Sameiningin - 01.12.1917, Side 17
305
Merkismannata 1.
Hitt og þetta um ýmsa mæta menn, helzt kirkjulega, menn, sem
margir eiga ekki kost á a8 kynnast, en sem uppbyggilegt er aS vita
eitthvaS um og þekkja.
Eftir séra Jóliaim Bjarnason.
II.
Savonaróla.
Einn hinna ágætu manna kirkjunnar á Miðöldunum
var Gírólamó Savonaróla, fæddur í bænum Ferrara á ítalíu
þann 21. Nóvember 1452,. Kemur Savonaróla-ættin fyrst
þannig við sögu þess bæjar, að þar sezt að læknir nokkur,
Michele Savonaróla að nafni. Fær hann brátt orð á sig sem
frábærlega heppinn læknir og verður með tímanum vellrík-
ur og mikils metinn borgari bæjarins. Átti hann son, sem
líka hét Michele. Barst hann mikið á og var eyðslusamur,
lifði sem stórhöfðingi, en þótti í engu jafnoki föður síns,
sem var hinn frægasti læknir. Gekk Michele hinn yngri að
eiga stúlku að nafni Elena Bonacossi. Er sagt að hún hafi
verið hinn ágætasti kvenkostur og mjög fyrir manni sínum
í öllu. peirra son var Gírólamó Savonaróla, hið þriðja í
röðinni af allstórum barnahóp.
Snemma bar á því, að hinn yngri Savonaróla væri mikl-
um hæfileikum búinn og var hann þegar á unga aldri settur
til menta. V'ar fyrsti kennari hans læknirinn frægi, afi hans.
Skyldi Savonaróla líka verða læknir. Voru efni föður hans
mjög gengin til þurðar og átti sonurinn, sem líklegt var að
gæti orðið slingur læknir, að rétta við efnahag ættarinnar.
Ekki virðist þó sem Savonaróla hafi haft mikinn hug
á læknisfræðinni. Mjög ungur skarar hann fram úr jafn-
öldrum sínum í öllu því, er þá heyrði til hinni svo kölluðu
æðri mentun. Var fær í söngfræði, dráttlist, rökfræði,
heimspeki og guðfræði. í guðfræðinni var Tómas Aquinas
(d. 1274) hans uppáhalds höfundur. Las hann rit hans af
kappi. Fékst hann og allmikið við skáldskap og þótti sling-
ur í því sem öðru.
Ferrara var um þessar mundir í miklum blóma, taldi
um eða yfir 100 þús. íbúa. Var samkvæmislíf borgarinnar
mikið og fjörugt og spilt að því skapi. Hafði Savonaróla
hina megnustu óbeit á framferði borgarbúa. Var strangur
v;ð sjálfan sig í öllu því, sem að siðferði laut. Las af kappi
og tók sér við og við göngur um fagrar landsbygðir, til að