Fréttablaðið - 02.04.2011, Qupperneq 2
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR2
FERÐAMÁL Skipstjórarnir Gissur
Baldursson og Snæbjörn Ólafs-
son hafa sótt um leyfi til að sigla
með farþega á Þingvallavatni á
rafknúnum bát með útsýnisbotni
úr gleri.
Sérstaklega er óskað eftir heim-
ild til siglinga í landi þjóðgarðs-
ins við norðanvert Þingvalla-
vatn. „Vatnið er auðvitað afburða
tært. Við höfum
hitt marga sem
segja okkur að
þarna sé mikið
að sjá, sérstak-
lega á þessum
slóðum. Bæði
er landslagið
ofan í vatninu
alveg stórfeng-
legt með sínum
djúpu gjám og
síðan er fjöl-
skrúðugt lífríki í vatninu,“ segir
Gissur, sem lofar hljóðlátri sigl-
ingu sem ekki spilli kyrrðinni í
friðlandinu.
Smíða og hanna á rafbátinn
hér landi og segir Gissur áætlað
að hann taki um þrjátíu farþega.
Gissur telur það styrkja umsókn
þeirra Snæbjörns að í núgildandi
stefnu fyrir þjóðgarðinn segir að
áhersla „verði lögð á að kynna líf-
ríki vatnsins fyrir gestum á áhuga-
verðan hátt með því að bjóða þeim
að skyggnast undir yfirborðið með
ýmsum ráðum“.
Þá segir Gissur mikils vert að
gera tilraunir með rafbát. „Af því
að dæma sem við höfum kann-
að geta menn nýtt þann mögu-
leika miklu betur. Til dæmis gætu
hvalaskoðunarbátar og bátar í
slíkum styttri ferðum allir verið
rafknúnir,“ segir hann.
Umsókn Gissurar og Snæbjörns
var tekin fyrir í Þingvallanefnd
fyrir tveimur mánuðum. Nefnd-
in fól þá Ólafi Haraldssyni þjóð-
garðsverði að kanna málið nánar,
meðal annars með tilliti til þess
hvar báturinn gæti haft lægi og
hvert aðstöðugjaldið ætti að vera.
Einnig þyrfti að greiða úr raf-
magnsmálum, en ekkert rafmagn
er í Vatnskoti þar sem Gissur og
Snæbjörn hafa helst hug á að vera.
Ekki náðist í Ólaf, sem er í orlofi
en Gissur segir þjóðgarðsvörðinn
afar jákvæðan gagnvart verk-
efninu og þegar hafa gert umsögn
sína. Hins vegar hafi Þingvalla-
nefnd ekki fundað aftur.
„Það hafa allir tekið mjög vel í
þetta. Það eina sem okkur er vant-
ar er leyfið og þá getum við haf-
ist handa við að ljúka endanlegri
hönnun bátsins og látið smíða
hann,“ segir Gissur, sem kveðst
vonast til að geta hafi siglingarnar
sumarið 2012. gar@frettabladid.is
Glerbytna fyrir gesti
í Þingvallaþjóðgarði
Tveir skipstjórar sem vilja bjóða upp á siglingar á rafknúnum glerbotnsbáti á
Þingvallavatni fá jákvæðar undirtektir í Þingvallanefnd. Á stefnuskrá þjóðgarðs-
ins er að kynna lífríki vatnsins með því að veita gestum sýn undir yfirborðið.
NÝJUNG Á ÞINGVÖLLUM Ef áform tveggja skipstjóra fá meðbyr í Þingvallanefnd
munu þeir líða með farþega sína í hljóðlausum rafmagnsbáti til að skoða undir yfir-
borð Þingvallavatns. Báturinn á myndinni er erlendur. SAMSETT MYND/GVA/NORDIC PHOTO
GISSUR
BALDURSSON
Opið til kl. 16:00 laugardag
Ragnheiður, var góður afrakst-
ur eftir Mottumars?
