingar hvergi nærri svo

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.