Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2011, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 02.04.2011, Qupperneq 32
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR32 alls konar tónlist og ég saknaði þess aldrei að syngja ekki meiri rokktón- list. Ég er bara ekki þessi rokkaða týpa.“ Tók söguburðinn nærri sér Í hljómsveit Magnúsar Ingimarsson- ar kynntist Þuríður Pálma Gunnars- syni og þau urðu par. Eins áberandi og hljómsveitin var fór ekki hjá því að samband þeirra vekti althygli og þau lentu milli tannanna á fólki. „Ég hafði reyndar orðið vör við það áður hversu illgjarnt fólk getur verið. Ég hafði heyrt alls konar sögur um sjálfa mig, átti að hafa eignast barn og gefið það úr landi, farið heim með giftum mönnum, vera á kafi í dópi og ég veit ekki hvað og hvað. Ég tók þennan söguburð mjög nærri mér og fannst alveg óskaplegt að fólk gæti verið svo ómerkilegt og illgjarnt að ljúga upp svona sögum. Ég tók þá ákvörðun strax og ég byrjaði að syngja að hafa aldrei áfengi um hönd þegar ég væri að vinna, finnst það bara alls ekki fara saman og hef staðið við það. Pálmi lenti hins vegar enn verr í kjaftaganginum en ég, enda kemur hann mjög ungur inn í hljómsveitina austan af landi og var bara ekkert viðbúinn þeim tækifærum sem felast í því að vera tónlistarmaður. Á þessum tíma var líka allt í einu svo margt nýtt í boði, eins og hassreykingar og fleira og Pálmi réði ekki við þetta. Það reyndi auðvitað mjög á sambandið og ég var mjög ósátt við hassreykingar hans og drykkju. En sem betur fer náðum við seinna að gera upp okkar samband.“ Var ekki hugað líf Fæðing eldri sonarins olli straum- hvörfum í lífi Þuríðar. „Ég fékk barnsfararsótt og var alveg rosa- lega veik. Það trúði reyndar ekki nokkur maður að það væri það sem væri að hrjá mig og það tók læknana óratíma að komast að niðurstöðu. Ég lá á sjúkrahúsi í átta vikur og var ekki hugað líf um tíma, vissi ekk- ert hvar ég var og gat hvorki hreyft legg né lið en var með fullri með- vitund þótt ég gæti ekki tjáð mig og sannreyndi þá að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Þessi reynsla varð til þess að ég fór að hugsa öðruvísi og varð þakklátari fyrir lífið.“ Eftir að leiðir þeirra Pálma skildu gekk Þuríður til liðs við Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar sem var hús- hljómsveit á Hótel Sögu. „Við Raggi áttum mjög gott samstarf og Sum- argleðiárin voru ótrúlega skemmti- legur tími. En ég var orðin dálítið þreytt á skemmtanabransanum, hafði lengi unnið sem flugfreyja á sumrin og fór í fullt starf hjá Arnar- flugi. Svo var ég sjónvarpsþula um tíma og var með útvarpsþátt á Aðal- stöðinni á meðan hún var og hét, þannig að ég hef reynt ýmislegt.“ Draumurinn um myndlistina blundaði þó alltaf í brjósti Þuríðar og árið 1996 hóf hún myndlistar- nám í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti. „Ég fór í kvöldskóla og var þar fjögur kvöld í viku og ef ég skróp- aði þá vissi það öll þjóðin, því þá var ég á sjónvarpsskjánum. Eftir að ég kláraði það nám sótti ég um í Listaháskólanum, útskrifaðist þaðan árið 2001 og hef síðan einbeitt mér að myndlistinni.“ Við höfum farið hratt yfir feril Þuríðar, en ætlar hún sjálf ekki að halda upp á afmælið á einhvern hátt? „Afmælið var nú strangt tekið í nóvember á síðasta ári, en ég ætla að vera með nokkurs konar afmælistónleika í Bátahúsinu á Siglufirði um páskana, þar sem ég fer yfir ferilinn með hljómsveitinni Vönum mönum. Þetta verður svona blanda af lögum sem ég hef sung- ið í gegnum tíðina og lögum sem tengjast Siglufirði.