Fréttablaðið - 02.04.2011, Qupperneq 4
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR4
BORGARMÁL „Ég get alls ekki
samþykkt að við förum „írsku
leiðina“ til að bjarga Orkuveit-
unni,“ segir Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, um fimmtíu
milljón króna aðgerðaáætlun
vegna fjárhagsvanda Orkuveitu
Reykjavíkur, sem samþykkt
var í borgarstjórn á fimmtudag.
Minnihlutinn sat hjá þegar málið
var borið undir atkvæði.
„Við erum almennt á því að
það þurfi aðgerðir en mér finnst
ekki í lagi að allar byrðarnar
séu lagðar á borgarbúa án þess
að kanna hvort
lánardrottnar
taki ekki á sig
kostnað líka
enda bera þeir
mikla ábyrgð.“
Hún segist
hafa fengið þau
svör frá meiri-
h luta nu m á
borgarstjórn-
arfundinum á
fimmtudag, þegar hún spurði
hvort ekki hefði verið kannað
hvort lánardrottnar hefðu til
dæmis verið fáanlegir til að slá
af skuldum, breyta tímasetning-
um eða lækka vexti, að það hefði
ekki verið gert. „Þetta er ámæl-
isvert,“ segir hún.
Með „írsku leiðinni“ vísar
hún til þess þegar írska ríkis-
stjórnin tók á sig alla ábyrgð af
skuldum írska bankakerfisins. Í
Fréttablaðinu í gær kemur fram
sá misskilningur blaðamanns að
hún hafi viljað fara „írsku leið-
ina“, og leiðréttist það hér með.
Hún var þvert á móti að gagn-
rýna þá aðferð borgarstjórnar-
meirihlutans.
- gb
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir gagnrýnir björgunaraðferð meirihlutans:
Ámælisvert að fara írsku leiðina
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
Í grein Svavars Gestssonar um veikt
umboð í blaðinu í gær stendur að
alltaf hafi verið samkomulag um
stjórnarskrárbreytingar 1959, 1983,
1995 og 1999. Hið rétta er að alltaf
var samkomulag nema 1959; þá vildu
framsóknarmenn halda í einmenn-
ingskjördæmin.
ÁRÉTTING
APRÍLGABB Umfjöllun Frétta-
blaðsins á forsíðu og í Allt-
kafla blaðsins í gær um að
steikt tryppaeistu yrðu boðin til
smakks í gamla söluturninum á
Lækjartorgi í tilefni Hestadaga í
Reykjavík var aprílgabb.
Er Úlfari Eysteinssyni mat-
reiðslumeistara á Þremur
frökkum þökkuð fyrirhöfnin og
gamansemin að spila með. - þlg
Lesendur látnir hlaupa apríl:
Tryppaeistun
voru aprílgabb
DÓMSMÁL Tæplega tvítugur pilt-
ur hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir fíkniefnabrot.
Pilturinn var undir áhrifum
fíkniefna við akstur þegar lög-
reglan stöðvaði hann.
Reyndist hann vera með tölu-
vert af maríjúana, kannabislauf-
um og ofskynjunarsveppum á
dvalarstað sínum.
Kannabisefnin hafði hann
ræktað frá byrjun júlí og þar til
húsleitin var gerð og hald lagt á
uppskeruna. - jss
Tæplega tvítugur ákærður:
Með maríjúana,
lauf og sveppi
HEILBRIGÐISMÁL Fyrsta hluta heilsu-
farsrannsóknar sóttvarnalæknis
vegna díoxínmengunar frá sorp-
brennslum á Ísafirði, Kirkjubæjar-
klaustri og Vest-
mannaeyjum er
lokið. Ákveðið
var að taka sýni
úr íbúum til að
ganga úr skugga
um hvort díox-
ín, sem greinst
hefur í skepn-
um, afurðum og
fóðri í nálægð við
sorpbrennsluna Funa á Ísafirði,
hefði náð til íbúa.
Haraldur Briem sóttvarnalækn-
ir segir að sýnatakan hafi gengið
að óskum, þrátt fyrir að hún hafi
dregist nokkuð frá því sem upp-
haflega var áformað. Íbúar hafi
sýnt mikinn samstarfsvilja. Næsta
skref er að koma blóðsýnum, auk
brjóstamjólkursýnis, á rannsókna-
stofu erlendis til greiningar. Nið-
urstaðna er að vænta eftir fimm
til sex vikur.
„Þetta er ekki stór hópur. Senni-
lega tugur manns sem gaf blóð-
sýni og ein kona sem gaf brjósta-
mjólkursýni,“ segir Haraldur.
„Síðan verða tekin töluvert fleiri
viðmiðunarsýni; tíu á Ísafirði og
tíu á höfuðborgarsvæðinu í fram-
haldinu. Þetta verður talsvert stór
hópur manna.“
Hluti af rannsókninni er að
kanna blýmagn í hári, en ef blý
mælist er líklegt að einnig sé þar
að finna díoxín. Sérstök rannsókn
á blýmagni í hári er síðan fyrir-
huguð á vegum Háskóla Íslands
og Matvælastofnunar; sótt hefur
verið um styrki til þeirrar rann-
sóknar, sem gæti hafist eftir
nokkra mánuði.
