Sameiningin - 01.12.1917, Síða 12
300
II.
Til þín.
Bam mitt smátt, broshýrt og kátt,
reyna skalt, mest sem mátt,
baminu að líkjast, í Bethlehem fætt,
baminu Davíðs af göfugu ætt,
blessuðu baminu því :,:
Unga mær, öllum sért kær,
fölskvalaust, fjær og nær,
vitnaðu um frelsarans frelsandi mál,
feril hans þræddu af lífi og sál,
:,: daglega Drottin þú bið
Ungi sveinn, ætíð sért hreinn,
dyggur, trúr, statt sem steinn
fastur, og trúðu á frelsara manns,
fús berðu vitni um guðdóminn hans.
:,: Bænin ei bresta þig má :,:
Kona góð, Krists orðs sjóð
út aus þú, elds af móð,
blessuðu orðin hans blessun oss fá,
bið þú og vak þú, og treyst þú hann á,
:,: meistarann mannkynsins alls. :,:
Maður þú, með kristna trú,
skylda þín skír er sú,
veikum að líkna og vera þeim hjá,
vemda og styðja og hjálp hverjum ljá,
:,: sem mæddur og mótlættur er. :,:
Syng öll þjóð, syng Drotni ljóð
heiðurs til, heims um slóð,
syng fyrir heiðna, og syng fyrir oss,
syng þú um Jesú, sem lífið á kross
:,: lét, svo að lifðum vér öll. :,:
J.