Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1927, Page 7

Sameiningin - 01.12.1927, Page 7
357 Andi og- hefð í vorri ísle'nzkn kristni eins og líka í lútersku kirkjunni alment hefir stutt að því, að í kirkj- um vorum flestum eða öllum liefir síðari stefnan ráðið. Er það vel farið. Einungis þannig er kirkjan trú hlut- verki sínu gagnvart hinum ungu. 1 sjálfu sér sé eg ekk- ert athugavert við æfintýrið um sankti Kláus. Það á sama rétt á sér og önnur æfintýri. En það er ekki jóla- boðskapur kristinnar kirkju til barnanna. Kirkjan ætti að leitast við að tengja alla jóla-gleði barnanna við Jesúm. “Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því að slíkra er Guðs rí'kið,” er leiðbein- ing Jesú sjálfs. Að hin stefnan hefir fengið að ráða víða í kirkjum þessa meginlands, stendur eflaust í sam- bandi við þann misskilning að einungis þannig sé hægt að heilla hugi barnanna. En góðs viti er það, að gott fólk víða í kirkjum þessum er farið að finna til þess að þetta sé ekki fullnægjandi kristilegt jóla-tilhald fyrir börnin. Ætti það með öðru að gera minni hættu á því að fólk vort nokkurstaðar taki sér þetta til fyrirmyndar. Þá eru og jólagjafirnar. Fagur siður í sjálfu sér, en lendir oft út í öfgar þannig, að það er fráskilið öll- um kristilegum anda. Yerður í raun réttri nokkurs kon- ar verzlun, sem leggur á marga þunga byrði og áhyggjur, rænir þá sönnum jóla-friði og gleði og spilar á strengi hégómagirni og eigingirni. Er þess brýn þörf að þetta komist æ meir og meir undir leiðréttandi áhrif anda Krists. Ekki eru það nein spjöll þó ástvinir eða nánir vinir minnist hvers annars með gjöfum, þegar í þessu er stilt rétt lióf. Er þá ekki verðmæti gjafarinnar held- ur andinn, sem hún er gefin í, aðal atriðið. En vel færi á því að jólagjafir væru aðallega til barnanna og hinna fátæku. En jafnvel með gjafir til barnanna þarf rétt að fara. Reyna að forðast að ala upp í þeim heimtufrekju og vanþakklæti. Dæmi munu vera til þess, að börn og unglingar því sem næst heimti gjafir eftir eigin geðþótta af hinum eldri. 0g er þá komið eins fjarri hugsjón og hugsast getur . Miklu fremur ætti að venja börnin á það snemma að finna gleði í því að gleðja aðra, — Hvað gjafir til fátækra snertir, þarf sannur kærleikshugur að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.