Fréttablaðið - 02.04.2011, Blaðsíða 34
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR34
T
öluverð eftirvænting
myndaðist áður en
Apple setti fyrstu gerð
iPad-sófatölvunnar á
markað fyrir páska í
fyrra. Það er kannski
ofsögum sagt að tölvan hafi farið
sigurför um heiminn. Á móti er vit-
leysa að reyna að halda því fram að
tölvan hafi engu breytt. Vinsældir
hennar hafa valdið því að keppi-
nautar Apple í tæknigeiranum
settu í fimmta gír í fyrra og hafa
unnið að því hörðum höndum að ná
í sneið af þeim markaði sem allt í
einu varð til þegar iPad-tölvan leit
dagsins ljós.
Tölvurnar eru álíka misjafnar og
þær eru margar. Þær eru af öllum
stærðum og gerðum en flestar eiga
þær það sammerkt að apa eftir
iPad-inum á einn eða annan hátt.
Ég fékk fyrstu iPad-tölvuna
í hendur sama dag og hún kom
hingað til lands í fyrra og eyddum
við saman heilli helgi uppi í sófa –
með nauðsynlegum hléum. Ég varð
heillaður enda komin þarna græja
sem ég gæti hugsað mér að eiga:
Í stað þess að endasendast niður
fjórar hæðir í blokkinni minni eftir
dagblöðum á laugardagsmorgni
og þurfa að hlaupa kaffiþyrstur
upp aftur sá ég fyrir mér að geta
sest með tölvuna við eldhúsborðið
og flett í gegnum það helsta með
sambærilegum hætti og ef ég
væri með pappír í höndunum. Það
sama á við um bókakaup. Ég gæti
lesið nýjustu bækurnar á rafrænu
formi fljótlega eftir að þær kæmu
á markað í stað þess að bíða eftir
sendingu að utan. Þessar vænting-
ar mínar gengu allar eftir þegar
ég prófaði mig áfram með fyrstu
kynslóð iPad-sins. Það sem helst
pirraði mig í fyrra var skortur á
myndavél og fjölvinnsla (e. multi-
tasking). Annað átti eftir að koma
á daginn.
Þeir eru þónokkrir sem ég hef
rætt við um ágæti spjaldtölva frá
því ég prófaði þá fyrstu. Sumir
skilja ekki kostina og spyrja hvern-
ig eigi að vera hægt að vinna á
svona græju. En það er málið. Þetta
er í flestum tilvikum ekki vinnu-
tölva, heldur sófatæki í eiginlegri
merkingu. Þótt kalla megi fram
lyklaborð nýtist það illa fyrir meira
en færslu á vefslóð, minnispunkta
eða stutt skilaboð. Þá er hvorki rit-
vinnsla né töflureiknir í tölvunum
þótt slíkt megi setja upp. Tölvur
sem þessar nýtast vel á löngum
ferðalögum, í flugvélum og lestar-
ferðum, í rútum og biðstofum hvers
konar. Sem vinnutæki gefast þær í
flestum tilvikum ekki vel.
Arftakinn handleikinn
Apple virðist hafa stigið varlega
til jarðar í nýjustu uppfærslunni
á iPad 2. Tölvan er jafn stór og
forverinn en nokkuð þynnri, um
hundrað grömmum léttari og laus
við kúpt bakið, sem gerir ráp, bók-
og blaðalestur uppi í sófa mun
þægilegri en áður. Þá gerir 1GHz
dual-core Apple A5-örgjörvinn
það að verkum að vélin er snarari
í snúningum en áður, tilfinnanlega
hraðvirkari en til dæmis nýjasta
gerðin af iPod Touch. Þá veldur
líftími rafhlöðunnar því að ekki
þarf að setja tölvuna oft í samband.
Vídeógláp og tölvuleikjaspil valda
því hins vegar að engu er líkara en
batteríið leki.
