Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1925, Blaðsíða 23

Sameiningin - 01.09.1925, Blaðsíða 23
277 neiti ljósum staÖreyndum. Auövitað er þetta ekki vísindalegt og ekki ráSvandlega að fariö. Enginn, sem vill fræSast í einhverju efni, neitar aÖ taka til greina. ljósar staSreyndir og verSmæti þeirra. Þó er þetta gert af mörgum í trúarlegum efnum. Sann- leikurinn er, aÖ einungis í trúarlegum efnum fer nokkur þannig aS. Enginn hefir neitaS tilveru rafmagnsins, með hita þess, ljósi og krafti, vegna þess leyndardóms, sem þaS er huliS jafn- vel spekingum eins og Edison og Marconi. Þvílík afstaÖa get- ur aldrei skoÖast sem réttmæt eÖa heiSa.rleg. Af þessu fylgir, aS vér þurfum ekki aS geta gert oss fulla grein fyrir veruleik þess. Vér getum orSið þess vör, sem vér ekki getum gert oss fulla grein fyrir. Um þaS getum vér lika verið vissir í reynslu vorri, sem vér getum ekki gert fulla grein fyrir. Rafmagn er aftur dæmi. SKk fullvissa er algjörlega skynsamleg á öllum sviSum. Þess verSum vér lika vör í trúarlegri reynslu. Margir eru vissir í sinni sök í trúarlegri reynslu, ’þó iþeir geti ekki fyllilega útskýrt hana, sérstaklega fyrir þeim, sem gjörsamlega eru ó- kunnugir þeirri reynslu. ÞaS væri jafn erfitt að útskýra raf- magniS fyrir þeim, sem engan gaum hefir því gefiö. MeÖ þessa aðferS vísindanna í huga, viljum vér leggja á- herzlu á þaÖ, að merkilegasta staðreynd tilverunnar er lífiS. Lika er lifiS mesti leynd'ardómur tilverunnar. En tilkomumesta líf í sögu heimsins er líf Krists. HvaÖ heimilar þá aðferS vís- indanna, aS afstaSa vor sé af honum? SvariÖ er ljóst: Vér verðum aS kannast viÖ líf Kri.sts, þrátt fyrir leyndardóm þess. Vér verðum að taka fyllilega til greina þau undrunarfullu áhrif, sem kenning og persóna hans hafa haft og hafa enn á mannlegt líf. Vér verSum aS halda áfram aS hagnýta oss alla Iþá möguleika, sem líf Krists opnar fyrir oss, og þrengja oss þannig nær leyndardóminum. Þannig komumst vér i rétta af- stööu gagnvart honum, og eignumst meir og meir af því verÖ- mæti, sem sú afstaSa veitir. — Þetta er vísindaleg hugsun, heimfærS upp á æðstu verSmæti mannlegs lífs. ('La.uslega þýddir eru þessir tveir kaflar úr Öók dr. Howard Agnew Johnston, Scientific Thinking for Young People. — Höf. er leiðandi kennimaður í Chicago—President of Chicago Church Federation.) K. K. 6.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.