Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1909, Page 7

Sameiningin - 01.03.1909, Page 7
3 úm, er hann stendr uppi í stríðinu eintsaklega gegn ofr- magni myrkranna og fórnar sjálfum sér, — þá ætti sann- arlega allir kristnir menn að finna lijá sér hvöt til þess eins og krossfararnir gömlu að varpa sér í duftið tilbiðj- andi og gráta af gleði. Ekki kemr oss til hugar að benda kristnu nútíðar- fólki á þessa miðaldarmenn kristninnar, krossfarani, sem neinar trúarlegar eða siðferðislegar fyrirmyndir yfirleitt. Trúarlíf þeirra var stór-gallað. Syndir þeirra voru miklar og margar. Hið andlega uppeldi, sem krist- in kirkja þeirrar tíðar hafði veitt þeim, var ákaflega 6- fullkomið. Þeir lifðu í andlegum efnum í því hálf- rökkri, sem á þeirri öld grúfði yfir kristna heiminum. En eitt höfðu þeir hálfrökkrs-menn miðaldarkirkjunnar fram yfir almenning nútíðar-kristninnar, að minnsta kosti hinn kristna hluta vorrar þjóðar nú. Þeir voru í tilfinningum sínum margfalt sterkar hrifnir af því fagnaðarefni trúarinnar, sem við þeim blasti, en vér jafnaðarlega verðum af því fagnaðarefni, sem til vor kemr úr sömu átt. Svo hrifnir gátu þeir orðið trú- arlega, að út af þeirri tilfinning gengu þeir léttum fótum yfir ófœrurnar óteljandi, sem fyrir þeim urðu, og grétu þá er því var að skifta, eins og við tœkifœri það, er þegar var getið, eins og hörn allir í einu af gleði. Engan veginn vildum vér halda fram þeim kristin- dómi, sem aðallega eða eingöngu er fólginn í viðkvæmni tilfinninganna. Tilfinningarnar, einnig þær, er heyra til lífi trúarinnar, eru oft mjög óáreiðanlegar. Þær út af fyrir sig geta svikið menn hörmulega. Og í annan stað eru þær ekki nema að nokkru leyti á mannsins valdi. Þær eru upphaflega að mestu komnar undir skapnaði mannlegs líkama. Sumum mönnum er samkvæmt eðlis- fari þeirra miklu auðveldara að verða hrifnir til fagn- aðar og hryggðar en öðrum, eða að minnsta kosti að láta hvoratveggja tilfinninguna koma sýnilega fram. Allt þetta tekr guð til greina í kröfum sínum til mannanna og dómum þeim, er hann kveðr upp yfir lífi þeirra. Hann leggr æfinlega alla áherzluna á það, hvert vilji mannsins stefnir. Miðdepill kristilegs trúarlífs er þá

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.