Sameiningin - 01.03.1909, Blaðsíða 17
i3
til vill fæ eg ekki aÖ lifa það, að sjá stríðið unnið, en sag-
an mun vera mér vitni, og þessir menn munu sjá það, að
þeir liafa ekki lesið biblíuna rétt.“
Eitt einkenni trúar Lincolns var liin mikla og barns-
lega bœnrœkni hans. Að eins eitt dœmi skal tilfœrt. f
samtali við Sickles hershöfðingja, eftir sigrinn mikla
við Gettysburg, komst liann svo að orði: „Yðr að segja,
hersliöfðingi! hafðist eg það að meðan stóð á þrautum
og þjáningum bardagans, að eg fór inn í svefnhús mitt,
féll á kné og bað guð almáttugan að gefa oss sigr við
Gettysburg. Eg sagði guði, að þetta væri hans land og
þetta væri hans stríð, en að vér ómögulega gæturn þolað
slík örlög sem við Fredericksburg og Chancellorsville.
Og þar og ])á vann eg skapara mínum það heilagt heit,
að ef hann stríddi með yðr við Gettysburg, skyldi eg á-
vallt stríða með honum. Hann hefir gjört það, og eg
skal efna loforð mitt. Eftir þetta fann eg það á mér, að
guð hefði tekið bardagann í sína hönd.“
Af því, sem nú hefir sagt verið, má sjá, að Lincoln
hefir eigi verið trúmaðr á almennan og óákveðinn hátt,
heldr Itristinn trúmaðr í orðsins beztu merkingu. Trú-
arjátning hans er fólgin í þessurn orðum: „Kristr kenn-
ir það. og Kristr er guð.“ Og fám mönnum hefir betr
auðnazt að lifa samkvæmt kristilegri trúarjátningn
sinni en Lincoln. Kristr var „meistari“ hans. Að feta
í lians fótspor og vinna í hans anda var löngun hjarta
hans. Allt stríð hans og þolgœði í þrautunum bar þess
vott, að guðs andi bjó í honum. Sorg hjarta hans, tár
augna hans, er hann barðist fyrir frelsi mannanna,
minna á „sorgarmahninn“, er blóði sveittist í Getsem-
ane fyrir sáluhjálp mannkynsins. Meistarinn hafði
blásið honum f brjóst anda kærleikans til hinna ólánsömu
og’ uudirokuðu. Enginn maðr á síðari öldum hefir haft
meira í hjarta sér af kristilegri hógværð en Lincoln.
Ekki er til barn í skólum vorurn né upplýstr maðr í land-
inu, sem ekki kann sögur um lítillæti og ljúfmennsku
Lincolns. Til hjarta hans hafði Kristr talað: „Sann-
lega seg'i eg þér: hver sem ekki meðtekr guðs x'íki eins
og barn, mun aídrei þangað koma.“ Þann lærdóm hafði