Fréttablaðið - 02.04.2011, Page 38
heimili&hönnun2
● Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson Útgáfufélag:
365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000
Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar:
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir s. 512 5439 Útlits-
hönnuður: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is.
Margt var framúrskarandi, eins
og prjónastofa Víkur Prjóns dóttur
í gömlu húsi á Laugaveginum, og
annað var síðra en umfram allt var
ótrúlega margt í boði og fjölbreyti-
leikinn mikill. Það er helst hægt að
kvarta undan því að hátíðin stóð
allt of stutt og hér með er vinsam-
legast bent á að lengja hátíðahöld-
in næsta ár. Vika er lágmark fyrir
veislu af þessu tagi.
Enn er þó hægt að njóta hluta
HönnunarMars og tilvalið að gera
það um helgina eða seinna í mán-
uðinum.
Óhætt að mæla með
heimsókn í Hönn-
unarsafnið í Garða-
bæ. Þar ber sérstak-
lega að nefna Shop-
lifter, eða Hrafnhildi
Arnardóttur, en sýn-
ingin hennar stendur
til 29. maí. Sýningin
er lítil en gefur góða
mynd af fallegum út-
færslum af einstökum
efniviði. Snillingur þar á ferð. Í
sömu ferð má skoða yfirlits-
sýningu Gunnars Magnússonar
húsgagnahönnuðar en sú sýning
stendur einnig út maímánuð.
Í Epal má enn sjá hluti sem
kynntir voru á HönnunarMars
enda eru margir
þeirra til sölu í versl-
uninni. Þar tekur
einnig á móti gestum
óvænt og einstök upp-
stilling sem er hluti
af alheimshönnun-
arsögunni. Árið 1958
var eitt frægasta
hótel í heimi, SAS
Royal í Kaupmanna-
höfn, teiknað af Arne Jacobsen.
Nú er herbergi númer 606 flutt
inn í salarkynni Epal með upp-
runalegu húsgögnunum og öðrum
búnaði. Arne teiknaði öll húsgögn
og fylgihluti fyrir hótelið og það
er vel þess virði að koma við og
sjá þessa einstöku hluti. Þar eru
meðal annars Eggið og Svanurinn
en þessir frægu hægindastólar
urðu einmitt til með tilkomu þessa
umdeilda hótels.
Að lokum má benda öllum á að
kíkja í Norræna húsið en þar er
ákaflega áhugaverð sýning um mat.
Húsið er auk þess, eins og SAS hót-
elið, eitt allsherjar hönnunarlista-
verk enda hannað af Alvar Aalto,
einum frægasta arkitekt Finna,
að innan sem utan. Hann var sam-
tímamaður Arne og voru þeir félag-
arnir brautryðjendur hönnunar-
stéttarinnar og skrifuðu stóran
hluta hönnunarsögunnar sem nú
stendur almenningi til boða.
Veislan heldur áfram
● HönnunarMars kom og fór með látum. Liðin helgi var full af frábærum uppákomum með
stórkostlegum sýningum og höfuðborgin umbreyttist í hlaðborð hönnunarviðburða.
Shoplifter gerði þetta samvinnuverkefni fyrir MOMA í New York árið 2008.
Herbergi 606 í SAS Royal hótelinu.
Sigga Heimis
iðnhönnuður
skrifar í Heimili&hönnun
sigga@siggaheimis.is
Hönnun Alvars Alto er
tímalaus eins og sést
á kollinum sem er frá
árinu 1954.
10%
25%
Á S K R I F T
í síma 578-4800
og á w w w.rit.is
á næ ts a bl ða sölustað
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
heimili&
hönnun
SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI
apríl 2011
Grænt hverfi
Laugarnesið með augum Eddu
Ívarsdóttur, nema við Landbúnaðar-
háskóla Íslands. SÍÐA 6
MEÐ HESTA
Í KJALLARANUM
Hjónin Sesselja Guðjónsdóttir og Björgvin Svavarsson hafa
innréttað heimilið haganlega kringum áhugamálin. SÍÐA 4
Margt að sjá
Sigga Heimis
fjallar um spenn-
andi hönnunar-
viðburði.
SÍÐA 2
CANDY AFSLÁTTARDAGAR
GÓÐ KAUP … matarborðið
undir sólinni
Snilldaruppfinning frá hinu finnska Magisso;
kökuhnífur og töng sem framreiðir tertusneið-
arnar í senn. Kallast „kökuframbjóðandinn“. Fæst
bæði í nokkrum litum úr plasti og svo úr stáli.
Duka, Kringlunni. Verð: 4.900 krónur (plast).
Formfögur djúpsvört
bambusskál undir
hvers kyns með-
læti, kartöflur, salat,
brauð, eða snakk með
sjónvarpinu. ILVA,
Korputorgi. Verð:
2.495 krónur.
● NORMANN COPENHAGEN lífgar gjarn-
an upp með litum á þeim nýjungum sem
það sendir frá sér og klukkan „Watch Me“ eða
„Horfðu á mig“ eftir hönnuðinn Rasmus Gott-
liebsen er þar engin undantekning. Gottlieb-
sen segist í hönnun sinni hafa verið undir
áhrifum frá litaspjöldum sem notuð eru þegar
litur á málningu er valinn.
● HÚSGAGNAVERSLUNIN HABITAT sem er landsmönnum að
góðu kunn söðlar um nú í maí og flytur í nýtt húsnæði. Verslunin hefur
verið rekin í Holtagörðum undanfar-
in ár en mun nú flytja starfsemi sína á
svipaðar slóðir og IKEA er nú; í Kauptún í
Garðabæ.
● BOUROULLECBRÆÐURNIR Ronan og
Erwan hafa á þeim tíu árum sem þeir hafa unnið
saman sent frá sér hverja hönnunina á fætur annarri
sem slær í gegn. Borð sem þeir hönnuðu fyrir Magis
og var frumsýnt á húsgagnasýningunni Salone del
Mobile á síðasta ári eru nú nýkomin í framleiðslu
hjá Magis. Þau kallast baguette og central,
einföld og fáguð.