Sameiningin - 01.12.1917, Síða 4
292
gengni við hann. Láttu ekki heiminn taka frá þér beztu
gjöfina, sem Drottinn sjálfur átti til að gefa þér.
Eða þú, sem á einhvern hátt hefir verið fjarlægur
Guði í breytni þinni — sem hefir veriö léttxíðugur í orð-
um og dagfari, eða þungbúinn og óþýÖur í lund, eða stirð-
ur vinum, eða heiftrækinn óvinum, eða sjálf-elskur og*
ræktarlaus við þá, seni bágt eiga, eða i hverju helzt, sem
líferni ])ínu hefir verið ábótavant; er ekki þessi hugur-
inn betri, sem nú ræður fyrir þér, heldur en hinn, sem þú
hefir þrælkað undir alt árið.? Er liún ekki í sannleika
betri, ])essi bamslega lotning, þessi bróðurelska, ])essi
rækt við skylda og óskylda, þessi hreina gleði, ])essi náð,
að geta munað eftir því góða, sem þú reyndir af öðruin
og gleymt því, sem miður fór — er það ekki betra að
þjóna frelsaranum óskiftur í hugsun, orðum og breytni,
eins og þú gjörir nú, að hafa í sannleika krýnt hann til
konungs yfir lífi þínu, heldur en að láta syndina drotna
í dauðlegum líkama þínum, eins og þfi liefir gjört alt
árið? Hvað hefir óhlýðnin fært þér annað en beiskju
og ófi'ið? Mun ekki hlýðnin revnast þér eins blessunar-
rík alt árið, eins og hún reyndist nú? Þú finnur, að þeim
spurningum verður ekki svarað nema á einn veg. Taktu
þá með þér þetta betra hlutskifti jólanna fit í lífið; helg-
aðu frelsaranum dagfar þitt árið um kring; láttu ekki
hverflyndið ræna þig, þessari heilöga gleði, sem frels-
arinn einn getur gefið þér.
Guð er líka að tala við þig í jóladýrðinni, efagjarni
maður, sem seinn ert á þér með að aðhvllast Krist í
trúnni. Hvað sem efasemdunum líður, hefir þó jólasag-
an ekki snortið hjarta þitt? Finnur þú ekki einkennilegt,
liugkvæmt aðdráttarafl í þessari sögu, blíða rödd, sem
kallar þig til trúarinnar? Langar þig ekki til ]>ess að
hún reynist sönn. ])essi saga um barnið guðlega i jötunni,
í heiminn komið til að líkna og freisa? Mvndi ekki dimma
vfir hjarta þínu á jólunum, ef þú glataoir þeim boðskap
algjörlega úr sál þinui? Gætir þú liugsað þér nokkurn
annan jólaboðskap dýrmætari og elskulegri? Gæti vis-
indin gefið jólunum annað hátíðarefni jafn-dýrmætt, ef
þetta reyndist ósatt? Þú finnur til þess inst í lijarta þínu,
að dýrmætara gleðiefni er ekki hægt að hugsa sér en