Fréttablaðið - 02.04.2011, Qupperneq 74
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR42
Eftirhermu Bob Hope krafist
Guðfaðir pönksins, Iggy Pop, eða raunar rótari
í þjónustu hans að nafni Jos
Grain, ku bera ábyrgð á einum
skemmtilegasta kröfulistanum
í tónlistarbransanum. Þegar
Iggy fer á túr leggur hann
fram átján síðna lista þar sem
meðal annars koma fram eftir-
farandi óskir varðandi skreyt-
ingar í búningsherbergi rokkarans:
„Herbergið á ekki að líkjast dæmigerðu rokk og
ról búningsherbergi. Fáið bara einhvern afslapp-
aðan með smá listrænan stíl til að hanna það.
Þekkið þið einhvern samkynhneigðan?“
Iggy og hans fólk biðja einnig um Bob Hope
eftirhermu og „eintak af blaðinu USA Today sem
hefur að geyma grein um sjúklega feitt fólk“.
Blindur er bóklaus maður
T rúbadorinn ástsæli KK hlýtur að vera með þeim
hógværari í bransanum, í það
minnsta ef tekið er mið af
þeim kröfum sem hann setur
við tónleikahald um landið. Í
ævisögu KK kemur nefnilega
fram að það eina sem hann
biður um er að leslampi sé á
hótelherberginu hans.
Annar reynslubolti, sjálf-
ur Willie Nelson, þykir líka
varkár í sínum kröfum. Þó
vekur athygli að Willie, sem
er einn þekktasti málsvari
kannabisreykinga um víða
veröld, tekur ekki annað í mál en að búningsher-
bergið sé reyklaust.
Þ
egar Manchester-
tvímenningarnir í
Hurts héldu óþægi-
lega rafmagnslausa
tónleika hér á landi
fyrir skemmstu fóru
þeir fram á að ýmsir hlutir biðu
þeirra í búningsherberginu í Voda-
fone-höllinni. Einna mesta athygli
vakti eindregin ósk þeirra um að
rakatæki fyrir andlit væri til stað-
ar baksviðs en auk þess báðu Bret-
arnir um tíu hvítar rósir, straujárn,
straubretti, stóran spegil og loks
að þrjár myndir af frægum súper-
módelum yrðu hengdar á vegginn í
búningsherberginu. Téðar myndir
máttu þó alls ekki vera klámfengn-
ar, enda Hurts-bræður annálaðir
séntilmenn.
Þessi svokallaði kröfulisti
Hurts-liða verður að teljast ansi
hreint hófsamur miðað við þann
aðbúnað sem margir aðrir tónlist-
armenn krefjast baksviðs fyrir
tónleika, enda hefur sveitinni
nýskotið upp á stjörnuhimininn og
líklegt er að kröfulistinn lengist í
takt við auknar vinsældir. Góðu
heilli hafa fjölmiðlar verið ötul-
ir við að draga kröfulista þeirra
listamanna sem heimsótt hafa
landið á undanförnum árum upp
úr tónleikahöldurum og deila þeim
með alþjóð, enda eru slíkar frétt-
ir vel til þess fallnar að svala for-
vitni, velþóknun, hneykslunargirni
eða þórðargleði landans, allt eftir
smekk hvers og eins.
Mikilvægi handklæða
Lífseig er til dæmis sagan af því
þegar Bob Dylan hélt sína fyrri
tónleika á Íslandi, árið 1990, og
heimtaði Budweiser-bjór í flöskum
með löngum hálsi og brún hand-
klæði, ásamt fleiru smálegu. Ef
sú saga á við rök að styðjast virð-
ast svo hversdagslegir hlutir sem
handklæði vera stjörnum skemmt-
anabransans afar hugleiknir, en
þegar plötusnúðurinn Carl Cox
kom fram á Nasa vorið 2006 krafð-
ist hann handklæða sem máttu
ekki undir neinum kringumstæð-
um vera hvít á litin. Þá biður Elton
John iðulega um 74 handklæði bak-
sviðs, en virðist vera nokk sama
um hvernig þau eru á litinn.