“ H afi ég haft ein- hverja tilhneig- ingu til að verða vandræðaung- lingur þá reyndi bara aldrei á það, ég hafði engan tíma til þess,“ segir Þuríður, sem byrjaði að syngja sextán ára gömul, var sautján ára komin í fulla vinnu sem söngkona og stóð á sviðinu sjö sinnum í viku auk þess að koma fram í fjölda sjón- varpsþátta og syngja í útvarp og inn á plötur. En hvernig byrjaði ævin- týrið? „Ég tróð upp í fyrsta skipti á samkomustað sem hét Lídó og var til húsa þar sem Fréttablaðið er núna. Gulli Bergmann stóð fyrir þessu skemmtikvöldi fyrir unglinga og var að leita að stelpu sem gæti sungið. Á þessum tíma var ung- lingamenningin að verða til og allt í einu áttu unglingar tilverurétt. Gulli var ötulasti innflytjandi ung- lingabyltingarinnar og vildi bara fá unglinga til að skemmta á þessum unglingasamkomum sem hann stóð fyrir. Ég ætlaði mér aldrei að verða söngkona, hafði verið fengin til að syngja einsöng með skólakórnum í Laugarnesskóla þegar ég var tólf ára, þótt ég væri ekki í kórnum og þá ákvað ég að leggja ekki sönginn fyrir mig því ég var svo titrandi nervös. Ég hefði aldrei í lífinu getað tekið þátt í Idol eða einhverja slíku, ég hefði dáið.“ Á Röðli sex kvöld í viku Þuríður lét þó tilleiðast þegar Gulli hafði samband, söng lagið Elskaðu mig, íslenskun á lagi Cher Baby Don‘t Go, í Lídó og boltinn fór að rúlla. „Ári seinna kom ég fram á tónleikum í Austurbæjar- bíói í tengslum við fegurðarsam- keppni ungu kynslóðarinnar, söng These boots are made for walking og var dressuð upp í silfurstígvél sem náðu upp fyrir hné, rosalega flott. Magnús Ingimarsson og Vil- hjálmur Vilhjálmsson voru á þess- um tónleikum og Magnús hringdi í mig daginn eftir og bauð mér vinnu í hljómsveitinni. Mér fannst þetta svolítið spennandi, auk þess sem ég var að klára skólann, langaði að fara að læra myndlist og sá fyrir mér að ég gæti bara sungið í eitt eða tvö ár og átt þannig fyrir náminu.“ Árin urðu aðeins fleiri en Þur- íður ætlaði sér í upphafi. „Ég söng með hljómsveit Magnúsar Ingi- marssonar í fjögur ár og með þeim söng ég þau lög sem hafa lifað lengst eins og Ég ann þér enn og Ég á mig sjálf, auk þess sem við Villi sung- um mikið í útvarpi og það var varla nokkur sjónvarpsþáttur tekinn upp á þessum árum án þess að hljóm- sveitin kæmi þar við sögu. Þannig að þessi hljómsveit hefur lifað með þjóðinni. “ Hljómsveit Magnúsar Ingimars- sonar var svona frekar virðuleg hljómsveit og spilaði á Röðli þar sem aldurstakmarkið var 20 ár, langaði þig aldrei að syngja í rokk- hljómsveit fyrir unglinga í þínum aldri? „Ég byrjaði nú með uppsteyt um leið og ég kom inn í hljómsveit- ina, heimtaði að strákarnir létu hárið vaxa og klæddu sig í samræmi við tískuna, en hljómsveitin spilaði Ég er ekki þessi rokkaða týpa Þuríður Sigurðardóttir, ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar um árabil, fagnar 45 ára söngafmæli á þessu ári. Friðrika Benónýs- dóttir ræddi við hana um árin í bransanum, kjaftasögurnar og lífshættuna sem breytti lífi hennar. ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR „Ég tók þennan söguburð mjög nærri mér og fannst alveg óskaplegt að fólk gæti verið svo ómerki- legt og illgjarnt að ljúga upp svona sögum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Með Vilhjálmi Vilhjálmssyni Í sjónvarps- þættinum Úr einu í annað árið 1976. Úr sjónvarpsþætt- inum Litli sandur Hann var tekinn upp á þaki sjón- varpshússins við Laugaveg. Í „hot pants“ Með Hljóm sveit Magnúsar Ingimars- sonar á Röðli. Með Bessa og Ragga Í sumargleðinni. ■ FJÖLBREYTTUR FERILL Sjónvarpsþulan. Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 w w w .h ir zl an .i s SKRIFSTOFUHÚSGÖGN á miklu betra verði ! Hæðarstillanleg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.