Þegar fyrsta gerðin af iPad-tölv-
unni kom á markað í fyrra kvört-
uðu margir yfir skorti á myndavél-
um. Á þeirri nýju eru myndavélar
bæði að aftan og framan. Ég verð
að viðurkenna að lítill tilgang-
ur finnst mér með bakmyndavél-
inni. Þetta er VGA-linsa sem tekur
myndir í lítilli upplausn og léleg í
lítilli birtu. Kosturinn er hins vegar
sá að vélin ræður við upptöku í hás-
kerpu og gerir hún það vel. Vanda-
málið er hins vegar að iPad-tölvan
og sambærileg tæki sem til eru á
markaðnum eru of stór og ættu að
mínu viti ekki að vera brúkaðar
sem myndavélar. Jafnvel Galaxy
Tab frá Samsung, sem er með um
sjö sentímetra minni skjá en iPad-
tölvan, er of stór.
Að myndavélunum undanskildum
þá varð ég fyrir vonbrigðum með
skjá iPad 2-tölvunnar. Áður en
hún kom á markað gerðu menn sér
vonir um að hana myndi prýða sam-
bærilegur Retina-skjár og á iPhone
4-símunum og nýjustu gerðinni af
iPod Touch og flaggar frábærri
upplausn. Því er ekki að skipta
heldur er iPad 2 með sömu skjágerð
og forverinn. Hann er fínn en skil-
ar því að ég hrópaði ekki upp yfir
mig af hrifningu. Þá get ég ekki
gert upp við mig hvort það sé kost-
ur eða löstur að Apple standi fast
á sínu og úthýsi stuðningi við Win-
dows Media Player og annan hug-
búnað undan hatti Microsoft. Það
veldur því að ekki er hægt að sjá
og hlusta á fréttir Ríkisútvarpsins
og skoða myndbönd sem einungis
keyra á slíkum búnaði.
Í leit að fyrsta kikkinu
Eftir því sem lengra líður frá því
ég fór höndum um iPad-tölvuna hef
ég áttað mig á því að þegar fyrsta
gerðin kom á markað varð ég mjög
upprifinn. Mér fannst bylting
handan við hornið, dagblöð á papp-
írsformi komin nær grafarbakk-
anum en nokkru sinni og tölvu-
notkun verða önnur en áður. Þótt
ég sé enn sama sinnis um framtíð
blaðaútgáfu og áður þá grunar mig
tvennt; Í fyrsta lagi virðist Apple
ætla að feta svipaða stigu og við
þróun á iPod Touch-lófatölvunni og
bæta fáeinum atriðum við græjuna
í hverju skrefi. Í öðru lagi gerði ég
mér of miklar vonir með tilkomu
iPad 2, ég einfaldlega get ekki upp-
lifað sömu tilfinningu á ný og þegar
ég fékk forverann í hendur.
Eyjaskeggjar í einangrun
Einn af nauðsynlegustu fylgihlut-
um smátölva frá Apple er aðgangur
að netbúðunum iTunes og App-hug-
búnaðarversluninni. Eins og fram
kemur í hliðarefni með greininni
eru dyr þessara verslana lokaðar
hér á landi. Ísland er ekki meðal
þeirra landa sem geta átt viðskipti
við verslanirnar og greiðslukort
héðan ekki gjaldgeng þar.
Þetta er óþolandi og veldur því
að iPad-tölvur, iPod, Apple-tölvur
og iTunes-tónlistarforritið eru
ekki nema hálfnýtt fyrirbæri. Og
er þá hálf sagan sögð því þar er
að finna gríðarstóran markað með
hugbúnað, tónlist og kvikmyndir,
mun meira úrval af efni og kjör-
um en nokkru sinni hefur verið
í boði hjá nokkurri netveitu hér
á landi. Fjallabaksleið og ýmsar
aðrar ófærur eru hins vegar mögu-
legar. Vel hefði mátt gefa lesendum
Fréttablaðsins kost á að sjá hvaða
leiðir eru færar. Eftir því sem næst
verður komist gæti slíkt hins vegar
flokkast til lögbrota og því efninu
kastað fyrir borð.