„Já, við rökuðum að okkur fé í þágu
góðs málefnis.“
Ragnheiður Haraldsdóttir, formaður
Krabbameinsfélagsins, er ánægð með
útkomuna í Mottumars-átakinu. Þátt-
takendur hafa eflaust verið rakstri fegnir.
OBAMA ÁKALLAÐUR Mótmælendur
söfnuðust saman í Jemen í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
JEMEN, AP Mótmælendur fjöl-
menntu í borgum Jemens til að
þrýsta á um afsögn forsetans, Ali
Abdullah Saleh.
Talið er að mótmælin hafi verið
þau fjölmennustu til þessa og
þátttakendur skipt hundruðum
þúsunda.
Margar moskur í höfuðborg-
inni voru lokaðar í gær vegna
mótmælanna, sem er einsdæmi á
föstudegi, bænadegi múslima.
Mótmælendur hafa í meira en
mánuð krafist afsagnar forset-
ans, sem ríkt hefur í 32 ár og
segir hættu á upplausn láti hann
af embætti. - gb
Krefjast afsagnar forsetans:
Hundruð þús-
unda mótmæla
Karfi hækkar í verði
Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna
og útvegsmanna í gær var ákveðið að
hækka verð á karfa, sem ráðstafað er
til eigin vinnslu eða seldur til skyldra
aðila, um fimm prósent. Verð þetta
gildir frá og með 1. apríl 2011.
SJÁVARÚTVEGUR
HOLLAND, AP Alþjóðadómstóllinn í
Haag hefur vísað frá máli Georgíu
gegn Rússlandi vegna þjóðern-
ishreinsana í tveimur héruðum
Georgíu, Abkasíu og Suður-Ossetíu.
Meirihluti dómara taldi að dóm-
stóllinn hefði ekki lögsögu í málinu
vegna þess að ríkin tvö hefðu ekki
reynt að semja í deilunni áður en
farið var með hana fyrir dómstóla.
Georgíustjórn lagði fram kvört-
un undir lok fimm daga stríðsátaka
árið 2008 og hélt því fram að rúss-
nesk yfirvöld og sveitir málaliða
hefðu á tveimur áratugum myrt
þúsundir Georgíumanna í héruð-
unum tveimur og hrakið um þrjú
hundruð þúsund þeirra á flótta.
Stríðið hófst 7. ágúst 2008 og því
lauk með vopnahléi 12. ágúst. Rúss-
ar hafa einir ríkja viðurkennt sjálf-
stæði héraðanna tveggja.
Fulltrúi Georgíustjórnar sagðist
vonsvikinn vegna frávísunarinnar
og útilokaði ekki að nýtt mál yrði
höfðað seinna. Utanríkisráðherra
Rússlands var hins vegar ánægður
og sagði niðurstöðuna í samræmi
við málflutning Rússa.
Málinu er því lokið á vettvangi
Alþjóðadómstólsins en hjá Alþjóða-
glæpadómstólnum er verið að rann-
saka bæði ríkin vegna gruns um
stríðsglæpi í fimm daga stríðinu.
- þeb
Alþjóðadómstóllinn vísar máli Georgíumanna vegna þjóðernishreinsana frá:
Ríkin reyndu ekki að semja
ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINN Dómararnir
sextán ganga inn í réttarsalinn í gær.
Fulltrúar Georgíu og Rússlands fylgdust
með. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hálffertugur maður, Ing-
var Árni Ingvarsson, var í gær
dæmdur í tveggja ára fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
hrottalegt ofbeldi gegn sambýlis-
konu sinni.
Ingvar var fundinn sekur um
að hafa haldið konunni nauðugri
í íbúð sinni, rifið í hár hennar og
slegið hana og síðan veist að henni
þegar hún reyndi að flýja fram af
fjögurra metra háum svölum með
þeim afleiðingum að hún féll til
jarðar og slasaðist illa.
