Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1909, Page 11

Sameiningin - 01.03.1909, Page 11
7 Sumir lrafa og eflaust séð þær mannlífs-sýningar í leikhúsum, er hrifu þá svo, að fagnaðartárin eða hryggðartárin hrundu þeim ósjálfrátt af aug- um. Og um leið mótuðust sýningar-myndirnar sterklega inn í sálarlífið. En sýning píslarsög- unnar miklu er meira — óendanlega miklu meira — en skáldskapr. Sú harmsaga er algjörlega einstœð. Ekkert annað eins hefir gjörzt á jarðríki. Lang-mesta harmsagan í heimi, liafandi í sér fólgið lang-mesta fagn- aðarefni, sem hugsazt getr. Myndi það ekki óhœfa að komast ekki neitt við af þeim boðskap og þeirri sýning? Eða er píslarsaga þessi hin óviðjafnanlega svo f jar- læg kynslóð nútíðarinnar, að þú, maðr! fyrir þá sök get- ir ekki orðið hrifinn af lienni? Það er þó band, sem knýtir hana við nútíðina — syndin í nútíðinni og náðin, sem streymir gegn um liina lielgu atburði sögunnar eins og lifandi árstraumr inn í nútímann — tvöfalt band, sem bindr hana við þitt líf, maðr! hver sem þú ert, þörf þína á því, að friðþægt væri fyrir synd þína, og hinn kærleiks- ríki vilji guðs, sem liér kemr verklega fram til þess að fullnœgja þessarri þörf þinni. Jesús, er hann varpar sér út í kvalamóðuna. Jesús, hugsandi um það, að hann muni verða yfirgefinn af öllum beztu mannlegu vinum sínum, og jafnvel í dýpstu hörmung sinni eins og yfir- gefinn af hinum liimneska föður. Jesús, er hann í Getsemane biðr fyrir sjálfum sér út af kvalabikar þeim, sem nú liggr fyrir honum að drekka af og tœma í botn. Jesús, lieilagr guðs son, staddr í óumrœðilegri sálar- neyð, yfirkominn af dauða-angist — hann, sem annars aldrei hræddist dauðann og leit svo mildum augum á hann, að því leyti, sem guðs börn eiga honum að mœta, eins og væri hann að eins svefn, inndæll, elskulegr svefn. Jesús, svo fullr af kvíða fyrir þeim skelfingum, er fyrir honum lágu, að hann biðr, grátbiðr, föður sinn að taka þann kaleik frá sér, svo að hann, ef þess sé nokkur kostr, ekki þurfi að drekka hann. Jesús einn — aleinn í ang- istinni og myrkrinu, með svo sárri þrá eftir því að hafa hjá sér til aðstoðar og huggunar hina jarðnesku vini sína, lærisveinana þrjá útvöldu, sem hann hafði tekið

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.