Kúrt í annað sinn með iPad
Ísland var eitt þeirra 25 landa sem fengu nýjustu iPad-spjaldtölvuna frá Apple um síðustu helgi. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
heillaðist af fyrstu gerð tölvunnar og hefur síðastliðið ár prófað nokkrar spjaldtölvur sem hafa komið á markað. Um síðustu helgi
endurtók hann leikinn frá í fyrra, lagðist upp í sófa og bar nýjustu kynslóð af heitustu sófagræju í heimi saman við tvo keppinauta.
EKKI HÆGT AÐ HORFA Á FRÉTTIR RÚV iPad-tölva Apple styður ekki við Flash og Windows Media Player sem veldur því að ekki er
mögulegt að skoða allt efni á netinu. Í borð- og fartölvum er lítið mál að hala niður viðbótarhugbúnaði til að horfa og hlusta á
fréttir á RÚV. Mér tókst það aldrei á iPad-tölvunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslendingar hafa oftar en ekki komið að lokuðum
dyrum hjá erlendum netveitum sem selja sjón-
varpsefni, hljóðbækur og tónlist á stafrænu formi.
iTunes-verslun Apple er ein þeirra enda
íslensk greiðslukort ekki viðurkennd
þar. Þessar lokuðu dyr koma í veg
fyrir að þeir sem eiga tæki frá Apple
geti nýtt sér App-forritabúðina hvort
heldur er til að kaupa á hugbúnaði
fyrir iPad, iPod Touch eða iPhone-
síma eða næla sér í ókeypis efni.
Margir hafa klórað sér í hausnum
yfir ástæðunni. Apple ytra á réttinn
á App-versluninni auk þess sem
greiða þarf skatt í heimalandi við-
skiptavinarins. Apple hefur brugðist
við með því að stofna App-verslun í öðrum
löndum í þeim tilgangi að innheimta skattinn í
hverju landi. Von er á íslenskri App-verslun á næstu
misserum. Hvenær það verður hefur ekki fengist
staðfest.
Apple þarf að semja við rétthafa
Hvað tónlistarkaupin varðar þá hefur STEF, Sam-
band tónskálda og eigenda flutningsréttar, gert
samning við iTunes um kaup og sölu á tónlist í
gegnum NCB (Nordisk Copyright Burau). Samning-
urinn nær til allra Norðurlandanna auk Eystrasalts-
ríkjanna þriggja. Samkvæmt upplýsingum frá STEF-i
fá íslenskir tónhöfundar greitt fyrir þá tónlist sem
þeir selja á vefsíðum iTunes í gegnum STEF.
Frá sjónarhóli STEF sé ekkert því til fyrirstöðu
að iTunes opni netverslun hér. STEF upplýsti
Fréttablaðið að sambandið sé ekki á móti
því að iTunes opni verslun hér eða opni fyrir
aðgang að einni af norrænu verslununum.
Apple þurfi að semja við flytjendur og
hljómplötuframleiðendur sem eiga
réttinn hér á landi yfir þeim hljóðritum
sem yrðu seld.
Bakdyrnar opnar
Þrátt fyrir að aðaldyr iTunes- og App-
búðanna séu lokaðar Íslendingum eru
þeir netverjar til sem hafa mjakað sér
inn í gegnum bakdyrnar. Þeir sem vilja
hafa fengið ættingja og vini sem leið
hafa átt um Bandaríkin til að kaupa
fyrir sig inneignarkort með aðgangs-
kóða í Apple-verslun. Þau kosta allt
frá 10 dölum til 50, tæpra 1.200
króna til rúmra 5.700. Sömuleiðis
má finna vefsíður á netinu sem selja inneignarkort
og fá aðgangskóða sendan í tölvupósti. Það eitt og
sér er þó ekki nóg enda nokkrum vandkvæðum
bundið að setja upp aðgang hjá netbúðunum.