Þá var Ingvar einnig dæmdur
fyrir að reyna að kúga tvær millj-
ónir út úr konunni með því að hóta
henni og bróður hennar ofbeldi,
og að hóta því að limlesta son ann-
arrar konu. Ingvar, sem á nokk-
urn sakaferil að baki, er dæmdur
til að greiða sambýliskonunni 860
þúsund krónur í bætur. - sh
Féll fram af svölum í átökum:
Tvö ár í fangelsi
fyrir hrottaskap
DÓMSMÁL Heildsöluinnlán gamla Landsbankans og
Glitnis teljast forgangskröfur í þrotabú bankanna
samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í
gær. Dómurinn úrskurðaði jafnframt að neyðar-
lögin svokölluðu brytu ekki í bága við eignarréttar-
vernd eða jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Héraðsdómur tók afstöðu til alls níu mála í gær-
morgun þar sem þess var krafist að heildsöluinn-
lán yrðu metin sem almennar kröfur í þrotabú
bankanna. Slitastjórn Landsbankans hefur talið
heildsöluinnlánin til forgangskrafna en slitastjórn
Glitnis talið þau til almennra krafna. Héraðs-
dómur staðfesti mat slitastjórnar Landsbankans
og þar með þær forsendur sem gengið hefur verið
út frá í útreikningum um mögulegan kostnað við
fyrirliggjandi Icesasve-samninga.
Samninganefnd Íslands í Icesave-deilunni sendi
frá sér tilkynningu í kjölfar dómanna í gær. Þar
segir að niðurstaða þeirra styrki forsendur Icesave-
samninganna og dragi úr réttaróvissu um stöðu
þeirra sem geri kröfu til að njóta forgangs við
úthlutun úr búi Landsbankans. Af því leiði að slita-
stjórnin geti að öllum líkindum hraðað úthlutun úr
búinu frá því sem samninganefndin hafi gert ráð
fyrir. Við það dragi markvert úr kostnaði ríkis-
ins við vaxtagreiðslum af höfuðstól þeirrar fjár-
hæðar sem íslenska ríkið endurgreiði Bretum og
Hollendingum samkvæmt samningunum.
Dómurinn hefur að öðru óbreyttu þau áhrif að
almennir kröfuhafar í bú Glitnis munu fá minna í
sinn hlut en áður hefur verið gert ráð fyrir. - mþl
Héraðsdómur staðfestir forsendur Icesave-samningsins:
Heildsöluinnlán forgangskröfur
HÉRAÐSDÓMUR Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort
málunum níu verður áfrýjað til Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Fylgismenn
Alassane Ouattara, réttkjörins
forseta Fílabeinsstrandarinnar,
umkringdu forsetahöllina í Abidj-
an, stærstu borg landsins, í gær.
Þar situr Laur-
ent Gbagbo, for-
seti undanfarin
10 ár, en hann
hefur neitað að
láta af völdum
þrátt fyrir að
hafa tapað for-
setakosningum
í haust.
Stuðnings-
menn mannanna tveggja sem
tókust á í kosningunum hafa átt
í átökum víða um landið. Nú sér
hins vegar fyrir endann á þeim en
búist er við því að Gbagbo verði
komið frá völdum um helgina. - mþl
Forsetahöllin umkringd:
Gbagbo komið
frá á Fílabeins-
ströndinni
LAURENT GBAGBO
AFGANISTAN Tólf létust í mótmæl-
um í afgönsku borginni Mazar-i-
Sharif í gær, þar af þrír starfs-
menn Sameinuðu þjóðanna, fjórir
nepalskir öryggisverðir og fimm
afganskir mótmælendur.
Mótmælendurnir réðust inn
á skrifstofur Sameinuðu þjóð-
anna þegar þeir voru að tjá andúð
sína á prestinum Wayne Sapp,
sem brenndi Kóraninn í kirkju í
Flórída 21. mars.
Staðfest er að einn Svíi og einn
Norðmaður létust en þjóðerni
hins þriðja er óþekkt. - sh
Blóðug mótmæli í Afganistan:
Starfsmenn SÞ
meðal látinna
SPURNING DAGSINS