Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1925, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.09.1925, Blaðsíða 32
286 ísfirðingar tóku prýöilega á móti Grænlendingunum; skógarför, kaffiveitingar, bíó-sýningar o. fl. var haft til skemtunar þessa 3 ,daga, sem skipiö .stóö viö, en börnum og klæðlitlum gefnar1 ýmsar gjafir. Grænlendingunum höfðu ekki komi'ö slíkar viðtökur í hug, og voru glaðir eins og börn. Einn þeirra var mest forviöa 4 að sjá “mennina riða á stóru hundunum.” Hann haföi aldrei séð neina aðra ferfætta skepnu en hunda. Aörir undruðust þó enn meira aö sjá bifreiðarnar, “aö vagnar skuli geta runnið áfram, þegar enginn dregur þá — það er nokkuð skrítið.” Þegar skipið hélt af stað, hrópuðu Eskimóar ein-um munni: G. L. — Bjarmi. “Gujenak” eða “þökk fyrir.” Frá Jóns Bjarnasonar skóla — Skólinn byrjaði starfsár sitt 22. sept. Voru þá komnir 23 nemendur, -en síðan hefir þeim fjölgað, svo að við mánaðamótin eru þeir orðnir 35. í miðskóladeiklunum -eru 25, en í 'háskóla ýCollegeý deildunum tveimur eru 10 (7 í fyrsta bekk og 3 í öðrum bekk). í þá deild eru væmtanlegir fimm i við- bót (3 í fyrsta bekk og 2 í annan bekk). Kennarar eru tveir þeir sömu og áður, séra Hjörtur J. Leó, skólastjóri, og Miss Salóme Hailldórsson. Tveir kennarar eru nýir, M'r. Eastvold og Miss Geir. Frá Fyrsta lúterska■ söfnuði í Winnipeg. —< Heimiboð frábær- lega myndarlegt þáði söfnuðurinn hjá kvenfélagi safnaðarins í fundarsal kirkjunnar 9. sept. Var þá fólk aftur heimkomið úr sum- ar-dreifingunni og kirkjulegt starf hafið af nýju með fullu fjöri. Var samkonia þessi nokkurs konar “heimkomu-hátið” Og hin á- nægjulegasta í alla staði. Ræður voru fluttar og söngvar sungnir og notið ágætra veitinga. Voru al'Iír kvenfélaginu þakklátir og sammála um það, að vel væri það til fallið, að byrja vertíðina með svo glaðri stund. Djáknar safnaðarins héldu samkomu til arðs fyrir Iiknarstarf safnaðarins 17. sept. Elutti séra Rúnólfur Marteinsson þar vand- aða ræðu. Söngur var þar og hljóðfærasláttur. Inn komu á sam- komunni um 100 dolil. í frjálsum samskotum. Blað Bandalagsins, The First Luthera-n Bulletin, er komið út fyrir september og var því útbýtt í kirkjunni ivið guðsþjónustur. Öllum þykir vænt um blaðið. “Rally Day”—á hérlenda vísu — hafði sunnudagsskólinn sunnu- jdaginn 13. september. Tókst það vel og var mesti mannfjöldi sam- an kominn Prestur fer vestur. ■— Séra Rúnólfur Marteinsson er ráðinn til þess að þjóna söfnuðinum í Seattle í vetur—fyrir það fyrsta. Er

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.