Sameiningin - 01.12.1917, Qupperneq 3
291
lieiminum. Þrátt fyrir alt triíleysið, alla heimsliyggjuna,
þá getur ekki mannkynið framar mist jólaminninguna.
Trúnni á guðdóm og friðþægingarverk Jesú Krists verð-
ur aldrei rýmt burt úr hjörtum allra manna. Jafnvel
afneitunin sjálf verður fegin Ijósi þeirrar trúar, á jólun-
um, ef ekki endranær. Krist-laus jól! Yér gætum eins
vel hugsað oss, að Guð væri horfinn rir heiminum sjálf-
nm.
“En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá
Agústus keisara um að skrásetja skyldi alla heimsbygð-
’ma'’. Hvenær verða, menn þreyttir á þessari jólasögu?
Hvenær verða menn vaxnir upp úr þeim guðdómlega
sannleik, sem hún birtir oss á blíðu, einföldu barnsmáli?
Evr verða menn leiðir á vorkomunni, ])reyttir á morgun-
roðanum; fyr hætta menn að gleðjast yfir saklausri feg-
urð barnæskunnar, heldur en svo fari, að jólasagan og
trúin barnslega, sem hún boðar, hætti að verða mönnum
fersk og dýrmæt, þegar þeir liugsa uin liana á hátíðinni.
Jólatíðin er drotning allra liátíða, af því Drottinn sjálfur,
í dýrð sinni og mildi, er þá með sérstökum hætti nálægur
kristnum mönnum; og það er hinn dýrmæti boðskapur
hátíðarinnar, sem birtir mönnum þessa guðlegu dýrð.
Þessi jóladýrð er ekki gefin mönnunum ófvrirsynju.
Sú rödd Drottins, sem vér heyrum þá, er ómnræðilega
anild, eins og hægur og blíður vindblær. en í þeirri rödd
er áminning og aðvörun engu síður. Ef oss ]>ykir vænt
um jöla-hátíðina — þessa dýrð, þennan heilaga frið og
góðvilja — hví látum vér þá ekki anda jólanna ráða yfir
oss árið um kring? Hátíðin á að minna oss á ófullkom-
leik og misfellur vors eigin lífs, hvað lielzt sem það er
hjá oss, og sýna oss hið betra lilutskiftið. Drottinn talar
við þig í jóladýrðinni, andvaralausi maður, sem hefir
sökt þér niður í veraldlegar áhvggjur ait árið. Er ekki
gott, að'eiga þessa gleði, sem nú lirífur hjarta þitt? Er
hún ekki dýrmæt, trúin á himneskan föður og frelsara,
sem er uppspretta þeirrar gleði? Hvað getur heimurinn
gefið þér, er jafnist á við þennan heilaga frið, sem þú
nýtur mi í barnatrú þinni á þessum jólum! En ef þetta
er I)etra Iilutskifti en það, sem þú hefir kosið þér að lifa
Ari Ö alt árið, því þá eklci að brevta til næsta ár ? Taktu
með þér jólahelgina inn í líf þitt hið hversdagslega, opn-
aðu lijarta þitt fyrir frelsaranum, lifðu í daglegri um-