Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1909, Qupperneq 30

Sameiningin - 01.03.1909, Qupperneq 30
2Ö Akraness og Margrétar konm hans aö Hnausum. Lára heitin var ekki fullra 18 ára, er hún lézt. Hún var einkar framferðis- góö og vönduö stúlka, eins og hún átti kyn til, og mesta eftirlæt- isbarn fóstrforeldranna, sem hvorki spöruöu fé né fyrirhöfn, svo hún gæti notið beztu læknishjálpar og aöhjúkrunar, sem föng voru á, þó allt yröi þaö árangrslaust. Lík hennar var fíutt td Hnausa og jarösett í grafreit Breiðuvíkr-safnaðar io. Marz, að viðstöddum fjölda fólks. Jóh. B. Fulltrúar þetta ár í Árdalssöfnuði eru þeir Tryggvi Ingj- aldsson fforsetij, Jón Jónsson, jr. fskrifarij, Metúsalem Jóns- son (féh.J, Árni Bjarnarson og Jón Hornfjörð. í djáknastöðu voru þau kvödd Mrs; Hólmfríðr Ingjaldsson og Eiríkr Jóhanns- son. Jóh. B. 23. Nóv. síðastl. lézt Mrs. Rannveig G. Sanders, að Mimi, Sask., 55 ára, kona Jóns Jónssonar Sanders, frá Söndum í Mið- firði í Húnaþingi. Hún var dóttir séra Guömundar heitins Yig- fússonar á Melstað í Miðfirði. Á lífi eru sjö börn hennar, öll uppkomin. Með manni sínum var hún nýflutt vestr frá Sel- kirk. Hér bjuggu þau um tólf ár. Rannveig heitin var bezta kona, ávallt boðin og búin til að hjálpa öllum góðum fyrirtœkj- um áframj, og hverjum þeim, sem hjálpar þurfti og hún gat náð til. Enginn studdi stöfnuðinn betr en hún. Hún unni kirkj- unni sinni af hjarta. Og að því mátti ganga vísu, að sjá hana við guðsþjónustur allar, eins áreiðanlega og prestinn, ef heilsa hennar leyfði eða aðrar ástœður, sem hún gat ráðið við. Eftir að hún kom vestr saknaði hún mest kirkjunnar sinnar. En svo þóknaðist drottni að bœta úr þvi með því að lofa henni að flytja heim, inn í kirkjuna fullkomnu hjá sér. Margir sakna Rann- veigar heitmnar. Einn þeirra er prestrinn hennar. N. S. Th. 1. Marz dó í Selkirk Anna Þorláksdóttir, ekkja Stefáns Bjarnasonar frá Sjávarborg í Skagafirði, sem drukknaði hér í Rauöá fyrir tíu árum, og fóstra þeirra systkina, Stefáns Björns- sonar og Mrs. Guðrúnar Kelly, i Selkirk. Hjá þeirn haföi hún dvalið til skiftis síðan hún fluttist hingað af íslandi með manni sínum fyrir rúmum tuttugu árum. Fimm börn höfðu þau hjón átt, en misstu þau öll ung nema son, sem drukknaði fullorðinn. Og fimm börn tóku þau að sér og fóstruðu. Anna heitin var 96 ára, er hún lézt, óvenjulega ern og sjóngóð. Andlitiö var ung- legt þrátt fyrir hinn háa aldr. Hún var góðkvendi og unr.i drottni sinum, en sjálfri fannst henni hún vera vond. Hún óx ekki með aldrinum burt frá náð drottins, heldr æ lengra inn í

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.