Meðal þeirra sem gáfu sýni á
Ísafirði eru hjónin á Efri-Engi-
dal, þar sem díoxín mældist upp-
haflega í kúamjólk. Einnig í hópn-
um er dóttir þeirra, sem gaf auk
þess brjóstamjólkursýni, en hún
bjó hjá foreldrum sínum á meðan
hún gekk með barnið. Einn starfs-
maður sorpbrennslunnar Funa gaf
sýni.
Haraldur ítrekar að hann eigi
ekki von á að fólk hafi orðið fyrir
heilsutjóni af völdum mengunar-
innar. Hins vegar snúi rannsókn-
in, sem á sér enga hliðstæðu hér
á landi, að því mikilvæga atriði að
leita upplýsinga um hvað gerðist í
sveitar félögunum þremur. Rann-
sóknin fellur inn í allsherjarút-
tekt þar sem Umhverfisstofnun
mun meðal annars gera sérstaka
rannsókn á jarðvegi í nágrenni
við sorpbrennslurnar, auk annarra
svæða þar sem er mengandi starf-
semi. Sýnatakan er áformuð í maí
næstkomandi. svavar@frettabladid.is
Sýnatöku úr íbúum
vegna díoxíns lokið
Lokið hefur verið við að taka sýni úr íbúum þriggja sveitarfélaga vegna díoxín-
mengunar frá sorpbrennslum. Tekin voru blóð-, brjóstamjólkur- og hársýni.
Tekin voru sýni úr tug manna. Háskóli Íslands undirbýr stóra rannsókn.
BLÓÐTAKA Tekin hafa verið sýni úr einstaklingum sem ætla má að hafi komist í
snertingu við díoxín. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
HARALDUR BRIEM
GENGIÐ 01.04.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,2161
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,27 114,81
183,38 184,28
161,58 162,48
21,668 21,794
20,646 20,768
18,073 18,179
1,3646 1,3726
180,56 181,64
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FORSTJÓRI NASDAQ OMX Robert
Greifeld sagði í samtali við erlenda fjöl-
miðla í gær sameinaða kauphöll geta
orðið sterka. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
VIÐSKIPTI Kauphallarsamstæðan
Nasdaq OMX og evrópski mark-
aðurinn Intercontinental Exc-
hange lögðu í gær fram tilboð
í hlutabréfamarkaðinn NYSE
Euronext upp á 11,3 milljarða
dala, jafnvirði tæpra 1.300
milljarða króna.
Nasdaq OMX samanstendur af
Nasdaq-markaðnum í Bandaríkj-
unum, mörkuðum í fjórum Norð-
urlandaríkjum og í Eystrasalts-
ríkjunum. Kauphöllin hér er hluti
af samstæðunni.
Bandaríska dagblaðið Los
Angeles Times segir boðið geta
sett strik í reikninginn enda hafi
stjórn NYSE Euronext þegar
tekið tilboði þýsku kauphallar-
innar upp á 9,5 milljarða dala.
- jab
Bandarískur risi gæti orðið til:
Nasdaq OMX
býður í NYSE
Bjóði út rekstur Salalaugar
Tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
leggja til í bæjarráði Kópavogs að
rekstur Salalaugar verði boðinn út.
„Útboð myndi leiða í ljós hvort hægt
væri að létta á bæjarsjóði, lífga upp
á rekstur laugarinnar og hækka
þjónustustigið við íbúana,“ segir í til-
lögunni. Afgreiðslu hennar var frestað.
KÓPAVOGUR
FÓLK Frjósemi mældist hæst
á Íslandi í nýlegri könnun
Eurostat, tölfræðistofnunar
ESB, á barneignum í ríkjum
ESB, EFTA og umsóknarlöndum
ESB.
Þar kom í ljós að hver kona á
Íslandi átti 2,23 börn árið 2009,
sem er aukning frá árinu 2003
þegar samsvarandi fjöldi var
1,99.
Næstu lönd eru Tyrkland,
með 2,10 börn á hverja konu árið
2009, Írland með 2,07 og Frakk-
land með 2,00 börn.
Meðaltalið fyrir ESB-ríkin 27
var 1,60 börn árið 2009 og hafði
hækkað úr 1,47 árið 2003. - þj
Tölfræði um barneignir:
Íslenskar konur
þær frjósöm-
ustu í Evrópu
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
22°
21°
15°
23°
24°
12°
12°
20°
15°
22°
11°
29°
6°
22°
16°
7°
Á MORGUN
Hæglætis veður.
MÁNUDAGUR
8-15 m/s SV-til,
annars hægari.
2
2
3
3
3
-1
4
7
7
5
5
6
5
5
6
4
7
4
6
3
5
4
1
1
5
6
2 3 2
2
5
4
HÆGLÆTIS
VEÐUR Það verður
lítið hægt að kvarta
undan veðrinu
í dag. Hæglætis
veður, úrkomulítið
og nokkuð bjart.
Það verður samt
dálítið svalt norð-
austan til og lítur
út fyrir slyddu eða
sjókomu þar á
sunnudag. Suð-
vestanátt með
vætu og hlýindum
seint á mánudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður