Fréttablaðið - 02.04.2011, Page 78

Fréttablaðið - 02.04.2011, Page 78
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR46 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Hjartans þakkir sendum við öllum þeim er sýndu virðingu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Erlendsdóttur Sæbóli, Blönduósi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Mörk, 5. hæð suður, fyrir hlýja og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Gísli Ófeigsson Ester Garðarsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir Ásgeir Axelsson Þórarinn Baldursson Guðrún Kristnsdóttir Magnús E. Baldursson Helga I. Sigurðardóttir Þrándur Ó. Baldursson Emilía M. Stefánsdóttir Sigurbjörg H. Baldursdóttir Hreiðar Margeirsson Steinvör M. Baldursdóttir Friðrik Steingrímsson Sigurlaug B. Baldursdóttir Eiríkur Garðarsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilega þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, Halldórs Kristjánssonar Einilundi 10e, Akureyri. Kristján Halldórsson Olga Guðnadóttir Sólveig Halldórsdóttir Garðar Jóhannsson Harpa Halldórsdóttir Halla B. Halldórsdóttir Brynjar Bragason Hjördís Halldórsdóttir Magnús Rúnar Magnússon Sólveig Hjaltadóttir afa- og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Aðalheiður Karlsdóttir frá Fáskrúðsfirði, til heimilis að Laufvangi 7, lést þriðjudaginn 29. mars. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 4. apríl kl. 13.00. Þorbjörg Erla Jónsdóttir Hans Óli Rafnsson Berglind Ósk Agnarsdóttir Elís Þór Rafnsson Bryndís Jóna Jónsdóttir Rafn Heiðar, Ellen Rós, Svanhvít Lilja, Unnar Ari, Ingi Rafn, Andri Fannar. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Ásgerður Ágústa Pétursdóttir Árskógum 8, Reykjavík, síðast til heim- ilis að Hjúkrunarheimilinu Sóltúni, lést 29. mars síðastliðinn. Útförin fer fram frá Háteigskirkju 7. apríl kl. 15.00. Pétur Vilhjálmsson Auður Sjöfn Tryggvadóttir Sigríður Vilhjálmsdóttir Jóhanna Vilhjálmsdóttir Örn Guðmarsson Jóhann Sigurfinnur Vilhjálmsson Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinahug vegna fráfalls okkar ástkæra Magnúsar Þórs Helgasonar Kirkjuvegi 1, Keflavík, og heiðruðu minningu hans. Einar Magnússon Ingibjörg Bjarnadóttir Grétar Magnússon Margrét Borgþórsdóttir Guðríður Magnúsdóttir Magnús Karlsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg frænka okkar, Freyja Jóhannsdóttir Kjarnalundi dvalarheimili á Akureyri, lést fimmtudaginn 24. mars. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 6. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kjarnalund. Fyrir hönd aðstandenda, María S. Stefánsdóttir. Jóhannes Páll páfi andaðist þennan mánaðardag árið 2005 áttatíu og fjögurra ára að aldri. Banamein hans var hjarta- og nýrnabilun. „Englarnir bjóða þig velkom- inn,“ var sagt á sjónvarpsstöð Vatíkansins eftir að Navarro-Valls, talsmaður Páfagarðs tilkynnti andlátið. Tugir ef ekki hundruð þúsunda manna komu saman á Péturstorginu í kjölfar tilkynningarinnar Páfagarðs og flaggað var í hálfa stöng um alla Ítalíu og í kaþólskum löndum víða um heim. Jóhannes Páll hét réttu nafni Karol Wojtyla. Hann var fyrsti Pólverjinn á páfa- stóli. Jafnframt var hann sá páfi 20. aldar sem var langyngstur er honum hlotnaðist sá heiður árið 1978. Hann sat næstlengst allra páfa sögunnar á páfastóli, eða í 27 ár. Aðeins einn páfi hafði setið lengur, það var Píus IX. sem sat í 32 ár. ÞETTA GERÐIST: 2. APRÍL 2005 Jóhannes Páll páfi annar lést HANS CHRISTIAN ANDERSEN rithöfundur (1805-1875) var fæddur þennan dag. „Lítil fjöður getur orðið að fimm hænum.“ Alþjóðlegur dagur einhverfra er í dag og mikið um að vera hjá Umsjónar- félagi einhverfra hér á landi. Í fyrsta lagi verður opnunarhátíð klukkan tvö í nýju húsnæði Specialisterne á Íslandi að Suðurlandsbraut 24. Það fyrirtæki hefur að meginmarkmiði að þjálfa fólk sem er á einhverfurófinu til þátttöku í atvinnulífinu, annaðhvort úti í þjóð- félaginu eða með því að fá verkefni þangað inn. „Þetta eru alger tímamót og við vonum að atvinnumarkaðurinn sýni þessu framtaki velvild og kunni að meta það,“ segir Sigrún Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Umsjónarfélags einhverfra. „Innan hóps fólks á ein- hverfurófinu eru þrælgáfaðir einstak- lingar sem geta unnið flókin störf á tæknisviði, meðal annars við hugbún- aðargerð. Oft þarf aðeins að hagræða þeirra vinnuaðstöðu því þeir geta verið með skyntruflanir þannig að lýsing og hljóð í umhverfinu trufli þá. Því eru sumir þeirra einangraðir núna yfir sinni tölvu heima,“ segir Sigrún. Specialisterne er sjálfseignarstofn- un sem Umsjónarfélag einhverfa og nokkrir einstaklingar standa að. Það er að fyrirmynd Specialisterne í Dan- mörku og stofnandi þess fyrirtækis, Thorkil Sonne, verður meðal gesta við opnunina í dag. „Við fáum að nota nafn- ið og sækja þekkingu til Dananna, til þess fengum við styrk frá Leonardo menntaáætlun ESB. Það er gríðarleg vinna á bak við þetta verkefni og sú vinna er unnin af foreldrum í félaginu.“ segir Sigrún. Hátíðin í dag er tvíheilög því auk opn- unar starfsstöðvarinnar Specialisterne kemur út bókin Frík, nördar og Asper- ger-heilkenni í þýðingu Guðna Kol- beinssonar. Hún er gefin út af For- laginu í samstarfi við Umsjónarfélag einhverfa. „Bókin er skrifuð af þrett- án ára dreng sem segir sögu sína og er afskaplega góð lýsing á unglingsárum einstaklings með Asperger-heilkenni. Hann skrifar um einelti, tilfinningar, breytingar og vináttu á heiðarlegan en jafnframt skemmtilegan hátt,“ lýsir Sigrún og heldur áfram. „Bókin hefur vakið heimsathygli. Laufey Gunnars- dóttir þroskaþjálfi hefur unnið að því að fá hana útgefna hér á landi því að hennar mati, og margra annarra, er þetta með því besta sem hefur verið skrifað um líf fólks á einhverfurófi.“ gun@frettabladid.is UMSJÓNARFÉLAG EINHVERFRA: OPNAR STARFSSTÖÐ OG GEFUR ÚT BÓK Þrælgáfaðir og geta unnið flókin störf á tæknisviði ÁNÆGJULEGUR DAGUR Sigrún ásamt Bjarna Torfa Álfþórssyni, framkvæmdastjóra Specialisterne á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.