Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1909, Side 6

Sameiningin - 01.03.1909, Side 6
2 manna og frelsa kristna trúbrœðr þar undan vanbelgnm ofsóknnm þeirra. Það var á miðju sumri árið 1099. Hátt á þriðja ár liöfðu krossfararnir þá verið á ferðinni, og öll undr liöfðu þeir tekið út af erviðleikum og harmkvælum. Þá er hópr þeirra lagði á stað í leiðangrinn, höfðu þeir ver- ið meir en sex hundruð þúsundir; en á þeim tíma, er síð- an var liðinn, höfðu svo margir með ýmsu cegilegu móti fallið, að að eins þrjátíu og fimm þúsundir voru uppi standandi. Þær leifar krossfara-hersins fœrðust nú óð- um nær hinu fyrir setta endimarki leiðangrsins. Einn góðan veðrdag, bjartan og blíðan sumardag á ári því, er nefnt liefir verið, voru þeir komnir til þorpsins Emmaus, sem alkunnugt er af upprisusögu frelsarans. Þá eygðu þeir af hæð einni á þeim stöðvum borgin-i frægu, lielgu, Jerúsalem, þar sem hún reis upp í sjón- deildarbringnum, beint fram undan þeim. Sú sjón hafði þau áhrif á þá, að þeir féllu allir á kné og grétu af gleði. Allir erum vér ferðamenn. Og að því leyti, sem vér lifum í trúnni á Jesúm Krist, erum vér og sann- nefndir krossfarar; því um leið og vér með skírninni tókum vígslu inn í kirkju drottins vorum vér merktir til fararinnar út í lífið og dauðann í Jesú nafni með merki krossins bæði á enni og brjósti. En krossfarar einnig að því leyti, sem kristilegt trúarlíf er líf sjálfs-afneitun- ar og sársauka, og það hvorttveggja er á tungumáli kristindómsins nefnt hross. Eins og Hallgrímr Pétrs- son segir í fyrsta Passíusálminum: „Yfir liörmungar er mín leið æ meðan varir lífsins skeið.‘ ‘ Og þegar fastan er upprunnin á árshringnum, þá blasir píslarsaga Jesú öll frá upphafi til enda við andlegum augum hinna kristnu pílagríma. Nú einkum rís Jenísalem upp í sjón- deildarhring vorum með helgustu og hátíðlegustu endr- minningum, sem við þá borg eru knvttar frá fornu tíð- inni; því þar var það, að Jesús dó fyrir syndir vorar og gjörvalls mannkynsins; þar gjörðist píslarsagan mikla. Og svo stórkostlegt fagnaðarefni felst í þeirri sögu, að þegar bent er til þeirra helgu sögustöðva — bent á Jes-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.