Risastór afþreyingarverslun
iTunes- og App-netbúðir Apple hafa upp
á mikið að bjóða. Þar má finna tónlist og
kvikmyndir, sjónvarpsþætti, tölvuleiki og
ýmsan hagnýtan hugbúnað. Sem dæmi
um vöru er platan My Beautiful Dark
Twisted Fantasy með Kanye West sem
kostar 11,99 dali, jafnvirði 1.380
króna. Þetta er helmingi lægra verð
en netverjar greiða hér (sama plata
kostar 2.299 krónur á tonlist.is). Þá er
hægt að kaupa og leigja mikið magn
kvikmynda og sjónvarpsþátta, jafnvel
heilu sjónvarpsseríurnar. Ein af nýlegri
kvikmyndum er Black Swan með
Natalie Portman í aðalhlutverki. Þeir
sem vilja eiga myndina þurfa að punga
út 14,99 dölum, jafnvirði 1.700 króna.
Hana má leigja fyrir 3,99 dali, jafnvirði
460 króna. Þeir sem leigja myndir hafa 30
daga til að byrja að horfa á þær.
■ AÐALDYR ITUNES LOKAÐAR Á ÍSLANDI
Galaxy Tab
frá Samsung
Á sama tíma og spjaldtölvan frá Samsung er sú minnsta
sem ég hef komið höndum yfir
er hún sú skemmtilegasta og
liprasta sem ég hef prófað. Tölv-
an er með sjö tommu (17,8 senti-
metrar) snertiskjá og vegur
tæp 400 grömm. Hún keyrir
á Android 2,2 stýrikerfinu, er
með 512 MB vinnsluminni, 16
GB disk sem má stækka og
keyrir á 1 GHz-örgjörva. Til
viðbótar er hún með 3G-stuðn-
ing, styður við Flash, með 1 MB
myndavél að framan og 3 MB
myndavél að aftan sem getur
tekið upp myndbönd í háskerpu.
Næstum allt má gera á græjuna
og vandfundið hvað ekki er
mögulegt. Þá er ágætt að lesa af
skjánum hvort heldur er bækur
eða blöð og horfa á myndefni á
hvaða formi sem er. Til viðbótar
er gott að skrifa á lyklaborðið
þótt skjárinn sé smár. Tölvuna
má sömuleiðis nota sem síma
og er þá fátt upp talið. Græj-
an kostar rétt rúmar hundrað
þúsund krónur í Samsung-setr-
inu. Samsung hefur boðað nýja
kynslóð af Galaxy Tab-tölvunni
á næstunni og segja erlendir
tölvuspekúlantar hana þá einu
sem geti ógnað iPad-veldinu. Ég
tek undir það.
HP Slate 500 frá
Hewlett-Packard
Spjaldtölvan HP Slate 500 er miklu frekar vinnutölva
en sófagræja og hentar betur
stjórnendum fyrirtækja en ein-
staklingum sem vilja rápa um
netið. Tölvan er í raun venju-
leg borð- og fartölva en með
snertiskjá og keyrir á Windows
7-stýrikerfinu frá Microsoft.
Tölvan er handhæg en svolítið
þung, með 8,9 tommu skjá (22
sentimetrar), 2 GB vinnslu-
minni, kemur með 64 GB SSM-
disk og vinnur á 1,86GHz Intel
Atom Menlow Z530-örgjörva.
Tölvan kemur með tengiboxi
sem tölvan getur sest í og má
tengja við hana fjölda af tengj-
um, þar á meðal lyklaborð. Það
hentar vel enda lyklaborðið sem
skjóta má upp á skjánum með
svo litla stafi að erfitt er að nota
þá. Lítill penni fylgir með og
kemur hann sér vel. Í tölvunni
eru tvær myndavélar, VGA-vél
að framan en 3 MP-myndavél að
aftan sem tekur ágætar myndir.
Lítið er hægt að segja um tölv-
una sem slíka en hún virkar
eins og fartölva án lyklaborðs.
Verðið liggur í kringum 150
þúsund krónur.
■ TVÆR SPJALDTÖLVUR
TIL SAMANBURÐAR