Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1909, Page 26

Sameiningin - 01.03.1909, Page 26
22 vegis, og þá (k öndverðu ári 1904J sáu menn sér ekki annaS fœrt eins og á stóð en aö hætta við aS gefa rit þaS út lengr. Ritstjóri þessa blaSs sagSi á sínum tíma, aS meSal lút- erskra kennimanna hér i Vestrheimi stœði séra Friörik J. Berg- mann algjörlega einn uppi aS því leyti, sem hann hefir aShyllzt stefnu nýju guðfrœiSinnar. Þetta finnst hinum ónefnda höf. í „Nl.“ ekki koma vel heim við ummæli séra Jóh. Bjarnasonar í sama blatSi, er hann skýröi frá því, að Andover-prestaskólinn hefði innhýst hinar nýju kenningar og haft þær í hávegum. „Annarhvor þeirra séra Jóns eða séra Jóhanns hlýtr“ — segir hinn nafnlausi — „að fara hér með ósatt mál.“ í fáfrœði sinni ímyndar maðrinn sér, að prestaskóli sá, er nú var nefndr, hafi verið lúterskr. Þetta er nú heldr en ekki að fara á hundavaði. En svona óheppilega fer einatt fyrir þeim, sem hafa tekið það að sér að verja eða sœkja rangt mál. Naumast myndi höfundr „Norðrlands“-greinanna hafa stungiS nafni sínu undir stól, ef hann hefði sjálfr trúaS því, að hann væri að fara með rétt mál. Vér þekkjum andlitsdrætti mannsins í gegn um dulargerfið. Hann vill, aS á sér beri, svo lengi sem hann er í sínu essi. Það er vond samvizka, sem veldr því, aS hann nú segir ekki til nafns síns. En nafnlaus eSa með nafni minnir hann á Þórbjörn FerSalang, skjalara einn hvefs- inn, sem forSum var uppi á Íslandi og alltaf hafSi munninn uppí þangað til Gretti tókst aS láta hann þagna. „Hann var tilfynd- inn ok-----fór með dáruskap til ýmsra manna“ — segir sagan um náunga þann; og eins og hann að vitni sögunnar þótti lítið bœta fyrir nafna sínum Öxnamegin, sem hann vildi styðja, eins má telja víst, aS fyrir málstaS nýju guSfrœðinnar hér verði það lítill hagr, sem skemnðr þessi hinum megin fjarSar lætr út úr sér. I bréfi, sem nýlega er komið frá vini vorum einum, stendr meSal annars þetta: „Talsmenn nýju guðfrœðinnar gefa sí og æ í skyn, að vís- indi, kærleikr og framfarir sé þeirra megin í baráttunni út af málefni trúarinnar, og þeir staShœfa, aS kenning þeirra—hún að eins—sé samboðin Jesú nafni, að hann—Jesús Kristr—vísi þeim veginn. Þau ummæli minna mig á þaS, sem Þbrbjörn öngull sagði, er hann sókti að Gretti í Drangey: „Kristr vísaði oss leiS.“ Þá mælti Grettir: „En ek get, at hin arma kerling fóstra þín hafi vísat þér, því at hennar ráSum muntu treyst hafa.“ Myndi ekki með sönnu mega segja eitthvað likt um

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.