Fréttablaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 8
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR8
SKUPULAGSMÁL Húsafriðunarnefnd
leggur til við Katrínu Jakobsdótt-
ur, mennta- og menningarmála-
ráðherra, að hún friði gamla flug-
turninn á Reykjavíkurflugvelli.
Flugmálastjórn og Isavia, sem
rekur flugvöllinn, leggjast ein-
dregið gegn því að turninn standi
áfram á sínum stað.
„Ástæða þess að Isavia leggst
gegn þessu er að flugturninn er
hindrun í flugbrautaröryggissvæði
og því frávik frá öryggisreglum að
hafa hann áfram á þeim stað þar
sem hann er nú,“ segir Hjördís
Guðmundsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Isavia.
Hjördís undirstrikar að Isavia
leggist eingöngu gegn friðun
turnsins á núverandi stað. „Isavia
gerir hins vegar ekki athugasemd
við að turninn verði fjarlægður og
enduruppbyggður á öðrum heppi-
legri stað í nágrenni flugvallarins
eða annars staðar,“ segir hún.
Meðal ábendinga sem Húsa-
friðunarnefnd hefur fengið frá
flugmálayfirvöldum er að jafnvel
þótt turninn yrði friðaður og hann
gerður upp myndi almenningur
ekki geta notið hans. Ástæðan sé
sú að byggingin sé á skilgreindu
öryggissvæði sem óviðkomandi
hafi ekki aðgang að.
Húsafriðunarnefnd segir hins
vegar að óumdeilt sé að í aðal-
skipulagi Reykjavíkur fyrir árin
2001 til 2024 sé ákvæði um brott-
flutning flugvallarstarfsemi úr
Vatnsmýrinni. Nefndinni beri „að
stuðla að varðveislu byggingar-
arfs þjóðarinnar og meta hvaða
hús er rétt að friða hverju sinni og
gera um það tillögur til mennta- og
menningarmálaráðherra“. - gar
Húsafriðunarnefnd segist eiga að stuðla að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar:
Friðar flugturn í óþökk flugyfirvalda
GAMLI FLUGTURNINN Auk flugmála-
yfirvalda hefur umhverfissvið Reykja-
víkurborgar lagt til að flugturninn verði
fjarlægður í þágu flugöryggis en húsa-
friðunarnefnd er á öðru máli.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
STJÓRNMÁL Með áformuðum breyt-
ingum á lögum um Stjórnarráð
Íslands er foringjaræði fest í sessi
og vald fært frá Alþingi, þvert gegn
margradda gagnrýni undanfarin
misseri. Breytingarnar stuðla að því
að hér verði einn yfirráðherra með
allt að níu aðstoðarráðherrum sem
yfirráðherrann ákveði hvað geri.
Þetta er mat Jóns Bjarnasonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, sem leggur til að frumvarp
til breytinganna fari í tiltekinn
farveg áður en það komi til kasta
Alþingis. Vill hann að óvilhallir
aðilar meti hvort breytingarnar
samrýmist varnaðarorðum og veg-
vísi í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis og að stjórnlagaráð veiti
um það umsögn áður en það verði
lagt fyrir þingið.
Jón bókaði andstöðu sína þegar
frumvarpið var kynnt á fundi ríkis-
stjórnarinnar fyrir helgi. Efnisleg
afstaða hans kemur fram í minnis-
blöðum sem til eru í ráðuneyti hans
og Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir.
Eitt helsta gagnrýnisatriði Jóns
er sú fyrirætlan að veita forsætis-
ráðherra vald yfir hvaða ráðuneyti
eru starfrækt og vald til að flytja
málefni milli ráðuneyta. Alþingi
fer í dag með það vald og telur Jón
að þannig eigi það að vera. Flutn-
ingur valds frá þinginu til forsætis-
ráðherra gangi þvert gegn umræðu
sem verið hefur um skipan mála frá
hruni.
Jón geldur varhug við breyt-
ingunum og bendir á að mjög hafi
verið gagnrýnt að í aðdraganda
bankahrunsins hafi viðskipta-
ráðherra verið haldið utan við
umræður og ákvarðanatökur. Slíkt
verklag verði gert eðlilegt með
breytingunum.
Heimild til flutnings verkefna
milli ráðuneyta telur Jón geta
stuðlað að gerræði þegar ágrein-
ingur rís milli ráðherra og almennt
telur hann breytingarnar gera
stjórnkerfið óskýrara, vinna gegn
gagnsæi og draga úr formfestu.
Að mati Jóns gengur frumvarpið
gegn veigamikilli gagnrýni á skip-
an mála í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis. Telur hann réttast að
nefndarfólkið; Páll Hreinsson, Sig-
ríður Benediktsdóttir og Tryggvi
Gunnarsson, geri sérstaka úttekt
á frumvarpinu og máti það við
gagnrýni sína.
Að auki varar Jón við að farið sé
fram með málið ofan í fyrirhugaða
vinnu nýskipaðs stjórnlagaráðs.
bjorn@frettabladid.is
Foringjaræði treyst og
vald fært frá Alþingi
Jón Bjarnason er afar gagnrýninn á frumvarp um breytingar á lögum um
Stjórnarráðið. Áformaðar breytingar séu þvert á gagnrýni á vinnubrögð í að-
draganda hrunsins og í ósamræmi við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
ÓSÁTTUR Jón Bjarnason gerir margháttaðar athugasemdir við frumvarp forsætis-
ráðherra um breytingar á lögum um Stjórnarráðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1 Hver er formaður Samtaka
atvinnulífsins?
2 Hvað safnaðist mikið í Mottu-
marskeppni Krabbameinsfélags
Íslands?
3 Hvaða lið vann deildarkeppnina
í handbolta karla?
SVÖR
1. Vilmundur Jósefsson, 2. Tæpar 30
milljónir króna, 3. Akureyri.
VEISTU SVARIÐ?