En stjörnurnar þurfa líka að
dreifa huganum og leika sér svolít-
ið. Gítargoðið Eric Clapton ferðast
helst ekki nema með forláta fót-
boltaspilsborð með sér og fékk
gott pláss fyrir áhugamálið í Egils-
höllinni um árið, á meðan John
Fogerty bað um eitt stykki X-Box
leikjatölvu, sem síðar kom í ljós að
var fyrst og fremst ætluð sjö ára
gömlum syni rokkarans. Þá þykir
Íslandsvininum Damon Albarn
fátt þægilegra en að grípa í einn
og einn borðtennisleik baksviðs á
tónleikum til að róa taugarnar.
X-Factor söngvarinn með óheppi-
lega nafnið, Paul Potts, vildi fá
íslenskan bjór þegar hann tróð
upp ásamt Björgvini Halldórssyni
í Laugardalshöllinni um jólin og
þýska tvíeykið Booka Shade, sem
kom fram á aðdáendahátíð íslenska
EVE Online á sama stað um síð-
ustu helgi, bað sérstaklega um að
íslenska sælgætið Tromp yrði á
boðstólum.
Alræmdar M&M-kúlur
Allt eru þetta þó smámunir miðað
við alræmdasta kröfulista tónlist-
arsögunnar, þann sem gjarnan er
talinn hafa lagt línuna fyrir mestu
heimtufrekju samtímans, en heið-
urinn af honum eiga bandarísku
rokkararnir í Van Halen. Á tón-
leikaferðalagi sínu um heiminn árið
1982 lögðu meðlimir sveitarinnar
fram 53 síðna langan kröfulista um
allan aðbúnað innan sviðs og utan
á hverjum tónleikum og kenndi þar
ýmissa grasa. Meðal annars báðu
þeir um stóra skál af M&M-kúlum,
en þess þurfti að gæta sérstaklega
að tína allar brúnu kúlurnar úr.
Margir supu hveljur þegar orð-
rómur um þessar bjánalegu kröf-
ur Van Halen hóf að spyrjast út,
en löngu síðar skýrðu hljómsveit-
armeðlimir mál sitt á þann hátt
að þeim hefði að sjálfsögðu verið
skítsama um litinn á M&M-kúlun-
um, þó það nú væri. Raunveruleg-
ur tilgangur kröfunnar hefði verið
að tryggja það að tónleikahaldar-
arnir læsu listann þeirra vel og
vandlega. Ef brúnar kúlur væri að
finna í skálinni í búningsherberg-
inu væri allt eins líklegt að mikil-
vægari atriði, líkt og þau sem varða
öryggismál, hljómburð og lýsingu,
væru einnig í ólagi. Trúlegt er að
slíkt hið sama sé uppi á teningnum
hjá mörgum þeim sem setja upp
óheyrilegar kröfur um hin ýmsu
smáatriði.
Tíu hvítar rósir handa mér
Þegar poppstjörnur halda tónleika er þeirra siður að setja fram ákveðnar kröfur um aðbúnað baksviðs, sem oft vekja blendnar
tilfinningar hjá sauðsvörtum almúganum. Kjartan Guðmundsson leit á nokkur misjafnlega jarðbundin dæmi um slíkar kröfur.
ENGAR BRÚNAR KÚLUR Van Halen ber ábyrgð á alræmdasta kröfulista hljómsveitar í poppsögunni.
K röfur dívunnar Mariuh Carey um aðbúnað bak-sviðs eru óheyrilegar. Meðal þess sem söng-
konan biður um er að kettlingar og hvolpar séu
viðstaddir í herberginu og einn starfsmaður sinni
eingöngu því starfi að taka við notuðu tyggigúmmíi
Mariuh og setja í þar til gerðar ruslafötur. Þá vill
hún kampavín, sem hún harðneitar að drekka nema
með beygjanlegum sogrörum.
Merkilegt nokk virðist varaforsetaframbjóðand-
inn fyrrverandi Sarah Palin einnig hafa blæti fyrir
sogrörum sem hægt er að beygja til og frá, en hún
biður um kassa af slíkum
rörum þegar hún heldur
fyrirlestra víða um heim.
Söngkonan Madonna heimt-
ar heila 25 kassa af Kabba-
lah-vatni, en engin rör, hvorki
beygjanleg né annars konar.
Tyggjóið í ruslið
Dagskrá og skráning á www.sa.is
AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2011
FIMMTUDAGINN 7. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA
OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16.