Fréttablaðið - 22.03.2011, Blaðsíða 36
22. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 20
menning@frettabladid.is
Steinunn Þórarinsdóttir
myndlistarmaður opnar
sýninguna Borders á torgi
við byggingu Sameinuðu
þjóðanna í New York á
fimmtudag. Sýningin stend-
ur yfir í hálft ár.
„Þetta er líklega einn fjölfarn-
asti staður sem ég hef sýnt á,“
segir Steinunn Þórarinsdóttir
myndlistarmaður. Sýning henn-
ar, Borders, verður opnuð á
fimmtudag á Dag Hammarskjöld
Plaza við byggingu Sameinuðu
þjóðanna í New York. Sýningin
samanstendur af 26 „fígúrum“,
sem Steinunn hefur getið sér
orð fyrir, þrettán úr áli og jafn
mörgum úr smíðajárni. „Þetta
eru þrettán pör sem spegla hvert
annað, svo að segja, og eiga í
þöglu samtali sín á milli.“
Borders er samvinnuverkefni
Steinunnar og New York borgar
og kemur í beinu framhaldi af
sýningunni Horizons, sem Stein-
unn hefur ferðast um Bandarík-
in með.
„Ég sendi borgaryfirvöldum
inn tillögu að innsetningu sem
var sniðin að þessu torgi og það
er skemmst frá því að segja að
þau féllust á hana og við kýldum
á þetta.“ Steinunn segir torgið
vera samfélagslegan suðupott,
þar sem mikið sé um pólitískar
uppákomur og viðburði. „Torg-
ið er stundum nefnt „Hliðið að
Sameinuðu þjóðunum“. Þetta er
hálfgert heimstorg þar sem allar
þjóðir koma saman og sýningin
vísar beint í það og minnir okkur
á mennskuna og það sem samein-
ar okkur þrátt fyrir landamæri.“
Sýningin stendur yfir í hálft
ár. „Það er mjög gott því verkin
fá að njóta sín í öllum ársíðum;
við náum í skottið á vetrinum og
verkin verða uppi fram á haust.
Þetta er auðvitað líka frábært
tækifæri fyrir mig sem lista-
mann, að fá að sýna á jafn fjöl-
förnum og áberandi stað þetta
lengi.“
Steinunn hefur notið velgengni
utan landsteinanna á undanförn-
um árum og hefur ekki getað
haldið sýningu á Íslandi síðan
2006 sökum anna erlendis. Sýn-
ingin Horizons var frumsýnd í
New York 2007 og hefur síðan
þá ferðast til sex staða í Banda-
ríkjunum, nú síðast í höggmynda-
garð Georgia Museum of Modern
Art. Þá var níu metra há högg-
mynd eftir Steinunni afhjúpuð við
Háskólann í Aberdeen í Skotlandi
í fyrra. bergsteinn@frettabladid.is
Þetta eru þrettán pör
sem spegla hvert
annað, svo að segja, og eiga í
þöglu samtali sín á milli.
STEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR
MYNDLISTARMAÐUR
Óður til lífsins er heiti nýútkominnar bókar
sem hefur að geyma speki frumbyggja
Ameríku. Helen Exley valdi texta og mynd-
ir í bókina sem er „vandað safn friðsælla
íhugana um mennina, jörðina og móður
náttúru,“ eins og segir á bókarkápu.
Það er Steinegg sem gefur bókina út en
hún er sú nýjasta í gjafabókaröð Helenar
Exley sem hefur að geyma vísdómsorð um
samskipti manna, ást, tengsl fjölskyldna,
vináttu og fleiri persónuleg gildi.
Óður til lífsins
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Kosningar 2011 Allsherjaratkvæðagreiðsla VR til formanns og stjórnar er hafin og
stendur til hádegis 30. mars nk. Nýttu atkvæðisrétt þinn og hafðu
áhrif. Öll atkvæði hafa sama vægi. Þú finnur allar nánari
upplýsingar á www.vr.is
Nú göngum við til kosninga. Láttu þig málið varða,
VR er félag okkar allra.
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
SKEMMTUM OKKUR
INNANLANDS
FLUG OG GISTING
Í EINA NÓTT
FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
5
38
64
0
3/
11
Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.
YFIR LANDAMÆRI HAFIÐ
SNÚA BÖKUM SAMAN Sýningarstaður Steinunnar Þórarinsdóttur myndlistarmanns við Dag Hammarskjöld Plaza í New York í
Bandaríkjunum er að hennar sögn líklega sá fjölfarnasti sem hún hefur sýnt á. MYND/BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
TÍSKUSÝNING LHÍ Tískusýning nemenda á fyrsta og öðru ári í fatahönnun við
Listaháskóla Íslands verður á Nasa föstudaginn 25. mars klukkan 22. Fötin sem verða
sýnd eru afrakstur fimm vikna námskeiðs. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!