Sameiningin - 01.03.1909, Blaðsíða 15
II
meðvitund hans um guðlega forsjón, að fyrir hana gafsc
honum, að því er virðast má, yfirnáttúrlegr máttr til að
heyja hið mikla stríð, er liann háði. Þessu til sönnunar
vil eg leyfa mér að vekja atliygli yðar á skilnaðarrœðu
þeirri, er hann hélt fyrir vinum sínum í Springfield, þá
er hann lagði á stað til Washington-borgar til að taka
við forsetaembættinu. Þúsundir manna höfðu safnazt
árla morguns að járnbrautarstöðimii. Veðrið var dimmt
og drungalegt og hríð úr lofti. Fólkið þyrptist utan um
Lincoln, þögult og alvarlegt, og margir tóku með lotn-
ingu í hönd honum. Lestin kom, og Lincoln og föruneyti
lians steig um borð. Eétt í því að hringt var til brott-
farar, steig Lincoln út á vagnþrepið. Mannf jöldinn stóð
berhöfðaðr útí krapahríðinni, lotningarfullr. Þá talaði
Lincoln á þessa leið:
„Vinir mínir! Enginn, sem ekki er staddr í sporum
mínum, getr gjört sér í liugarlund, liversu sár þessi
skilnaðarstund er mér. Þessum stað og velvild þessa
fólks á eg allt að þakka. Hér hefi eg búið fjórðung ald-
ar og fœrzt af ungum aldri til efri ára. Hér hafa hörn
mín fœðzt, og hér er eitt þeirra grafið. Eg legg á stað
og veit ekki hvenær eða hvort nokkru sinni eg sé yðr aftr,
og þraut sú, er fyrir mér liggr, er þyngri en jafnvel
byrði sú, sem livíldi á Washington. Án aðstoðar pess
guðs, er ávallt styrkti hann, get eg elclci sigrað, en með
hans aðstoð get eg eklci beðið ósigr. Eg trevsti honum,
sem farið getr með mér og verið hjá yðr og verið alls-
staðar til góðs, og vona því, að allt lykti hlessunarlega.
Honum fel eg yðr alla, eins og eg vona, að þér felið mig
honum í bœnum vðar. Kveð eg yðr svo alla ástsam-
lega.“
Frumtónn trúarinnar, eins og hún var í Lincoln,
lieyrist í þessum orðum: „Án aðtsoðar guðs get eg ekki
sigrað; með hans aðstoð get eg ekki beðið ósigr.“
Þar sem nú tríiin í sjálfri sér var augsýnilega svo
sterkr þáttr í lífi Lincolns, þá fvsir oss eðlilega að kom-
ast hetr eftir því, hverskonar trú það var, hverjar trúar-
skoðanir hann hafi haft.
Lincoln tilhevrði engum sérstökum kirkjuflokk.