Sameiningin - 01.12.1917, Page 8
296
út frá alt um kring. En í hálf-sveig á pallinum á bak við
trén voru mörg lítil börn klædd í mjallhvítan skrúða. Og
á veggnum á bak við börnin voru myndir af englum með
gullna lúðra. Svo var líka orgelið, og maðurinn við orgelið,
og fólkið fyrir framan pallinn með bækur í höndum. Allir
sungu, og á allra andlitum ljómaði ánægja, friður og fögn-
uður. — ó, eg hafði engin orð til að lýsa því! pað yfir-
gnæfði algjörlega minn bamslega skilning!
Litlu síðar komum við að húsi Daníels McDonalds. Var
hann sjálfur heima, en konan hans var í kirkjunni. Tók
hann á móti okkur með opnum örmum gestrisninnar, ósk-
aði okkur gleðilegra jóla, og kvað það muhdi verða sér til
stórrar gæfuíi hinu komandi ári, að gesti hefði borið að húsi
sínu á jólanóttina. Fengum við þar undir eins hinn besta
greiða. Og þegar húsfreyjan kom heim um nóttina, voru
okkur gefin epli og ögn af jólakökunni, sem eg man að var
mjög lítil.
Nokkru síðar um kvöldið, fór konan að tala við mig.
Hún spurði mig, hvort eg vissi, í hvers minningu að jólin
væri haldin. Sagði eg henni það hiklaust, og lét hana vita,
að systir mín, sem væri að eins fimm ára gömul, vissi það
líka og kynni utanbókar mörg falleg jóla-vers.
“Hvað heitir hún systir þín ?” sagði Mrs. McDonald.
“Anna Málfríður”, sagði eg.
“En hvað heitir þú?”
“Jóhann Magnús”.
Hún bað nú föður minn að skrifa nöfn okkar systkin-
anna á miða. Fór hún þá út úr herberginu, og kom aftur
eftir litla stund með ofurlítinn böggul og dálítið jólakort
(Christmas-card).
“petta á litla stúlkan þín”, sagði Mrs. McDonald og rétti
föður mínum böggulinn. (í bögglinum var lítil myndabók
og brjóstsykur). “En þetta átt þú”, sagði hún við mig og
rétti mér jólakortið.
Faðir minn og eg þökkuðum henni hjartanlega fyrir
gjafimar.-------
Um það er eg viss, að aldi’ei hefir nein gjöf vakið meiri
fögnuð, meiri þakklátsemi, meiri sælu-tilfinning í hjarta
nokkurs barns, en þetta litla jólakort vakti ihjá mér. Eg
gleymdi á einu augnabliki að eg var lúinn og vegmóður, að
eg var fátæklega til fara, að eg var útlendingur, og að eg
var gestur hjá ókunnugu fólki. Mér fanst eg vera alt í einu
orðinn stór-ríkur og eiga allan heiminn. Og heimurinn var
mér fagur og dýrlegur, mennimir urðu að englum, og lífið